Hreppsnefndarfundur var haldinn þriðjudaginn 22. júní 2010 kl. 16:00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar: Þórunn Egilsdóttir, Bárður Jónasson, Fjóla Dögg Valsdóttir, Björn G. Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir og Guðrún Anna Guðnadóttir.
Jafnframt mættur Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Guðrún Anna Guðnadóttir, sem er sá kjörni fulltrúi sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn, setti fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar og bauð nýkjörna sveitarstjórnarmenn velkomna til starfa. Óvenju margir setjast nú í sveitarstjórn í fyrsta sinn.
Að svo búnu var gengið til dagskrár.
1. Mál. Bréf kjörstjórnar Vopnafjarðarhrepps frá 7. júní sl.
Lagt fram bréf kjörstjórnar Vopnafjarðarhrepps frá 7. júní sl., en þar kemur fram að:“ Í sveitarstjórnarkosningum laugardaginn 29. maí 2010 voru fjórir listar í framboði. B-listi Framsóknarflokks og óháðara, D-listi Sjálfstæðisfélags Vopnafjarðar, K-listi Listi félagshyggjufólks á Vopnafirði og N-listi Nýs Afls. Á kjörskrá í Vopnafjarðarhreppi voru 525 kjósendur og kusu 88 %. Úrslit kosninganna urðu þannig að B-listinn fékk 172 atkvæði og 3 fulltrúa kjörna. D-listi 59 atkvæði og 1 fulltrúa kjörinn. K-listinn 160 atkvæði og 2 fulltrúa kjörna. N-listinn 63 atkvæði og 1 fulltrúa kjörinn.
Auðir og ógildir seðlar voru 8.
Fulltrúar fyrir hvern lista eru sem hér segir:
B-listi Framsóknarflokks og óháðara Vopnafirði
Aðalmenn: Þórunn Egilsdóttir, Bárður Jónasdóttir, Fjóla Dögg Valsdóttir
Varamenn: Hafþór Róbertsson, Sigríður Bragadóttir, Arnar G. Magnússon
D-listi Sjálfstæðisfélags Vopnafjarðar
Aðalmaður: Björn G. Hreinsson
Varamaður: Ásrún Jörgensdóttir
K-listi, Listi félagshyggjufólks á Vopnafirði
Aðalmenn: Ólafur K. Ármannsson, Sigríður Konráðsdóttir
Varamenn: Eyjólfur Sigurðsson, Einar B. Kristbergsson
N-listi Nýs Afls
Aðalmaður: Guðrún Anna Guðnadóttir
Varamaður: Kristján E. Guðjónsson
2. Mál. Kosning oddvita til eins árs.
Gengið var til kosninga um oddvita sveitarstjórnar til eins árs. Tillaga kom fram um Þórunni Egilsdóttur. Engar aðrar tillögur komu fram.
Eyjólfur Sigurðsson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir atkvæði fulltrúa minnihlutans með svofelldri bókun:
„Við myndun meirihluta í sveitarstjórn kom fram vilji til samstarfs allra framboða, en ekkert samráð verið haft við undirrituð, þrátt fyrir yfirlýsingar frambjóðenda Framsóknarfélags Vopnafjarðar og óháðra um gott samstarf í síðustu sveitarstjórn Að okkar mati er vilji kjósenda til áframhaldandi samstarfs en 72 % kusu þessi framboð, af þeim ástæðum höfum við ákveðið að sitja hjá í kosningu oddvita og varaoddvita, að þessu sinni.
Frambjóðendur K-listans“
Eyjólfur Sigurðsson (sign)
Sigríður Konráðsdóttir (sign)
Fyrirliggjandi tillaga var síðan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum tveir sátu hjá.
Nýkjörinn oddviti tók síðan við fundarstjórn af aldursforseta Guðrúnu Önnu Guðnadóttur
3. Mál. Kosning varaoddvita til eins árs.
Gengið var til kosninga um varaoddvita sveitarstjórnar. Tillaga kom fram um Guðrúnu Önnu Guðnadóttur, sem varaoddvita. Engar aðrar tillögur komu fram.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt með 5 atkvæðum og 2 sátu hjá.
4. Mál. Bréf Ólafs Ármannssonar, þar sem hann óskar eftir lausn frá störfum í sveitarstjórn.
Lagt fram bréf Ólafs K. Ármannssonar nýkjörins hreppsnefndarmanns, fyrir K-listann, dags. 14. júní sl., þar sem hann óskar, af persónulegum ástæðum, eftir að fá lausn frá setu í sveitarstjórn skv. 34. gr. sveitarstjórnarlaga út nýbyrjað kjörtímabil 2010-2014. Jafnframt er þess óskað að þriðji maður á lista K-listans, Eyjólfur Sigurðsson, taki sæti hans í hreppsnefndinni.
Eyjólfur Sigurðsson vék af fundi við umfjöllun þessa liðar.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi bréf, þar sem gerð var nánari grein fyrir málinu og fyrirspurnum svarað.
Að því loknu var fyrirliggjandi beiðni Ólafs Ármannssonar um lausn frá störfum í sveitarstjórn kjörtímabilið 2010-2014 samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum.
5. Mál. Ráðning sveitarstjóra.
Þorsteinn Steinsson vék af fundi undir þessu máli.
Oddviti gerði grein fyrir drögum að ráðningasamningi við Þorstein Steinsson. Lagði oddviti síðan fram svofellda tillögu: “Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að ráða Þorstein Steinsson í starf sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps kjörtímabilið 2010-2014 og felur oddvita að undirrita ráðningarsamning við hann.“
Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
6. Mál. Kosning aðal- og varafulltrúa í eftirtaldar nefndir:
Fram kom tillaga um aðal- og varamenn í eftirtaldar nefndir:
Skipulags- og bygginganefnd:
Aðalmenn:
Hrund Snorradóttir
Baldur Kjartansson
Þráinn Hjálmarsson
Jóhann L. Einarsson
Baldur Helgi Friðriksson
Hilmar Jósefsson
Ingólfur Arason
Varamenn:
Brynjar Joensen
Ari Hallgrímsson
Árni Magnússon
Sigurður Björnsson
Ari Sigurjónsson
Björgvin Hreinsson
Halldór Georgsson
Fræðslunefnd:
Aðalmenn:
Gísli Sigmarsson
Haraldur Jónsson
Signý Björk Kristjánsdóttir
Þórdís Sumarliðadóttir
Helga Jakobsdóttir
Varamenn:
Magni Hjálmarsson
Einar Kristbergsson
Arnar Geir Magnússon
Guðrún Stefánsdóttir
Kristín Hrönn Reynisdóttir
Hafnarnefnd:
Aðalmenn:
Hafþór Róbertsson
Agnar Karl Árnason
Jörgen Sverrisson
Hjörtur Davíðsson
Þorsteinn Halldórsson
Varamenn:
Magni Hjálmarsson
Emil Erlingsson
Arnar Már Ellertsson
Heiðar Kristbergsson
Halldór Gunnar Jónasson
Húsnæðisnefnd:
Aðalmenn:
Hrafnhildur Ævarsdóttir
Silvía Björk Kristjánsdóttir
Halldóra S. Árnadóttir
Hafrún Róbertsdóttir
Ásrún Jörgensdóttir
Varamenn:
Pétur Valdimar Jónsson
Sandra Konráðsdóttir
Ólöf Helgadóttir
Anna Pála Víglundsdóttir
Erla Runólfsdóttir
Landbúnaðarnefnd:
Aðalmenn:
Friðbjörn Haukur Guðmundsson
Jóhann Marvinsson
Helgi Sigurðsson
Svanur Arthúrsson
Gauti Halldórsson
Ingvar Eðvarðsson
Karl Steingrímsson
Varamenn:
Valur Guðmundsson
Bragi Vagnsson
Sigríður Bragadóttir
Erla Alfreðsdóttir
Sigurjón Haukur Hauksson
Guðjón Jósefsson
Sigþór Þorgrímsson
Bókasafns –og menningarmálanefnd:
Aðalmenn:
Hreiðar Geirsson
Einar Ólafur Einarsson
Jósep Jósepsson
Arnar Ingólfsson
Sigríður Jóhannesdóttir
Varamenn:
Harpa Hannesdóttir
Elín Dögg Methúsalemsdóttir
Halldóra S. Árnadóttir
Linda Björk Stefánsdóttir
Hjálmar Björgólfsson
Atvinnumálanefnd:
Aðalmenn:
Helgi Þorsteinsson
Guðrún Stefánsdóttir
Berghildur Fanney Hauksdóttir
Sigurður Björnsson
Björn Halldórsson
Varamenn:
Jón Sigurðsson
Emil Erlingsson
Magnús Róbertsson
Guðmundur Wiium
Skúli Þórðarson
Æskulýðs- og íþróttanefnd:
Aðalmenn:
Arnar Geir Magnússon
Einar Björn Kristbergsson
Ester Rósa Halldórsdóttir
Linda Björk Stefánsdóttir
Júlíanna Ólafsdóttir
Varamenn:
Guðrún Sveinsdóttir
Símon Svavarsson
Petra Sif Björnsdóttir
Aðalbjörn Björnsson
Rannveig Ólafsdóttir
Jafnréttisnefnd:
Aðalmenn:
Höskuldur Haraldsson
Dagný Sigurjónsdóttir
Sara Jenkins
Ása Sigurðardóttir
Ágústa Þorkelsdóttir
Varamenn:
Svanhildur Ingibjörnsdóttir
Víðir Davíðsson
Sigmar Búi Sigþórsson
Kristrún Pálsdóttir
Auður Jónsdóttir
Umhverfisnefnd:
Aðalmenn:
Brynjar Joensen
Jóhann Már Róbertsson
Hrafnhildur Helgadóttir
Margrét Arthúrsdóttir
Ásrún Jörgensdóttir
Varamenn:
Kristín Þóra Jóhönnudóttir
Hrönn Róbertsdóttir
Heiðbjört Antonsdóttir
Svava Birna Stefánsdóttir
Emma Tryggvadóttir
Kjörstjórn
Aðalmenn:
Baldur Kjartansson
Hrafnhildur Helgadóttir
Svanborg Víglundsdóttir
Varamenn:
Birna Einarsdóttir
Reynir Árnason
Inga María Ingadóttir
Ekki komu fram aðrar tillögur um nefndarskipan.
Oddviti gerði grein fyrir fyrirliggjandi tillögum um nefndarskipan aðal – og varamanna í ofangreindar nefndir. Í máli oddvita kom m.a. fram að hann kallaði eftir góðri samvinnu allra flokka í þeirri vinnu sem framundan er í nýrri sveitarstjórn. Ljóst væri að mikilvægt væri að vinna vel saman að því að gæta hagsmuna sveitarfélagsins sem best og með þeim hætti sjá til þess að þjónusta við íbúa og fyrirtæki yrði eins góð og frekast verður kosið á hverjum tíma.
Spurðist hann síðan fyrir um það hvort fundarmenn hefðu eitthvað við það að athuga að fyrirliggjandi tillaga væri borin upp til atkvæða í einu lagi. Svo var ekki.
Fyrirliggjandi tillaga um nefndarskipan var síðan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
Fulltrúar Vopnafjarðarhrepps í öðrum nefndum og ráðum en kosið hefur verið í hér að ofan eru gildandi fulltrúar Vopnafjarðarhrepps þar til annað er ákveðið.
Undir þessum lið lýsti oddviti nauðsyn þess að kjósa fulltrúa Vopnafjarðarhrepps í sameiginlega barnaverndar -og félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs. Tillaga kom fram um Halldóru S. Árnadóttur, sem fulltrúa Vopnafjarðarhrepps.
Eyjólfur kvaddi sér hljóðs undir þessum lið og taldi erfitt að greiða atkvæði með þessu þar sem þessi dagskrárliður hefði ekki verið í útsendum gögnum.
Fram kom tillaga um að fresta afgreiðslu liðarins.
Samþykkt samhljóða að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.
7. Mál. Kosning skoðunarmanna 2 aðal -og 2 til vara.
Gengið til kosninga um skoðunarmenn.
Svofelld tillaga um aðal- og vara skoðunarmenn kom fram:
Aðalmenn:
Kristján Magnússon
Haraldur Jónsson
Varamenn:
Hrund Snorradóttir
Guðbjörg Alda Sigurðardóttir
Engar aðrar tillögur bárust.
Fyrirliggjandi tillaga um aðal -og vara skoðunarmenn samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
Löggiltir endurskoðendur Vopnafjarðarhrepps eru KPMG.
8. Mál Samþykkt um stjórn Vopnafjarðarhrepps og fundarsköp hreppsnefndar og sveitarstjórnarlög.
Gildandi samþykkt um stjórn Vopnafjarðarhrepps og fundarsköp hreppsnefndar lögð fram til kynningar.
Engar breytingatillögur voru gerðar við samþykktirnar.
Jafnframt var lagt fram eintak til kynningar af sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 , ásamt áorðnum breytingum.
9. Mál. Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn.
Gerð var grein fyrir því að reynt yrði að koma á námskeiði fyrir sveitarstjórnarmenn annað hvort í gegnum Samtök sveitarfélaga á Austurlandi eða með öðrum sérstökum hætti. Áætlað er að slíkt námskeið verði haldið fljótlega eftir að sumarleyfi sveitarstjórnar líkur.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:20