Fundur hreppsnefndar 19. janúar 2012

20.01 2012 - Föstudagur

Hreppsnefndarfundur verður haldinn fimmtudaginn 19. janúar 2012 kl. 15.30 í félagsheimilinu Miklagarði.

 

Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður E. Konráðsdóttir, Björn Hreinsson og Bárður Jónasson.

 

Jafnframt var mættur, sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 5. jan. sl.

Fundargerð hreppsnefndar frá 5. janúar sl. lögð fram.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

 

2. mál. Fundargerð skipulagsnefndar frá 10. jan. sl.

Lögð fram fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 10. janúar sl.

Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðarinnar “ Vegslóðar við Selá” og gerði grein fyrir málinu.   Lagði hann til að tillaga nefndarinnar yrði samþykkt.

Hreppsnefnd samþykkti síðan fyrirliggjandi tillögu skipulagsnefndar í 2.tl. fundargerðarinnar með 6 atkvæðum, einn sat hjá,

Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

 

3. mál. Fundur atvinnumálanefndar frá 9. og 17. janúar 2011.

Lagðar fram fundargerðir atvinnumálanefndar frá 9. og 17. janúar sl.   Í fundargerðunum er fjallað um aðferðafræði við úthlutun byggðakvóta á báta fiskveiðiárið 2011/2012.   Gerð var grein fyrir fundi með smábátasjómönnum í þessu sambandi og einnig að fyrirhugað væri að boða fund með Toppfiski ehf. og smábátasjómönnum í næstu viku.  Afgreiðslu á endanlegum tillögum atvinnumálanefndar um óskir um breytingu á reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins um úthlutun byggðakvóta 2011/2012 á báta var frestað fram í næstu viku en heimild Sjávarútvegsráðuneytisisns hefur fengist til að skila ekki inn tillögum sveitarfélagsins fyrr en eftir næstu viku.

 

Fundargerðinar lagðar fram til kynningar.

 

4. mál. Fundargerð húsnæðisnefndar frá 5. jan. sl.

Fundargerð húsnæðisnefndar frá 5. jan. sl. lögð fram til kynningar.

5. mál  Framkvæmdir við leikskólann Brekkubæ.  Gerð grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum.

Lögð fram fundargerð fundar frá 13. janúar sl. með sveitarstjóra, leikskólastjóra og starfsmanni byggingareftirlits og  Mælifelli ehf., varðandi lúkningu framkvæmda í leikskólanum Brekkubæ.

Framkvæmdir þessar voru stöðvaðar í árslok 2008, þegar fjármál þjóðarskútunnar fóru á hliðina, en þá vann Mælifell ehf. að þessari framkvæmd.

Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga til samninga um lok verksins við Mælifell ehf. á grundvelli þeirra hugmynda sem fram koma í ofangreindri fundargerð frá fundi fulltrúa verkkaupa og verktaka.

Samþykkt samhljóða með 7 atkv.

6. mál.  Bréf Vopnafjarðarhrepps til Símans varðandi bætt símasamband á nýjan veg niður til Vopnafjarðar.

Lögð fram bréf Vopnafjarðarhrepps frá 25. mars 2011 og 12. janúar 2012, til Símans, þar sem óskað er eftir bættu símasambandi á nýja veginn frá Hringvegi og niður til Vopnafjarðar, en á talsverðum hluta hans er ekkert samband.

Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps lýsir ánægju með það að bréfin hafi verið send og felur sveitarstjóra að fylgja erindunum eftir.

 

7. mál.  Urðunarstaður Vopnafjarðar:   Umsögn Umhverfisstofnunar dags. 18. ágúst sl., en móttekin 12. janúar 2012.  Ennfremur bréf Vopnafjarðarhrepps til Umhverfisráðuneytis dags. 4. júlí sl., sem enn hefur ekki fengist svar við.

 

Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps frá 4. júlí 2011 til Umhverfisráðuneytisins, þar sem óskað er eftir því að Vopnafjörður verði skilgreind afskekkt byggð í skilningi laga nr. 55/2003.   Ennfremur er óskað eftir undanþágu frá gassöfnun á grundvelli þess og að sveitarfélaginu verði heimilað að byggja umsókn sína um starfsleyfi fyrir urðunarstaðinn að Búðaröxl, Vopnafirði á þessu ákvæði eins og umrædd lög gera ráð fyrir að unnt sé að gera.

Jafnframt lögð fram umsögn Umhverfisstofnunar dags. 18. ágúst sl., en móttekin 12. janúar sl.

Svar Umhverfisráðuneytis hefur ekki borist enn.

 

Samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra að kalla eftir svari ráðuneytisins hið fyrsta.

 

8. mál. Vatnsveita Vopnafjarðar fyrirhugaðar framkvæmdir.   Gerð grein fyrir stöðu mála.

Lögð fram frumdrög að minnisblaði um aðgerðir í vatnsveitu Vopnafjarðar dags. 23. des. sl.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu hugmyndum að aðgerðum, sem til skoðunar eru og hver áætlaður kosatnaður er við þessar framkvæmdir.  

 

Annars vegar er um að ræða framkvæmdir við birgðatanka vatnsveitunnar að Búðaröxl, þar sem byggja þarf aðstöðuhús og koma upp búnaði til þess að geisla vatnið.   Hins vegar er um að ræða aðgerðir til þess að bæta þrýsting í kerfinu frá því sem nú er, en þrýsingsfall hefur á stundum orðið í kerfinu þegar full vinnsla er í gangi í fiskiðjuveri HB Granda.

Fundarmenn töldu mikilvægt að ráðast í þessar framkvæmdir árinu.  

 

Á þessum grunni samþykkir hreppsnefnd samhljóða að fela sveitarstjóra að láta vinna endanlegar tillögur vegna þessara framkvæmda þ.a. unnt verði að hefjast handa tímanlega í vor.   Endanlegar tillögur verði síðan lagðar fyrir hreppsnefnd.

 

9. mál Sóknaráætlun 20/20.   Hvernig skal vinna málin áfram ?

 

Lagt fram tölvubréf dags 16. janúar sl. frá fulltrúa stýrinets um sóknaráætlanir landshluta.

Ljóst er afrakstur Austurlands í þessu verkefni í fjárlögum 2012 er ákaflega rýr og getur engan veginn talist ásættanlegur.

 

Lögð fram svofelld tillaga:

 

“  Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps telur þó brýnt að að áfram sé haldið á þessari braut, en mælist eindregið til þess að stjórn SSA hafi forgöngu um að boðaður verði fundur með forsvarsmönnum verkefnisins 20/20 og fulltrúum sveitarfélaga áður en áfram verður haldið.”

 

Eftir umræður var fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

10. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundur ferðamálasamtaka Vopnafjarðar frá 10. jan. sl.

Lögð fram til kyningar.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.30





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir