Fundur í Hafnarnefnd var haldinn í félagsheimilinu Miklagarði kl. 11.00 á mánudaginn 12. júlí nk.
Á fundinn voru mættir Hafþór Róbertsson, Þorsteinn Halldórsson og Agnar Karl Árnason. Jafnframt voru mætt þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð og Þórunn Egilsdóttir, oddviti sveitarstjórnar.
Dagskrá:
1. mál. Sveitarstjóri/Oddviti opnar fund og býður nýja nefndarmenn velkomna til starfa.
Sveitarstjóri og oddviti buðu nýja hafnarnefndarmenn velkomna til starfa og óskuðu þeim farsældar í störfum sínum.
2. mál Kosning formanns
Gengið til kosninga um formann nefndarinnar. Tillaga kom fram um Hafþór Róbertsson, sem formann nefndarinnar. Engar aðrar tillögur komu fram.
Fyrirliggjandi tillaga um Hafþór sem formann samþykkt samhljóða.
3. mál Kosning varaformanns
Gengið til kosninga um varaformann. Tillaga kom fram um Jörgen Sverrisson, sem varaformann. Engin önnur tillaga kom fram.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
4. mál Kosning ritara
Gengið til kosninga um ritara nefndarinnar. Tillaga kom fram um Þorstein Halldórsson sem ritara. Engin önnur tillaga kom fram.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
5. mál Samþykktir fyrir hafnarnefnd
Lögð fram drög að samþykktum fyrir hafnarnefnd. Hafnarstjóri gerð grein fyrir fyrirliggjandi drögum að samþykktum og óskaði eftir að nefndarmenn færu vel yfir þau.
Samþykktunum síðan vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.
6. mál Önnur mál.
Lagt fram bréf dags. 12. Júlí 2010 frá N1 h/f þar sem fyrirtækið sækir um heimild til þess að setja niður 3.000 l birgðatank við bátasjálfsala á Ásgarði samkvæmt lýsingu og myndum sem fylgdu erindinu.
Hafnarnefnd samþykkir bráðabirgðaleyfi fyrir tankinn eins og óskað er eftir. Nákvæm staðsetning verði ákveðin í samráði við starfsmann byggingafulltrúa og hafnarvörð.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.30