Fundargerð hreppsnefndar 19. ágúst 2010

20.08 2010 - Föstudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 19. ágúst
2010 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Fundur haldinn í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fimmtudaginn 19. ágúst 2010 kl. 16.00 í félagsheimilinu  Miklagarði.  Mættir: Þórunn Egilsdóttir,  Bárður Jónasson, Fjóla Dögg Valsdóttir, Björn Gunnar Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Elfa Konráðsdóttir, og Guðrún Anna Guðnadóttir.   Jafnframt var mættur sveitarstjórinn Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð,  Oddviti setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fundarins og var síðan gengið til dagskrár:

1. Mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 6. júlí  sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 6. júlí sl.   Bent var á ritvillu í 6. tl. fundargerðarinnar „Kosning fulltrúa…“ og var hún lagfærð

 Fundargerðin var síðan samþykkt samhljóða svo breytt.

2. Mál Fundargerð hafnarnefndar frá 12. júlí sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð hafnarnefndar frá 12. júlí sl.,

3. Mál. Fundargerðir fræðslunefndar frá 29. júlí og 12. ágúst sl.

Lagðar fram fundargerðir fræðslunefndar frá 29. júní og 12. ágúst sl.

Í fundargerðunum er gerð grein fyrir ráðningarferli kennara við tónlistarskólann.   Oddviti gerði nánari grein fyrir stöðu þeirra mála varðandi ráðningarmálin.   Í máli hennar kom fram að auglýst hefði verið eftir starfskröftum í stöðurnar og á grundvelli umsókna hefði verið samþykkt að ráða aðila í skólastjórastöðuna og annan í kennarastöðu.  Sá aðili sem ákveðið hefði verið að ráða í skólastjórastöðuna hefði síðan dregið umsókn sína til baka.  Til skoðunar væri hvernig unnt væri að finna lausn mála.

 

4. Mál. Fundargerð umhverfisnefndar frá 12. júlí sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð umhverfisnefndar frá 12. júlí sl.

 

5. Mál. Fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar frá 1. júlí sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar frá 1. júlí sl.

 

6. Mál. Fundargerð atvinnumálanefndar frá 1. júlí sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð atvinnumálanefndar frá 1. júlí sl.

7. Mál. Bréf Sóknarnefnda Hofs- og Vopnafjarðar, móttekið 14. júlí sl.

Lagt fram bréf sóknarnefnda Hofs- og Vopnafjarðar, móttekið 14. júlí sl., varðandi samstarf um tónlistarmál kirknanna.

Oddviti gerði grein fyrir fundum með formönnum sóknanna, henni og sveitarstjóra, sem haldnir hafa verið til þess að ræða þessi mál.   Fram kom að nýr tónlistarskólakennari, sem verið er að ganga frá ráðningu á við skólann mun að öllum líkindum taka að sér orgelspil og þjálfun kirkjukórs sóknanna.

Sveitarstjóra og oddvita falið að ganga frá þessum málum við sóknirnar.

 

8. Mál. Bréf Orkustofnunar 3. ágúst sl., vegna athugasemda Platina Resorces Ltd. vegna umsóknar um leyfi til rannsókna og leitar á gulli og öðrum málmum á Austurlandi.

Lagt fram bréf Orkustofnunar frá 3. ágúst sl., ásamt bréfi Platina Resorces Ltd., varðandi athugasemdir fyrirtækisins vegna umsóknar um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum.   Jafnframt lögð fram umsögn Vopnafjarðarhrepps varðandi þessi mál frá júní sl.

Vopnafjarðarhreppur mun ekki gera frekari athugasemdir við leyfi til gulleitar en fram kemur í umsögn sveitarfélagsins frá 9. júní sl., enda gert ráð fyrir að leitin verði gerð í fullu samráði við sveitarstjórn og landeigendur.

Málinu vísað til kynningar í byggingar- og skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.

 

9. Mál. Bréf Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins dags. 28. júlí varðandi endurskoðun  á regluverki Jöfnunarsjóðsins, en stefnt er að því að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2011.

Lagt fram bréf Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins frá 28. júlí sl., varðandi breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs Sveitarfélaga.  Í bréfinu kemur fram að stefnt sé að því að breytingarnar taki gildi frá og með 1. janúar 2011.   Jafnframt lögð fram bókun Vopnafjarðarhrepps um þessi mál frá byrjun júlí sl.

Hreppsnefnd ítrekar fyrri bókun sína og leggur á það áherslu að flýtt verði sem kostur er útreikningum á fjárhagslegum áhrifum þessara breytinga á einstök sveitarfélög.

 

10. Starfsemi HB Granda á Vopnafirði.   Fulltrúi fyrirtækisins, Vilhjálmur Vilhjálmsson, mætir á fundinn

Á fundinn mætti Vilhjálmur Vilhjálmsson forstöðumaur uppsjávarsviðs HB Granda h/f.   Gerði hann grein fyrir starfsemi fyrirtækisins hér á Vopnafirði, það sem af er ári.   Jafnframt fór hann yfir horfur í veiðum og vinnslu það sem eftir lifir ári og horfur fyrir næsta ár.

Á fundinum var lögð fram yfirlýsing og afsökunarbeiðni frá HB- Granda varðandi grútarmengun frá fiskiðjuveri fyrirtækisins.

Vilhjálmur greindi frá þeim aðgerðum sem búið er að grípa til varðandi úrbætur í þessum efnum.  Greindi hann frá því að mikill vilji væri hjá fyrirtækinu að vera í fararbroddi hvað varðaði þessi mál og önnur er snéru að umhverfi verksmiðjunnar.  Í vinnslu væri heildarúttekt útrásarmála fyrirtækisins til þess að tryggja sem best að óhöpp af þessu tagi endurtaki sig ekki.   Verkfræðistofan Efla h/f hefur verið fengin til þessarar vinnu.  Óskaði hann eftir góðri samvinnu við sveitarstjórn í þessum efnum sem öðrum.

Svaraði hann síðan fyrirspurnum fundarmanna um ýmis mál er tengjast uppbyggingu og vinnslu fyrirtækisins hér á Vopnafirði.

Að því loknu þakkaði oddviti Vilhjálmi fyrir góða yfirferð mála og vék hann síðan af fundi.

11. Mál Ýmis bréf og erindi
a) Bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga frá 13. júlí sl., varðandi námskeið um lýðræði í sveitarfélögum.

Lagt fram til kynningar.
b) Bréf frá stofnfundi landeigenda í Vopnafirði, móttekið 11. ágúst.  Hreppsnefnd telur málið allrar athygli vert og mun fylgjast vel með framvindu mála.
c) Skólahreysti 2010, umsókn um styrk.

Lagt fram bréf móttekið 28. júlí sl., þar sem óskað er eftir styrk vegna skólahreysti 2010.   Hreppsnefnd samþykkir að styrkja málefnið um 25 þús. kr.

 

d) Bréf frá stofnun Vigdísar Finnbogadóttur varðandi styrk.

Lagt fram bréf frá stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, þar sem óskað er eftir styrk til byggingar fyrir stofnunina.

Hreppsnefnd getur ekki orðið við beiðninni að svo stöddu.

 

 

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17.45





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir