Fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar 22. janúar 2009

22.01 2009 - Fimmtudagur

Fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar 22.01.2009
9.fundur æskulýðs-og íþróttanefndar.

Fundur haldinn í Miklagarði fimmtudaginn 22.janúar kl: 08:30.

Mætt til fundar: Linda Björk Stefánsdóttir, Nikulás Hjaltason, Hrafnhildur Helgadóttir, Ester Rósa Halldórsdóttir, Kristín Hrönn Reynisdóttir og Gísli Arnar Gíslason æskulýðs- og íþróttafulltrúi.

Formaður bauð fundarmenn velkomna til fundar og síðan var gengið til dagskrár.

Dagskrá:

1. mál: Punktar æskulýðs-og íþróttafulltrúa varðandi félagsmiðstöðina Drekann,
Starfsemin gengur vel og lýstu nefndarmenn ánægju sinni með það.
2. Mál: Bréf Gísla Arnars Gíslasonar- varðandi uppsögn á starfi.
Miklar umræður urðu innan nefndarinnar um innihald bréfsins og lagði nefndin fram eftirfarandi bókun:

-Bókun-

Æskulýðs- og íþróttanefnd skorar á sveitarfélagið að það leggi sitt af mörkum
til að halda núverandi æskulýðs- og íþróttafulltrúa í starfi.

3.mál: Önnur mál.

a). Gísli kynnti Lífshlaupið; lagt fram til kynningar.
b). Opnun íþróttahúss kl;06:00 að morgni: Miklar umræður spunnust um þetta
mál. Nefndin leggur fram eftirfarandi bókun.

-Bókun-

Nefndin fagnar morgunopnun en hefði talið að æskilegt að starfsmaður íþróttahúss væri viðstaddur. Einnig voru nefndarmenn sammála um að eðlilegast hefði verið að morgunopnun íþróttahúss kæmi inn á borð nefndarinnar áður en dreifibréf voru borin í hús.

c). Stofnun golfklúbbs á Vopnafirði: Æskulýðs- og íþróttanefnd fagnar
stofnun golfklúbbs á Vopnafirði og óskar þeim velfarnaðar í nánustu
framtíð.
d) formaður lagði fram tillögu um að frítt yrði í líkamsræktartæki
íþróttahúss í febrúar. Samþykkt.


e) Formaður sagði frá því að sveitarfélagið væri búið að borga upp
líkamsræktartæki í íþróttahúsi. Æskulýðs- og íþróttanefnd vill að tryggt
verði að reglulegt viðhald verði á tækjunum.

f). Formaður lagði fram tillögu um að nemendur 9 og 10 bekkjar
fái að leigja salinn í íþróttahúsi án ábyrgðaraðila, að ákveðnum
skilyrðum settum. s. s. ekki not á fimmleikatækjum.
Samþykkti nefndin það.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 10:30.

F.h. n. Hrafnhildur Helgadóttir.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir