Fundargerð menningarmálanefndar 21. júlí 2009

21.07 2009 - Þriðjudagur

Fundur menningarmálanefndar Vopnafjarðarhrepps
-21. júlí 2009

Þriðjudaginn 21. júlí 2009 kl. 09:00 kom menningarmálanefnd saman til fundar á skrifstofu Magnúsar Más. Ekki lá mikið fyrir fundi en svo sem verið hefur undanfarin ár kemur menningarmálanefnd iðulega saman kringum Vopnafjarðardaga. Varðar dagskráin öll bæjarhátíðina.

1. Dagskrá dagsins. Í dag eru á dagskrá tveir viðburðir, mismikið beintengdir dagskrá bæjarhátíðarinnar, opnun sýningarinnar Vopnfirsk list og knattspyrnuleikur Einherja og Leiknis. Bað Ólafur Magnús um að athuga hvort mögulega yrði opnun frestað til föstudagsins 24., það mun Magnús gera.

2. Listasmiðjur. Smiðjur fóru af stað í gær, alls er 21 skráður og munu njóta þess að hafa allan listahópinn sér til leiðbeiningar að þessu sinni, sem telja verður einstök forréttindi. Starfa allar smiðjurnar nú saman undir einu þaki og má vænta þess að afraksturinn verði eitthvað sem ekki hefur sést á Vopnafirði áður. Er almenn ánægja með þetta fyrirkomulag hjá þátttakendum jafnt sem leiðbeinendum.

3. Golfmót Saga Capital. Vel gekk á golfmótinu þrátt fyrir norðanbelging, þátttaka með ágætum. Útlit er fyrir að ári verði það Golfklúbbur Vopnafjarðar sem annist framkvæmdina og myndi því vera fagnað af nefndinni, sem eftir sem áður auglýsti viðburðinn sem lið í bæjarhátíðinni. Nöfn þeirra er skipuðu efstu sætin uppgefin en líkt og á sl. ári verða fregnir af hátíðarviðburðum uppfærðar á heimasíðu sveitarfélagsins.

4. Dagskrá morgundagsins: Mikið er um að vera á morgun og ætti að ganga að óskum miðað við undirbúning og veðurspá – og ef ekki er hægt að færa viðburði inn, s. s. leiksýningu. Dorgveiði kl. 16, gönguför kl. 18, leiksýning Lottu á sama tíma og loks tónleikar Guðrúnar Gunnars kl. 21. Verða allir viðburðirnir ásamt fleiru auglýstir á flygildi í dag en mögulega verður skáldakvöldið á fimmtudag fært í Kaupvang, skoðist nánar. Magnús kanni hvort listsýningaropnun, sem auglýst er í dag, verði frestað til föstudags eins og heyrst hefur, sbr. ofan. Magnús ræðir við Hilmar varðandi Sandvíkina, hvort þrífa þurfi hana og kanna þarf aðstæður m. t. t. öryggis – afmarka svæðið með snúru?


Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 10:10, næsti fundur fimmtudaginn 23. kl. 09:00 á sama stað.

Mætt til fundar: Hrafnhildur Helgadóttir, Ólafur B. Valgeirsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Magnús Már Þorvaldsson, er tók ofangreint saman.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir