Fundargerð menningarmálanefndar 23. júlí 2009

23.07 2009 - Fimmtudagur

Fundargerð menningarmálanefndar 23. júlí 2009
Fundur menningarmálanefndar Vopnafjarðarhrepps
-23. júlí 2009

Fimmtudaginn 23. júlí 2009 kl. 09:00 kom menningarmálanefnd saman til fundar á skrifstofu Magnúsar Más. Varðar dagskráin öll bæjarhátíðina.

1. Dagskrá dagsins. Á dagskrá er einn viðburður, skáldakvöld í Miklagarði með tónlistarmönnunum Einari Braga og Jóni Hilmari, upplesurunum Ágústu og Ólafi í fráveru Ragnheiðar Gyðu Jónsdóttur. Má vænta þess að kvöldið verði hið ánægjulegasta þar sem tónlist Jóns Múla ræður ríkjum og þjóðsögur hans auk heldur, kaflar valdir af RGJ.

2. Viðburðir gærdagsins. Allt gekk vel, þátttaka í dorgi og göngu viðunandi þó veiðin hefði mátt vera meiri. Inngrip foreldra þykja á stundum vera óþarflega mikil og spurning hvernig það mál er leyst en veiðin er fyrir yngri en 9 ára og 9-12 ára. Leiksýning Leikhópsins Lottu tókst vel á tjaldstæðinu og svalur vindurinn truflaði ekki. Tónleikar Guðrúnar Gunnars ásamt hljómsveit hreint afburða og ágætlega sóttir, um 70 manns hlýddu á söngfuglinn.

3. Dagskrá morgundagsins: Rætt um útidagskrána í miðbænum og Sandvíkurdag á laugardag – er hann í hættu m. t. t. veðurs og hvernig háttar í víkinni? Annars hefur veðurspá Veðurstofunnar verið úr öllu samhengi og þó ekki liggi nákvæmlega fyrir hvers er að vænta á morgun er að því stefnt að gera þann dag eftirminnilegan með tónlist á sviði, hoppköstulum og torgsölu. Fari svo að Sandvíkurdagur verður blásinn af er sandlistaverkakeppnin blásin af um leið. Magnús mun skoða Sandvíkina á eftir með Hilmari og dömurnar setja saman verðlaun v/fjársjóðsleitar. Magnús komi Vífilfellsbrettinu heim til Sigríðar Dóru, þar verður aðstaða til pökkunar verðlauna. Ávextir í sama tilgangi þangað aukinheldur.


Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 10:15, næsti fundur boðaður að afloknum Vopnafjarðardögum, mánudag eða þriðjudag.

Mætt til fundar: Hrafnhildur Helgadóttir, Ólafur B. Valgeirsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Magnús Már Þorvaldsson, er tók ofangreint saman.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir