Fundargerð hreppsnefndar 06. júlí 2010

08.07 2010 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur var haldinn þriðjudaginn 6. júlí 2010
 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Bárður Jónasson, Fjóla Dögg Valsdóttir, Björn G. Gunnarson, Eyjólfur Sigurðsson, Einar Björn Kristbergsson og Guðrún Anna Guðandóttir.

Jafnframt var mættur sveitastjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

Í upphafi fundar óskaði oddviti eftir því að taka á dagskrá erindi SSA vegna fjallskila og erindi varðandi minnisvarða við Þorbrandsstaði.  Mál þessi verða tekin upp undir 16. og 17. máli á dagskránni.  Fundarmenn samþykktu þetta.

 

Síðan var gengið til dagskrár.

1. Mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 22. júní sl.

 

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 22. júní sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. Mál  Fundargerð Skipulags- og bygginganefndar frá 28. júní sl.

 

Lögð fram fundargerð skipulags og byggingarnefndar frá 28. júní sl.    Jafnframt lögð fram samþykkt fyrir skipulags -og bygginganefnd, sem lögð hefur verið fyrir nefndina til kynningar.

Hreppsnefnd staðfestir fyrir sitt leyti samþykktir fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

3. Mál. Fundargerð fræðslunefndar frá 28. júní sl.

 

Fundargerð fræðslunefndar frá 28. júní lögð fram til kynningar.   Jafnframt lögð fram samþykkt fyrir fræðslunefnd sem kynnt hefur verið í nefndinni.

Hreppsnefnd staðfestir samþykktina fyrir sitt leyti.

4. Mál. Fundargerð Landbúnaðarnefndar frá 28. júní sl.

 

Fundargerð landbúnaðarnefndar frá 28. júní sl., lögð fram til kynningar.   Jafnframt lögð fram samþykkt fyrir nefndina, sem kynnt hefur verið í nefndinni.

Hreppsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti samþykktir fyrir nefndina.

 

5. Mál. Fundargerð Menningar- og bókasafnsnefndar frá 28. júní sl.

 

Lögð fram fundargerð menningar -og bókasafnsnefndar frá 28. júní sl.   Jafnframt lögð fram samþykkt fyrir menningarmála- og bókasafnsnefnd, sem kynnt hefur verið í nefndinni.   Hreppsnefnd staðfestir fyrirliggjandi samþykktir.

 

6. Mál. Kosning fulltrúa í sameiginlega barnavernd- og félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs.

 

Kjósa þarf fulltrúa Vopnafjarðarhrepps í sameiginlega barnaverndar- og félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs.   Oddviti gerði grein fyrir málinu, en samkvæmt samningi á Vopnafjarðarhreppur aðalfulltrúa í nefndinni.

Tillaga lá fyrir fundinum um að Halldóra Sigríður Árnadóttir verði fulltrúi Vopnafjarðarhrepps í nefndinni

Eyjólfur Sigurðsson kvaddi sér hljóðs og bar upp tillögu  um að Anna Pála Víglundsdóttir yrði fulltrúi sveitarfélagsins í nefndinni.

Síðan var gengið til atkvæða um fyrirliggjandi tillögur.  

Tillaga um Önnu Pálu felld með 5 atkvæðum gegn 2 atkvæðum.

Tillaga um Halldóru Sigríði samþykkt með 5 atkvæðum, 2 sátu hjá.

.

7. Mál. Bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga dags. 2. júní sl., varðandi kjör fulltrúa á landsþing sambandsins; 1 aðalfulltrúi og 1 til vara.

 

Lagt fram bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga varðandi kjör fulltrúa á landsþing Sambandsins, sem haldinn verður í lok september á Akureyri.   Tillaga kom fram um að Þórunn Egilsdóttir verði aðalmaður á fundinn og varamaður Guðrún Anna Guðnadóttir.

Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.

 

8. Mál Aðalfundur SSA-  Kosning fulltrúa á aðalfund SSA 3 aðal og 3 til vara

 

Aðalfundur SSA árið 2010  verður haldinn á Breiðdalsvík  dagana  24.  og 25. september.
Tekin fyrir kosning fulltrúa á aðalfund SSA, sem haldinn verður á Breiðdalsvík  dagana 24.-25. september nk.
Fram kom svofelld tillaga um aðal- og varamenn:
„Aðalmenn: Þórunn Egilsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Sigríður Konráðsdóttir og varamenn: Björn G. Hreinsson, Bárður Jónasson og Eyjólfur Sigurðsson.“
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

 

9. Mál. Endurskoðun samþykkta um hunda og kattahald í Vopnafirði.-Fyrri umræða.

 

Lögð fram drög að samþykktum um hunda- og kattahald, sem unnið er sameiginlega að fyrir sveitarfélögin Seyðisfjörð, Fljótsdalshérað, Fjarðabyggð og Vopnafjarðarhrepp.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi drögum, sem taka enn betur á ýmsum málum er lúta að hunda- og kattahaldi en fyrri samþykktir.   Lagði hann til að samþykktunum yrði vísað til síðari umræðu.

Jafnframt gerði hann grein fyrir gjaldskrá sem notuð er í þessum málaflokki og hvað er innifalið í henni.

Tillaga sveitarstjóra samþykkt samhljóða.

 

10. Mál Bréf jafnréttisstofu frá 9. júní sl., varðandi skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum.

 

Lagt fram bréf Jafnréttisstofu frá 9. júní sl., varðandi skyldur sveitarfélaga skv. jafnréttislögum.

Samþykkt að vísa erindinu til Jafnréttisnefndar.

 

11. Mál. Bréf Sóknarprests Vopnfirðinga dags. 8. júní sl., þar sem sótt er um styrk vegna fyrirhugaðs leikjanámskeiðs fyrir 6-9 ára börn á Vopnafirði.

 

Lagt fram bréf sóknarprests Vopnfirðinga varðandi styrk til leikjanámskeiðs fyrir 6-9 ára börn sem fyrirhugð er að halda 16.-20. ágúst nk. 

Samþykkt að vísa erindinu til umsagnar í æskulýðs og íþróttanefnd.

 

 

 

 

12. Mál. Bréf Bjarneyjar G. Jónsdóttur, dags. 28. júní sl., varðandi beiðni um útiblakvöll.

 

Lagt fram bréf Bjarneyjar Jónsdóttur, dags. 28. júní sl., varðandi heimild til að setja upp blakvöll á tilteknum stað milli Lónabrautar og Fagrahjalla og/eða á skólalóð.

Hreppsnefnd telur hugmyndir um blakvöll sem fram koma í bréfinu áhugaverðar.

Óskað er eftir að bréfritari ásamt starfsmanni byggingarfulltrúa kanni með heppilegustu staðsetningu á vellinum.

Erindinu vísað til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd og skipulags og byggingarnefnd.

 

13. Mál Bréf Zbigniew og Teresu Zuchowicz, dags. 30. júní sl., þar sem þau segja upp starfi sínu sem tólistarskólakennarar við Tónlistarskóla Vopnafjarðar.

 

Lagt fram bréf dags. 30. júní sl., þar sem Zbigniew og Teresa Zuchowicz segja störfum sínum lausum við Tónlistarskólann.

Gerð var grein fyrir málinu og kom fram að viðkomandi hafa einnig sagt starfi sínu lausu sem organisti hjá Hofs- og Vopnafjarðarsókn.

Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að vísa málinu til umfjöllunar í fræðslunefnd með það í huga að auglýsa í stöðurnar og að skoðað verði hvort heppilegt sé að gera það í samvinnu við Vopnafjarðar- og Hofssókn.

 

 

14. Mál. Endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

 

Lögð fram fréttatilkynning starfshóps um endurskoðun laga og reglugerðarákvæða um Jöfnunarsjóð Sveitarfélaga, dags. 25. júní sl.   Jafnframt lögð fram samantekt um heildarendurskoðun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga unnin af Flosa Eiríkssyni formanni starfshópsins.

Gerð var grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og þeim helstu breytingum sem tillögur hópsins hafa í för með sér verði þær nýttar til úthlutunar framlaga úr sjóðnum í framtíðinni.

Ljóst er að nýjar reglur valda því að talsverðar tilfærslur verða milli sveitarfélaga á framlögum frá gildandi reglum.   Í gögnunum kemur ekki fram hvernig þær tilfærslur verða milli mismunandi sveitarfélaga.  Séu borin saman framlög skv. nýjum reglum,  við framlög samkvæmt  gildandi reglum kemur skýrt fram að framlag á hvern íbúa eykst á Vesturlandi, Vestfjörðum og Suðurlandi. Annarsstaðar virðist framlagið nánast vera eins, nema á Austurlandi, þar sem framlag á íbúa minnkar áberandi.

Breytingar þær sem nefndin leggur til eru talsvert viðamiklar og erfitt að átta sig á þeim í heild án þess að hvert sveitarfélag fyrir sig sé reiknað fyrir og eftir breytingar.   Eitt er þó kristaltært að komi ekki til aukið framlag inn í Jöfnunarsjóðinn mun framlag hans aukast hjá sumum sveitarfélögum á kostnað annarra.

Talsverðar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn og mikilvægi þess að framlög úr Jöfnunarsjóði yrðu ekki lægri hlutfallslega en þau hafa verið fram að þessu.

Að því loknu var lögð fram svofelld bókun:

Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps vill koma því á framfæri við ráðherra sveitarstjórnarmála að hann láti skoða vel áhrif, breytinga á úthlutunarreglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, á einstök sveitarfélög áður en ákveðið verður að vinna eftir þessum nýju reglum og óskar eftir því að hann komi á kynningarfundum í landshlutunum þar sem áhrifin verði kynnt.“

 

Hreppsnefnd samþykkti fyrirliggjandi bókun samhljóða.

 

15. mál. Tilboð í lyftu í Vopnafjarðarskóla frá Héðinn Schindler lyftur ehf. og Kone ehf.

Unnið hefur verið að því að kanna möguleika á því að setja upp lyftu í eldri hluta grunnskólans á Vopnafirði.   Í því sambandi hefur verið kallað eftir tilboðum í slíka lyftu.   Tilboð bárust frá Héðni Schindler og Kone og voru þau lögð fram og kynnt á fundinum.  Tilboð bárust frá hvoru fyrirtæki í tvær stærðir og hljóðuðu tilboðin eftir flokkum svo:

a)      Schindler,

minni               3.820 þús. kr.

stærri               4.346

 

b)      Kone

Minni              3.662

Stærri              4.240

Lögð fram umsögn Þorsteins Geirharðssonar varðandi fyrirliggjandi tilboð í lyftu.   Samkvæmt henni mælir hann með að gengið verði til samninga um standard stærð af Kone lyftu, sem hann metur heppilegasta með tilliti til gæða og verðs.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að ganga frá samningi um kaup á lyftu frá Kone til samræmis við tillögu arkitekts.

 

16. Mál. Erindi SSA frá því í júní, varðandi fjallskil.

 

Í erindinu er óskað eftir samþykki Vopnafjarðarhrepps á breytingu er lýtur að því að Skeggjastaðahreppur tilheyri fjallskilasamþykkt fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að vestari mörkum Vopnafjarðar.

 

Að höfðu samráði við landbúnaðarnefnd gerir hreppsnefnd ekki athugasemd við umgetna breytingu.

 

17. Mál.   Minnisvarði við Þorbrandsstaði

 

Lagt fram bréf Baldurs Hallgrímssonar f.h. áhugahóps um að setja upp minnisvarða í landi Þorbrandsstaða til minningar um börnin þrjú sem fórust þar fyrir rétt um 100 árum.

Hreppsnefnd tekur vel í þessar hugmyndir en vísar erindinu til umsagnar í Skipulags- og byggingarnefnd.

 

18. Mál ýmis bréf og erindi

a)   Fundargerð heilbrigðisnefndar Austurlands frá 28. júní sl., ásamt afriti af bréfi.

Lagt fram til kynningar

 

19. Mál. Sumarleyfi hreppsnefndar

Oddviti gerði grein fyrir því að framundan væri sumarleyfi hreppsnefndar og ráðgert væri að fyrsti fundur eftir sumarleyfi verði væntanlega 19. ágúst. nk.

Að svo mæltu óskaði oddviti fundarmönnum gleðilegs sumars.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.30

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir