Fundur bygginganefndar Vopnafjarðarhrepps
06. apríl 2010, haldinn í Miklagarði kl. 12.00
Mættir til fundar: Eyjólfur Sigurðsson, Bárður Jónasson, Baldur Kjartansson, Þorsteinn Halldórsson, Ingólfur Arason og Bjarki Björgólfsson.
Einnig mættir: Björn Heiðar Sigurbjörnsson, aðst.sl.l.stjóri, Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
- mál: Fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 22. mars sl. lögð fram.
Samþykkt samhljóða.
2. mál: Hamrahlíð 12 – Umsókn um heimild til að byggja viðbyggingu ásamt breytingum á innra skipulagi hússins, sbr. bréf Arkís, dags. 15.03.2010, byggingarleyfisumsókn og uppdrætti, dags. 15.03.2010. Meðfylgjandi ennfremur skráningartafla.
Skipulags- og bygginganefnd hefur tekið erindið fyrir og samþykkir samhljóða án athugasemda.
3. mál: HB Grandi h.f., Hafnarbyggð 12 – Umsókn um byggingarleyfi fyrir endurnýjað mjölhús, sbr. uppdrætti ASK arkitekta hér að lútandi, dags. 30.03.2010. Meðfylgjandi er ennfremur skráningartafla.
Skipulags- og bygginganefnd samþykkir samhljóða erindið athugasemdalaust en mælist til að fyrirtækið geri grein fyrir fyrirkomulagi bílastæða á lóð sinni – einkum m. t. t. uppsjávarfrystingar.
Ekki fleira tekið fyrir, fundi slitið kl. 13:00.