Hafnarnefnd 15. 03.10

15.03 2010 - Mánudagur

Hafnarnefnd 15.03.10
Hafnarnefndarfundur haldinn mánudaginn 15. mars 2010 kl. 12.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mættir til fundar voru Hafþór Róbertsson, Björn Hreinsson, Friðbjörn Marteinsson, Jörgen Sverrisson, og Hilmar Jósefsson.
Jafnframt var mættur hafnarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

Fyrir tekið:

1. Mál.Fundargerð hafnarnefndar frá 16. nóv. sl.
Gerð var grein fyrir kaupum á krana fyrir smábáta sem samþykkt voru á síðasta ári sbr. 3. tl.
2. Mál. Byggðakvóti 2009/2010 sbr. bréf Sjávarútvegsráðuneytisins frá 31. Janúar sl. Lagt fram bréf Sjávarútvegsráðuneytisins frá 31. Janúar sl., þar sem tilkynnt er að Vopnafjörður hefur fengið 150 þorskígildistonn úthlutað í byggðakvóta. Jafnframt lagðar fram reglugerðir sem um málið gilda og umsókn Vopnafjarðarhrepps fyrir kvótanum. Farið var yfir fyrirliggjandi gögn og síðan var lögð til svofelld málsmeðferð:
„Hafnarnefnd telur eðlilegt að notaðar verði sambærilegar reglur við úthlutun byggðakvóta á skip og notaðar voru á síðasta ári. Hafnarnefnd leggur þó á það áherslu að leitast verði við á grundvelli væntinga um úthlutun byggðakvóta næstu ára að stofna sérstaka bolfiskvinnslu á Vopnafirði, sem lyftistöng undir uppbyggingu á atvinnulífi staðarins til viðbótar þeirri vinnslu sem til staðar er.“
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur.
3. Mál. Erindi HB Granda varðandi lóðarbreytingar að Hafnarbyggð 12, Vopnafirði. Óskað er eftir breytingu á vegtengingu inn á hafnarsvæðið frá gildandi skipulagstillögu til samræmis við meðfylgjandi uppdrátt unnin af ASK arkitektum dags. 8. Mars 2010. Breyting sú sem óskað er eftir er á megin akstursleið um hafnarsvæðið. Hafnarnefnd vill benda á mikilvægi þess Að akstursleið fyrir vöruflutninga verði sem best á þessu svæði til framtíðar. Mikilvægt er að vel sé hugað að þessum málum frá upphafi eins og gildandi skipulagstillaga gerir ráð fyrir. Áður en endanleg ákvörðun verður tekin á fyrirliggjandi beiðni telur hafnarnefnd að skoða þurfi vel hvernig akstursleið flutningabifreiða verði sem greiðust um umrætt svæði.
4. Mál. Yfirlýsing Siglingastofnunar um að Vopnafjarðarhöfn uppfylli kröfur um siglingarvernd. Lagt fram bréf Siglingastofnunar frá 5. mars sl., þar sem því er lýst yfir að Vopnafjarðarhöfn uppfylli kröfur um siglingarvernd. Hafnarnefnd lýsir yfir ánægu með þetta.
5. Mál. Gjaldskrá Vopnafjarðar Lögð fram gjaldskrá hafnarinnar sem tók gildi frá og með 1. janúar sl. Gjaldskráin var samþykkt á fundi hafnarnefndar 16. nóv. sl.
6. Mál. Ýmis bréf og erindi
a) Fundargerð stjórnar Hafnarsambands Íslands frá 19. feb. sl. Jafnframt lögð fram skýrsla um fjárhagsstöðu hafna frá 18. des. sl.
b) Önnur mál. Innsiglingarljós. Gerð var grein fyrir því að mjölútskipunarfæriband skyggir á innsiglingarljós. Unnið er að skoðun þessa máls í samvinnu við Siglingastofnun.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13.50




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir