Hreppsnefndarfundur haldinn í félagsheimilinu Miklagarði fimmtudaginn 20. maí 2010 kl. 16.00.
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Anna Pála Víglundsdóttir, Björn Halldórsson, Þórdís Þorbergsdóttir og Guðrún Anna Guðnadóttir.
Dagskrá:
1) mál. Fundargerð hreppsefndar frá 29. apríl sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 29. apríl sl.
Fundargerðin síðan samhljóða samþykkt.
2) mál. Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 17. maí sl.
Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 17. maí sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 4. tl. fundargerðarinnar, þar sem fjallað er um nýja vegtengingu við þéttbýli Vopnafjarðar. Gerði hann grein fyrir þeim valkostum sem til skoðunar hefðu verið og lýsti þeirri leið sem skipulagsnefndin leggur til að verði farin. Að tillögu skipulagsnefndar mun Vegagerðin ásamt skipulagshöfundi vinna nákvæm gögn og skýrslu sem send verða Skipulagsstofnun og könnuð matsskylda leiðarinnar.
Fram fór mikil umræða um vegamálin þar sem nefndarmenn reifuðu skoðanir sínar, svaraði sveitarstjóri síðan fram komnum fyrirspurnum. Hreppsnefnd tekur undir tillögu skipulagsnefndar.
Við umfjöllun þessa máls kom fram tillaga um nauðsyn þess að hugað verði vel að hraðahindrun, við innkomuna í bæinn.
Tillaga um hraðahindrun var samþykkt með 6 atkv.
Fundargerðina var að öðru leyti samhljóða.
3) mál. Kjörskrá Vopnafjarðarhrepps vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí n. k.
Lagður fram stofn að kjörskrá fyrir Vopnafjarðarhrepp, sem unnin hefur verið af Hagstofu Íslands. Alls eru 525 á kjörskrá Vopnafjarðarhrepps fyrir sveitarstjórnarkosningar 29. maí 2010, þar af eru 280 karl og 245 konur.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir samhljóða framlagða kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar 29. maí n. k. eins og hún liggur fyrir og felur sveitarstjóra að undirrita hana.
Kjörskráin hefur legið frammi á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps frá 19. maí sl.
4) mál. Jöfnun námskostnaðra vegna framhaldsnáms.
Á fundi hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps 29. apríl sl. var fjallað um það með hvaða hætti yrði best staðið að því að byggja upp framhaldsskólanám fyrir nemendur á landsbyggðinni. Ljóst er að aðstöðumunur er mikill í þessum efnum eftir því hvar nemendur eru búsettir hvað varðar aðgang að framhaldsskólanámi.
Af þessu tilefni samþykkti hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps að senda frá sér svofellda ályktun:
„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps leggur mikla áherslu á það að yfirvöld menntamála endurskoði í heild fyrirkomulag til námsjöfnunar framhaldsskólanema. Í þessu sambandi skal lögð höfuðáhersla á það að koma á fullum jöfnuði á námskostnað; allra framhaldsskólanema, óháð búsetu og fjarlægð frá heimili til framhaldsskóla, þar sem viðkomandi nemandi hefur möguleika á að stunda framhaldsskólanám við sitt hæfi.
Rekstur flestra framhaldsskólanna er á hendi ríkisvaldsins og eru þeir því kostaðir af skattfé allra landsmanna hvar sem þeir eru staddir á landinu. Ekki síst vegna þessa er mikilvægt að jöfnun námskostnaðar verði tekin til gagngerrar endurskoðunar með tilliti til jöfnunar á umræddum kostnaði.“
Fyrirliggjandi ályktun var síðan samþykkt og sveitarstjóra falið að senda hana til Menntamálaráðuneytisins.
5) mál. Þorbrandstaðir -Leiga- Gerð grein fyrir málinu.
Á fundi hreppsnefndar 18. feb. sl. var áður fjallað um hugsanlega leigu á jörðinni Þorbrandsstöðum 1 og 2 sbr. bréf Sigurjóns Haukssonar, dags. 15. feb. sl., varðandi leigu á jörðinni.
Í bréfinu óskaði hann eftir viðræðum um möguleika á því að fá jörðina Þorbrandsstaði leigða til ábúðar og búfjárhalds.
Sveitarstjóra var falið að ræða nánar við bréfritara og kanna möguleika á útleigu jarðarinnar í samvinnu við Héraðs- og Austurlandsskóga.
Undir þessum lið vék Guðrún Anna af fundi.
Sveitarstjóri gerði síðan grein fyrir viðræðum sínum við bréfritara og kynnti hugmynd að leigusamningi ef til þess kemur að jörðin verði leigð. Ljóst er þó að þar þarf að ræða nánar nokkur atriði svo sem leigutíma og leigugjald.
Hreppsnefndarmenn ræddu síðan afstöðu sína til málsins um það hvort leiga ætti jörðina eða ekki.
Í framhaldi var lögð fram svofelld tillaga: “Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að auglýsa jörðina Þorbrandsstaði í Vopnafirði til leigu.“
Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt með 6 atkvæðum.
6) mál. Sorpmál. Samningsdrög vegna flokkunar sorps.
Lögð fram drög að samningi milli Vopnafjarðarhrepps og Sagaplasts ehf. varðandi flokkun á sorpi og förgun þess. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi samningsdrögum og því hvernig hugmyndin væri að standa að þessum málum. Í samningnum er við það miðað að reyna að halda sem mestri vinnu við flokkun sorpsins í heimabyggð. Í samningnum er gert ráð fyrir því að Sagaplast ehf. sjái um kynningu á því hvernig staðið verður að þessum málum í sveitarfélaginu og mun í því sambandi halda sérstakan fund um málið og jafnframt mun hann sækja fyrirtæki jafnt sem einstaklinga heim og veita þeim ráðgjöf í þessum efnum eftir því sem þurfa þykir.
Ljóst er að ef vel á til að takast þurfa íbúar, fyrirtæki og sveitarfélagið að vinna vel saman í þessum efnum.
Hreppsnefndarmenn lýstu ánægju með það að nú hyllti undir að stíga gott skref í framþróun á flokkun sorps og minnka þannig til muna það sorp sem til urðunar fer. Bent var á mikilvægi þess að leiðbeina íbúum og fyrirtækjum vel í þessu sambandi þannig að verkefnið færi vel af stað.
Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða að fela sveitarstjóra að undirrita samning við Sagaplast ehf. á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Jafnframt er honum falið að segja upp samningum við aðra aðila sem í gangi eru.
7) mál. Samningur um rekstur slökkvibifreiðar.
Lagður fram samningur milli Vopnafjarðarhrepps og ISAVIA um rekstur á nýjum slökkvibíl sem keyptur var í samvinnu þessara tveggja aðila og var formlega afhentur til Vopnafjarðar á uppstigningardag 13. maí sl.
Hreppsnefnd samþykkir fyrirliggjandi rekstrarsamning samhljóða fyrir sitt leyti.
8) mál. Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga dags. 28. apríl sl., vegna rannsókna á gasmyndun á urðunarstað sveitarfélagsins.
Lagt fram bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga þar sem gerð er grein fyrir áformum um að mæla hauggas á sorphaugum Vopnafjarðarhrepps, sem og öðrum sorphaugum á Austurlandi. Bréfinu fylgir einnig kostnaðaráætlun, þar sem áætlað er að kostnaður við þessar mælingar, sé milli 700 og 800 þús. kr. á sorphaug. Þetta er gert í þeim tilgangi að kanna hvort slíkt gas sé í vinnanlegum magni á viðkomandi haugasvæðum.
Sveitarstjóri gerði nánari grein fyrir málinu. Samþykkt var að vinna með fulltrúa Sambands ísl. sveitarfélaga að málinu, þó þannig að sveitarstjóra verði falið að lágmarka kostnað við mælingarnar á þeim grunni að ekki geti verið eðlilegt að sami kostnaður sé lagður á lítinn urðunarstað og stóran.
9) mál. Ýmis bréf og erindi:
a) Bréf SSA, fundargerð aukaaðalfundar sambandsins.
Lagt fram til kynningar
b) Fundargerð Haust frá 26. apríl sl.
Lagt fram til kynningar
Fleira ekki tekið fyrir, þakkaði oddviti nefndarmönnum fundasetuna á kjörtímabilinu nema ef vera kynni að nauðsyn krefði til annars fundar. Var það samþykkt svo nefndin kemur saman að nýju að ½ mánuði liðnum. Vikið að styrkjum til framboða.
Fundi slitið kl. 17:15.