Fundargerð menningarmálanefndar 28. júní 2010

02.07 2010 - Föstudagur

Fundur í Menningar – og bókasafnsnefnd var haldinn í félagsheimilinu Miklagarði kl. 10.00 á mánudaginn 28. júní 2010.

Á fundinn voru mætt Hreiðar Geirsson, Einar Ólafur Einarsson, Jósep Jósepsson, Sigríður Jóhannesdóttir og Elín Dögg Methúsalemsdóttir.

Jafnframt voru mætt Þórunn Egilsdóttir oddviti og Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri.

 

Dagskrá:

1. mál. Sveitarstjóri/Oddviti opnar fund og býður nýja nefndarmenn velkomna til starfa.

 

Sveitarstjóri og oddviti buðu fundarmenn velkomna og óskuðu nýkjörnum fulltrúum í nefndina til hamingju með kjörið og velfarnaðar í starfinu sem framundan er.

2. mál Kosning formanns

 

Gengið til kosninga um formann nefndarinnar.   Tillaga kom fram um að formaðurinn yrði Hreiðar Geirsson.   Engar aðrar tillögur komu fram.

Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt samhljóða.

3. mál Kosning varaformanns

 

Gengið til kosninga um varaformann nefndarinnar.   Tillaga kom fram um varaformaður nefndarinnar yrði Jósep Jósepsson.   Engar aðrar tillögur komu fram.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

4. mál Kosning ritara

 

Gengið til kosninga um ritara nefndarinnar.   Tillaga kom fram um að ritari nefndarinnar yrði Arnar Ingólfsson.   Engar aðrar tillögur komu fram.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

5. mál Samþykktir fyrir menningar- og bókasafnsnefnd lagðar fram og verkefni nefndarinnar rætt.

Lögð fram drög að samþykktum fyrir menningar- og bókasafnsnefnd og farið yfir helstu hlutverk nefndarinnar og starfið sem framundan er.

Fyrirliggjandi samþykktum vísað til samþykktar í sveitarstjórn.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.10.30





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir