Fundur hanfarnefndar Vopnafjarðarhrepps
21. október 2010, haldinn í Miklagarði kl. 14:30
Mættir til fundar: Hafþór Róbertsson, Agnar Karl Árnason, Þorsteinn Halldórsson, Hjaörtur Davíðsson og Jörgen Sverrisson (símleiðis).
Fundargerð ritaði Hafþór Róbertsson.
- mál: Fundargerð hafnarnefndar frá 06. september sl. lögð fram.
Fundargerðin rædd og samþykkt.
2. mál: HB Grandi h.f. Hafnarbyggð 12 – Umsókn um byggingarleyfi fyrir nýtt löndunarhús á athafnalóð fyrirtækisins skv. uppdráttum ASK arkitekta, dags. 24. febrúar 2010.
Áður afgreitt í skipulags- og bygginganefnd, 22.03.10, og bókað:
Gerð var gein fyrir málinu og bókað:
Skipulags- og bygginganefnd tekur jákvætt i erindið en telur eðlilegt að kalla eftir umsögn hafnarnefndar og Siglingastofnunar áður en málið er endanlega afgreitt.
Jákvæð umsögn Skipulagsstofnunar liggur þegar fyrir.
Erindið samþykkt samhljóða.
- mál: Önnur mál.
Hafnarnefnd vill minna á að laga þarf innsiglingarljós, mála polla og stiga. Ath. ennfremur með ljós í stiga.
Fleira ekki gert.