Fundargerð hreppsnefndar 07. október 2010

08.10 2010 - Föstudagur

Fundargerð hreppsnefndar 7. október 2010

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 7. október 2010 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði

Mætt: Þórunn Egilsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Hafþór Róbertsson, Guðrún Anna Guðnadóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson og Sigríður Elva Konráðsdóttir. Fundargerð ritaði Guðrún Anna Guðnadóttir. Oddviti setti fund og fundarmenn velkomna til fundarins og var síðan gengið til dagskrár.

Dagskrá

1.     mál. Fundargerð hreppnefndar frá 16. september sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 16. september sl.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

2.     mál. Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 27.sept. 2010

Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 27.sept. 2010

Oddvita vék af fundi, varaoddviti tók við fundarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

Oddviti snýr aftur til fundarstjórnar.

 

3.     mál.  Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 7. október 2010

Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 7.okt. 2010.

Nokkrar umræður um fyrirkomlag umsókna til framkvæmda.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

 

4.     mál. Breyting á deiliskipulagi hafnar- og miðsvæðis á Vopnafirði

HB Grandi óskar eftir breytingu á deiliskipulagi sem felur í sér skilgreiningu nýs byggingarreits við Hafnarbyggð 14 sem ætlað er fyrir hrognaþurrkun.

Samþykkt samhljóða að heimila sveitarstjóra að setja erindið í auglýsingaferli.

 

5.  mál.   Umsókn um húsbyggingu/framkvæmdaleyfi.

HB Grandi óskar eftir leyfi til að hefja framkvæmdir við húsbyggingu að Hafnarbyggð 14.

Samþykkt samhljóða.

 

Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 16.25





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir