Fundargerð fræðslunefndar 29. júlí 2010

29.07 2010 - Fimmtudagur

Fundur Fræðslunefndar, haldinn í Miklagarði, fimmtudaginn 29. júlí 2010 kl. 20.

Mætt:  Einar Björn Kristbergsson, Haraldur Jónsson, Signý Björk Kristjánsdóttir, Þórdís Sumarliðadóttir og Helga Jakobsdóttir.

Formaður setti fund og gerði grein fyrir ástæðu þess að fundurinn  væri boðaður með litlum fyrirvara.

1.      Fundargerð síðasta fundar lögð fram.

2.      Ráðning tónlistarkennara.

Auglýst hefur verið eftir skólastjóra og tónlistarkennara við tónlistarskóla Vopnafjarðar, og rann umsóknarfrestur út mánudaginn 26. júlí.  Fjórar umsóknir hafa borist.

Fræðslunefnd fór yfir umsóknirnar og eftir töluverða umræðu mælir nefndin með Kristni J. Níelssyni sem skólastjóra tónlistarskólans.  Umsóknir Stefaníu Sigurgeirsdóttur og Stephen Yates eru mjög álitlegar  en hann virðist með meiri kennsluréttindi og reynslu.

Fleira ekki , fundi slitið kl. 20.55

Helga Jakobsdóttir ritari.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir