Fundur Fræðslunefndar, haldinn í Miklagarði, fimmtudaginn 12. ágúst 2010 kl. 17.
Mætt: Gísli Sigmarsson, Haraldur Jónsson, Þórdís Sumarliðadóttir og Helga Jakobsdóttir.
Formaður setti fund og sagði frá því að Kristinn J. Níelsson hefði dregið umsókn sína, um starf tónlistarkennara við tónlistarskóla Vopnafjarðar, til baka.
Fræðslunefnd fór yfir þær umsóknir sem liggja fyrir. Eftir ýmsar bollaleggingar leggur nefndin til að Stephen Yates verði ráðinn til tónlistarskólans og auglýst verði aftur eftir kennara sem getur kennt á þau hljóðfæri sem útaf standa.
Fleira ekki , fundi slitið kl. 17.45
Helga Jakobsdóttir ritari.