Fundur hjá Fræðslunefnd miðvikud. 19 maí 2010 kl. 12:00 í Vopnafjarðarskóla.
Mætt: Guðrún Stefánsdóttir, Magni Hjálmarsson, Gísli Sigmarsson, Halldóra Andrésdóttir auk Aðalbjörns Björnssonar og Arnar Ingólfssonar
Dagskrá:
1. Formaður setur fund kl. 12.13
2. Fundargerð síðasta fundar lögð fram og samþykkt.
3. Skóladagatal næsta kennsluárs lagt fram og samþykkt án athugasemda.
4. Kennsla og starfsmannamál komandi kennsluárs, áætlun. Aðalbjörn fór yfir áætlun næsta vetrar og starfsmannahald. Fyrirkomulag kennslu mun verða með sama sniði og á yfirstandandi skólaári. Meiri þörf verður fyrir stuðning og sérkennslu næsta vetur. Útlit er fyrir að nemendur verði fleiri næsta vetur en mörg undangengin ár. Skólinn mun eingöngu verða skipaður réttindakennurum næsta vetur með einni undantekningu þó.
5. Önnur mál. Þar sem þetta var síðasti fundur þessarar nefndar þakkaði nefndarfólk samstarf.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 12.34
Halldóra Andrésdóttir ritaði fundargerð