Fundur Fræðslunefndar, haldinn í Miklagarði, föstudaginn 10. september 2010 kl. 16.
Mætt: Einar Björn Kristbergsson, Gísli Sigmarsson, Signý Björk Kristjánsdóttir, Þórdís Sumarliðadóttir, Helga Jakobsdóttir og Stephen Yates nýráðinn skólastjóri tónlistarskóla Vopnafjarðar.
Formaður setti fund og Stephen Yates kynnti sig fyrir nefndarmönnum.
Farið var yfir starf tónlistarskólans veturinn 2010-2011. 35 nemendur eru skráðir í skólann, Stephen telur sig ráða við að kenna öllum en hann hefur haft samband við tónlistarkennara á Egilsstöðum sem er tilbúinn að koma ca 3svar fyrir jól og taka þá í tíma sem t.d. voru í gítarnámi. Fræðslunefnd leggur áherslu á að reynt verði áfram að fá tónlistarkennara sem kennir á strengja og blásturshljóðfæri.
Stephen hefur áhuga á að kenna tónmennt í grunnskólanum, ekki hægt að koma því við núna þar sem búið var að setja niður stundaskrár. Hann hefur einnig mikinn áhuga á að æfa barnakór og eru 20 nemendur búnir að skrá sig í kór, á bara eftir að finna tíma sem hentar fyrir æfingar.
Stephen segir að talva í tónlistarskóla sé ónýt og píanó ekki í góðu lagi, þurfi að stilla það.
Ákveðið að fundir fræðslunefndar verði framvegis í grunnskólanum.
Fleira ekki , fundi slitið kl. 16.40
Helga Jakobsdóttir ritari.