Fundargerð umhverfismálanefndar 01. september 2008

01.09 2008 - Mánudagur

Fundargerðir umhverfismálanefndar 01. september 2008
Fundur umhverfismálanefndar Vopnafjarðarhrepps 1. september 2008, haldinn í Miklagarði kl. 17.

Mættir: Dagný Sigurjónsdóttir, Jóhann Róbertsson og Helga Jakobsdóttir.

1. mál: Umhverfissjóður Vopnafjarðarhrepps – Tillögur að veitingu verðlauna. Hver nefndarmaður kom með tillögur að garði og býli, þar sem nokkuð erfitt var að velja fór nefndin og skoðaði nokkra garða í sameiningu.
Að lokum varð Kolbeinsgata 52 fyrir valinu, eigendur Höskuldur Jónsson og Guðríður Jónsdóttir. Jörðin Fell var einnig valin, ábúendur Níels Gunnlaugsson og Anna Sigurðardóttir.

Önnur mál: Nokkur umræða varð um hvort sveitarfélagið ætti ekki að veita hvatningarverðlaun til aðila sem hafa lagt mikla rækt við garða og hús sín og sjáanleg er mikil breyting til batnaðar.

Fleira ekki gert og fundi slitið.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir