Fundargerð umhverfismálanefndar 12.07.2010

13.07 2010 - Þriðjudagur

Fundur í umhverfisnefnd var haldinn í félagsheimilinu Miklagarði kl. 11.30  á mánudaginn 12. júlí  sl.

 

Á fundinn voru mætt Brynjar Joensen, Jóhann Már Róbertsson, Hrafnhildur Helgadóttir, Margrét Arthúrsdóttir og Ásrún Jörgensdóttir.

  Jafnframt voru mætt þorsteinn Steinsson og Þórunn Egilsdóttir, oddviti sveitarstjórnar.

 

 

Dagskrá:

1. mál. Sveitarstjóri/Oddviti opnar fund og býður nýja nefndarmenn velkomna til starfa.

Sveitarstjóri og oddviti buðu nýja nefndarmenn velkomna til starfa og óskuðu þeim farsældar í störfum sínum.

2. mál Kosning formanns

 

Gengið til kosninga um formann nefndarinnar.   Tillaga kom fram um Ásrúnu Jörgensdóttur, sem formann nefndarinnar.   Engar aðrar tillögur komu fram.

Fyrirliggjandi tillaga  um Ásrúnu sem formann samþykkt samhljóða.

3. mál Kosning varaformanns

 

Gengið til kosninga um varaformann.   Tillaga kom fram um Brynjar Joensen, sem varaformann.   Engin önnur tillaga kom fram.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

4. mál Kosning ritara

Gengið til kosninga um ritara nefndarinnar.   Tillaga kom fram um Hrafnhildi Helgadóttur sem ritara.   Engin önnur tillaga kom fram.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

5. mál Samþykktir fyrir Umhverfisnefnd

 

Lögð fram drög að samþykktum fyrir Umhverfisnefnd þar sem settur er upp rammi um starfsemi nefndarinnar.   Talsvert miklar umræður urðu um verksvið nefndarinnar og verkefni, sem unnið er að á þessu sviði.

Samþykkt að nefndarmenn fari vel yfir fyrirliggjandi drög að samþykktum fyrir nefndina og þeim síðan vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.

 

Að þessum umræðum loknum viku sveitarstjórinn og oddvitinn af fundi.

 

6. mál Önnur mál.

 

Miklar umræður urðu og margvísleg mál rædd.

Fleira ekki gert og fundi slitið  12:45.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir