Fundur fræðslunefndar, haldinn í Vopnafjarðarskóla, mánudaginn 11. október 2010 kl. 16.
Mætt: Einar Björn Kristbergsson, Gísli Sigmarsson, Þórdís Sumarliðadóttir, Helga Jakobsdóttir og Aðalbjörn Björnsson skólastjóri.
Formaður setti fund kl. 16.10
Skólastjóri lagði fram og fór yfir skóladagatal sem hafði verið kynnt fyrir fyrri fræðslunefnd og samþykkt af henni. Skólaslit eiga að verða 1. júní en gætu færst til um einn dag. Þórdís tekur fram að hún vilji að vetrarfrí verði eftir mánaðamót svo allir geti notað fríið vegna fjárhags. Gísli leggur til að settur verði inn rýmingardagur á skóladagatalið, gott fyrir nemendur, starfsfólk og ekki síst slökkviliðið.
Skólastjóri fór yfir fyrirkomulag kennslu og starfsmannamál, kennarastundum hefur fjölgað og meiri þörf er nú fyrir stuðning og sérkennslu. Einhverjar breytingar eru fyrirhugaðar á greiðslu úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga og þarf að takast á við það þegar til kemur. Við skólann er mjög mikil þjónusta með skólaakstri alveg upp í nokkrar ferðir á dag.
Mjög mikið er búið að gera í skólanum til að bæta aðgengi fatlaðra. Öll þróunarvinna í skólum er mjög dýr en bendir Aðalbjörn á að stöðugt þurfi að huga að þeirri vinnu og hægt sé að sækja um styrki t.d. til þróunarsjóðs grunnskóla. Skólinn hefur áhuga á að taka þátt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli.
Önnur mál:
Einar Björn spyr hvort auglýst hafi verið eftir öðrum tónlistarkennara. Gísli segir það í höndum sveitastjórnar.
Enn og aftur ítrekar fræðslunefnd að auglýst verði eftir öðrum tónlistarkennara.
Fleira ekki , fundi slitið kl. 17.35