Fundargerð fræðslunefndar 28. júní 2010

02.07 2010 - Föstudagur

Fundur Fræðslunefndar, haldinn í Miklagarði, mánudaginn 28. júní 2010 kl. 11.

Mætt: Gísli Sigmarsson, Haraldur Jónsson, Signý Björk Kristjánsdóttir, Þórdís Sumarliðadóttir, Helga Jakobsdóttir, Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Þórunn Egilsdóttir oddviti.

1.      Sveitarstjóri/oddviti opnar fund og býður nýja nefndarmenn velkomna til starfa.

Þorsteinn setti fundinn og bauð nefndarmenn velkomna til starfa.  Þórunn tók undir hans  orð og áréttaði mikilvægi fræðslunefndar.

2.      Kosning formanns.

Tillaga um Gísla Sigmarsson og var hún samþykkt samhljóða.

3.      Kosning varaformanns.

Tillaga um Signýju Björk Kristjánsdóttur og var hún samþykkt samhljóða.

4.      Kosning ritara.

Tillaga um Helgu Jakobsdóttur og var hún samþykkt samhljóða.

5.      Samþykktir fyrir fræðslunefnd lagðar fram og verkefni nefndarinnar rætt.

Hlutverk fræðslunefndar kynnt lítillega og rætt um fyrirkomulag funda og annað slíkt. Að því loknu viku sveitarstjóri og oddviti af fundi.

Fundarstaður ákveðinn í grunnskólanum, formanni falið að ræða við skólastjóra um fundartíma.  Almenn umræða um störf fræðslunefndar, fundað ca einu sinni í mánuði.

Fleira ekki, fundi slitið kl. 11.45

 

Helga Jakobsdóttir ritari.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir