Fundur í landbúnaðarnefnd var haldinn í félagsheimilinu Miklagarði kl. 15.00 á mánudaginn 28. júní 2010.
Á fundinn voru mætt Friðbjörn Haukur Guðmundsson, Jóhann Marvinsson, Helgi Sigurðsson, Gauti Halldórsson, Ingvar Eðvarðsson, Valur Guðmundsson, Erla Alfreðsdóttir og Sigurþór Þorgrímsson. Jafnframt voru mætt Þórunn Egilsdóttir, oddviti og Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. mál. Sveitarstjóri/Oddviti opnar fund og býður nýja nefndarmenn velkomna til starfa.
Sveitarstjóri og oddviti buðu fundarmenn velkomna og óskuðu nýkjörnum fulltrúum nefndarinnar til hamingju með kjörið og velfarnaðar í starfinu sem framundan er.
2. mál Kosning formanns
Gengið til kosninga um formann nefndarinnar. Tillaga kom fram um Friðbjörn Hauk Guðmundsson, sem formann. Engar aðrar tillögur komu fram.
Fyrirliggjandi tillaga um Friðbjörn sem formann samþykkt samhljóða.
3. mál Kosning varaformanns
Gengið til kosninga um varaformann. Tillaga kom fram um Gauta Halldórsson, sem varaformann. Engar aðrar tillögur komu fram.
Fyrirliggjandi tillaga síðan samþykkt samhljóða
4. mál Kosning ritara
Gengið til kosninga um ritara. Fram kom tillaga um Karl Steingrímsson sem ritara nefndarinnar. Aðrar tillögur komu ekki fram.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
5. mál Samþykktir fyrir Landbúnaðarnefnd lagðar fram og verkefni nefndarinnar rætt.
Lögð fram drög að samþykktum fyrir landbúnaðarnefnd, farið yfir þær og helstu verkefni nefndarinnar.
Fyrirliggjandi samþykktum vísað til samþykktar í sveitarstjórn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15.45