Fundargerð hreppsnefndar 10. júní 2010

11.06 2010 - Föstudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 10. júní 2010 kl. 16:00 í félagsheimilinu Miklagarði.

 

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Halldóra S. Árnadóttir, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.

 

Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

 

Dagskrá:

 

1. Mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 20. maí 2010 sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 20. maí sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

 

2. Mál  Bréf Orkustofnunar frá 17. maí sl., varðandi umsögn um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi.

Lagt fram  bréf Orkustofnunar frá 17. maí sl., þar sem óskað er umsagnar Vopnafjarðarhrepps um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum í sveitarfélaginu.

Vopnafjarðarhreppur hefur yfir farið erindi Orkustofnunar og umsókn Platina Resources Ltd. um leyfi til rannsókna á gulli og öðrum málmum á umráðasvæði sveitarfélagsins.

Lögð fram svofelld umsögn:

 „Vopnafjarðarhreppur sér ekkert því til fyrirstöðu að rannsóknir af þessum toga fari fram í sveitarfélaginu, enda verði þess gætt að taka fullt tillit til friðlýstra svæða og/ eða annarra svæða sem hafa sérstakt náttúrugildi.

Jafnframt er rétt og eðlilegt að leitin sé gerð í fullu samráði við sveitarstjórn og viðkomandi landeigendur, þegar ákveðið hefur verið hvernig staðið verður að henni  innan marka Vopnafjarðarhrepps.“

Að afloknum umræðum var fyrirliggjandi tillaga að umsögn síðan samþykkt samhljóða.

 

3. Mál. Bréf sýslumannsins á Seyðisfirði frá 31. maí sl., varðandi rekstrarleyfi fyrir gististað að Síreksstöðum.

Bréf sýslumanns tekið fyrir viðvíkjandi umsögn um rekstrarleyfið og eftirfarandi umsögn samþykkt samhljóða:  „Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps sér ekkert því til fyrirstöðu að umbeðið leyfi verði veitt.  Slíkt leyfi uppfyllir skilyrði um staðsetningu og opnunartíma innan sveitarfélagsins.“

 

4. Mál. Þorbrandsstaðir, leiga.   Áður tekið fyrir á fundum hreppsnefndar 18. feb. sl. og 20. maí sl. Vék Guðrún Anna af fundi undir þessum lið.

 

Lögð fram auglýsing, vegna málsins og bréf Sigurjóns Haukssonar, þar sem óskað er eftir því að taka jörðina Þorbrandsstaði á leigu á grundvelli auglýsingar.  Jafnframt lögð fram drög að leigusamningi, þar sem m.a. er tekið fram að jörðin verður ekki leigð á grundvelli ábúðarlaga nr. 80/2004, heldur skuli gilda um réttarsamband aðila húsaleigulög.   Ennfremur  er í drögunum tekið á því að tilskilin hlunnindi fylgja ekki leigunni, svo sem laxveiðihlunnindi, lönd sem tekin hafa verið frá vegna skógræktar o.fl.

 

Lögð fram svofelld tillaga að afgreiðslu málsins: „Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að leigja Sigurjóni Haukssyni jarðirnar Þorbrandsstaðir 1 og 2, Vopnafirði á grundvelli framlagðra gagna.   Leigutími er 5 ár tímabundinn og leiga á mánuði 75.000 kr.  Verði jörðin leigð áfram að þessum tíma liðnum hefur leigutaki forleigurétt óski hann þess.   Jafnframt er leigutaka ljóst að komi til sölu á jörðinni er heimilt að segja leigunni upp með umsömdum fyrirvara.

Við upphaf leigutíma skal gerð úttekt á hinu leigða að viðstöddum fulltrúum beggja aðila.   Heimilt er leigutaka að gera endurbætur á íbúðarhúsi í samráði við eiganda.   Kostnaður vegna þeirra endurbóta gangi á móti leigugreiðslum til samræmis við sérstakt samkomulag sem gert verður þar um.

Kostnaður vegna gerðar leigusamnings og úttektar  skiptist jafnt milli leigusala og leigukaupa.“

Að afloknum allmiklum umræðum þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum var fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

Sveitarstjóra falið að ganga frá endanlegum leigusamningi og nauðsynlegum skjölum í þessu sambandi.

 

5. Mál Ýmis bréf og erindi

 

a)      Bréf SSA frá 23. maí sl., varðandi stefnumótandi byggðaáætlun 2010-2013

Lagt fram til kynningar.

b)      Fundargerð Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 4. maí sl.

Lögð fram til kynningar.

 

Að svo búnu þakkaði Aðalbjörn, oddviti, nefndarfólki samfylgdina á umliðnum 4 árum en komið væri að ferðalokum. Björn kvaddi sér hljóðs og vildi þakka fyrir þau 4 ár sem hann hefði setið í hreppsnefnd, sagði þetta hafa verið afar ánægjulegan tíma með góðu fólki og gefandi tíma.

Oddviti þakkaði orð Björns og sagði komið að sérstökum tímamótum fyrir mörg þeirra, sjálfur væri hann að hverfa af vettvangi eftir langa veru í sveitarstjórn. Þakkaði fyrir það aðhald sem minnihlutinn hefði sannarlega sýnt en ekki síður þá samstöðu sem aðilar hafi sýnt þegar á hefur reynt. Samstarfið hefði farið batnandi á tímabilinu en minnihlutinn ávallt nauðsynlegur svo aðhalds sé gætt – Óskaði oddviti nefndarfólki síðan alls hins besta og þakkaði fyrir sig en á sl. ári var hann í fyrsta sinn kosinn oddviti af öllum nefndarmönnum, sem væru prýðisgóð endalok ferilsins!

Anna Pála vildi þakka fyrir ánægjulegan tíma og þakkaði fyrir samfylgdina. Ólafur gerir það ennfremur.   Sveitarstjóra vildi hann ennfremur þakka.

Oddviti tók síðan til máls og þakkaði Þorsteini sveitarstjóra gott samstarf á liðnum árum..   Fundarritari fékk ennfremur sinn skerf af þökkunum.

Að lokum tók Þorsteinn til máls, kvaðst hafa haft mikla ánægju af samstarfinu, þakkaði hann hreppsnefndinni allri fyrir góða vinnu og vonast hann eftir miklum samskiptum við alla til framtíðar þó allir nema einn hverfi af vettvangi hreppsnefndar.

Guðrún Anna vildi einnig þakka samstarfið, meiriháttar skemmtilegt og þakkar reynsluboltunum fyrir þann lærdóm sem hún hefur af þeim dregið – Halldóra og Þórdís þökkuðu ennfremur fyrir samstarfið.

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:10





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir