Fundargerð ferlinefndar 16. júní 2009

16.06 2009 - Þriðjudagur

Fundur ferlinefndar Vopnafjarðarhrepps
-16. júní 2009

Þriðjudaginn 16. júní 2009 kom ferlinefnd sveitarfélagsins saman til fundar á skrifstofu Magnúsar Más, hófst fundur kl. 10. Til fundar voru mætt þau sem í ferlinefnd sitja, Marie Robin, Inga María Ingadóttir og Magnús Már.

Hafði Marie óskað eftir fundi en um árabil hafði nefndin ekki komið saman – og mótast einkum og sér í lagi af þeirri staðreynd að ekki hefur mikið verið að gerast í samfélaginu er varðar starfssvið ferlinefndar. Þannig er uppbygging á vegum HB Granda utan þess ramma sem ferlinefnd getur beitt sér, hinar flóknu vélasamstæður leyfa einfaldlega ekki aðkomu fatlaðra nema að takmörkuðu leyti. Um þetta eru nefndarmenn allir sammála.

Á sl. ári, þann 03. júní, settust Þorsteinn sveitarstjóri og Magnús Már í hjólastóla í einn dag en á aðalfundi Sjálfsbjargar á Vopnafirði 2008 var samþykkt áskorun þess efnis að sveitarstjóri og staðgengill byggingafulltrúa skyldu eyða einum degi í hjólastól – og kynnast af eigin raun aðgengismálum í sveitarfélaginu. Á sama tíma og málið í heild ber að taka alvarlega í hvívetna áttu þeir félagar ánægjulegan dag með góðu fólki – reynslan var lærdómsrík. Og svo það sé sagt einu sinni enn er aðdáunarverð sú hógværð og yfirvegun sem Marie sýnir því þó aðgengismálin séu yfirleitt viðráðanleg má/þarf alltaf betur gera.

Vikið að framkvæmdum í Sundabúð en í elsta húsi hennar var baðherbergi einnar íbúðar endurbætt með hliðsjón af aðgengismálum hreyfihamlaðra eins og ávallt er haft að markmiði í þessu húsi. Gerir Marie athugasemdir við þau þrengsli sem þar eru en nokkur munur er á snyrtingum elsta húshlutans og hinna nýrri, verður þessu trauðla breytt nema með miklum tilkostnaði. Skv. Marie er snyrtingin brúkleg og menn gert sitt ýtrasta til að uppfylla þær kröfur sem til staðar eru. Hins vegar er það svo að öll klósett eru of lág, sem þýðir að örðugra er að þoka sér á það og af fyrir þá sem í hjólastól sitja.

Í tengslum við umræðu um Sundabúð var á það bent að handrið þarf að setja við innganga í húsin, hefur verið á þetta bent áður. Nefndarmenn á einu máli að brýnt sé að handrið komi neðan húss þar sem bakkinn er brattur niður að sjó; með handriði væri öryggi stórum aukið og gæfi auk heldur íbúum tækifæri til að njóta fagurs útsýnis án hættu við hrösun á hættulegum stað. Er það tillaga ferlinefndar að mál þetta verði sett í forgang.

Hjáleigan Bustarfelli til umræðu, aðgengismálum hefur ekki verið sinnt sem skyldi en með t. l. l. litlum tilkostnaði má leysa málin svo vel sé en af hellulöguðu planinu og upp á gólf er um 30 cm. hæðarmunur. Sagði Marie hugmyndir um að byggja sérstakt stæði fyrir hreyfihamlaða og aðkomu ofan húss þar eð ekki væri vilji til að hreyfa við hellum núverandi aðkomu. Eru aðstandendur hvattir til að ljúka málinu sem fyrst en Sjálfsbjörg hefur þegar skrifað bréf til hlutaðeigandi hér að lútandi.

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 11:00.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir