Fundargerð hreppsnefndar 18. nóvember 2010

20.11 2010 - Laugardagur

Hreppsnefndarfundur var haldinn fimmtudaginn 18. nóvember 2010 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

 

Mætt: Bárður Jónasson, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Fjóla Dögg Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir,  Sigríður Elva Konráðsdóttir og Þórunn Egilsdóttir.

 

Fundargerð ritaði Guðrún Anna Guðnadóttir

 

Dagskrá:

Oddviti bauð fundarmenn velkomna, sértaklega gest fundarins Guðlaug Erlingsson starfsmann KPMG.

 

1.       Mál. Fundargerði hreppsnefndar frá 4. nóvember sl.

Oddviti greindi frá að skólaakstursmálið sem hafði verið frestað til fundar dagsins í dag var tekið fyrir í allsherjarnefnd og samþykkt að taka það fyrir í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu á næstu fundum.           

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

2.       Mál. Árshlutareikningar janúar – september 2010. Lagðir fram til kynningar. Guðlaugur Erlingsson starfsmaður KPMG skýrði uppbyggingu reikninga og fór yfir stöðu mála. Staðan er nokkuð góð og hafði Guðlaugur orð að því að rekstur væri góður og einnig mikið aðhald í rekstri.

 

 

3.       Byggðakvóti á Vopnafirði. Finnbogi Vikar sem ætlar að kynna málið var ekki mættur á fundinn og var því samþykkt í sveitarstjórn að fresta þessu máli til síðar á fundinum í von um að Finnbogi mæti.

 

4.       Mál. Fundargerð atvinnumálanefndar frá 28. október sl. Lögð fram til kynningar.

Frestað til síðar á fundinum.

 

 

5.       Mál. Sorpmál. Bæklingur lagður fram til kynningar. Samþykkt að fresta þessu máli til síðar á fundinum.

Sveitarstjóra og oddvita falið að vinna áfram í málinu.

 

 

6.       Mál. Samband íslenskra sveitarfélaga. Bréf lagt fram til kynningar. Efni: Framhald verkefnis um hagsmunagæslu í úrgangsmálum.

Bókun:

Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir áframhaldandi þátttöku í verkefninu sem lýtur að aukinni hagsmunagæslu sveitarfélaga á sviði úrgangsmála og leggur áherslu á mikilvægi þess að gerð landsáætlunar um úrgangsmál og innleiðing nýrrar rammastilskipunar um úrgangsmál verði lokið hið fyrsta.

Samþykkt samhljóða.

Oddvita falið að ganga frá tilkynningu og bréfi til hlutaðeigenda.

 

7.       Mál. Skipulagsstofnun. Bréf varðandi ákvörðun um matskyldu – Norðausturvegur, breytt lega og ný tenging við þéttbýlið á Vopnafirði.

Lagt fram til kynningar.

 

8.       Mál. Bréf frá Hofs- og Vopnafjarðarsóknum.

Lagt fram til kynningar. Ákveðið að vísa til Æskulýðs- og íþróttanefndar.

Samþykkt samhljóða

 

9.       Mál. Stígamót, styrkbeiðni.

Nefndarmenn eru sammála um mikilvægi þessarar starfsemi en vegna aðstæðna er beiðninni hafnað. 

Samþykkt samhljóða

 

10.   Mál. Bréf frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram til kynningar.

 

11.   Mál. Ályktun frá Hollvinasamtökum Sjúkrahúss Seyðisfjarðar lögð fram til kynningar.

Sveitarstjórn fagnar og þakkar stuðning Seyðfirðingar. Oddvita falið að senda þakkarbréf.

 

5. mál tekið fyrir. Nokkrar umræður urðu um opnunartíma gámaportsins en voru fundarmenn almennt sammála um að aldrei væri hægt að gera öllum til hæfis. Einnig voru fundarmenn sammála um að þetta væri byrjunin en ekki endilega flötur sem yrði alltaf unnið eftir.  

 

3. mál: Finnbogi Vikar mætti til fundar og kynnti hugmynd sína um að Vopnfjörður, Bakkafjörður og Langanesbyggð mynduðu eitt atvinnusvæði. Vinna þyrfti að frekari samvinnu á svæðinu milli útgerðar, bolfiskvinnsla og sveitarstjórna. Þannig þarf að vinna að því að bjarga þeim verðmætum sem felast í byggðakvóta – enda réttur til þess staðfestur með lögum. Ráðherra hefur heimild til að víkja frá m.a. reglum um löndunarskyldu (tonn á móti tonni) ef útgerðir þurfa að treysta á leigumarkað til að fá kvóta á móti byggðakvóta. Samvinnan yrði fólgin í því að útgerðir lönduðu aflanum sínum til vinnslu á Bakkafirði, hvort sem landað yrði  Vopnafirði eða Bakkafirði. Þessi samvinna myndi þýða auknar tekjur fyrir Vopnafjörð og renna styrkari stoðum undir atvinnusvæðið í heild sinn.

                Sveitarstjóra og oddvita falið að vinna áfram að málinu í samvinnu við Finnboga Vikar.

                Samþykkt samhljóða.

 

4.mál.  2.mál fundargerðar atvinnumálanefndar loðnuverkefnið rætt og samþykkt að kalla eftir svörum frá formanni atvinnumálanefndar sem var staddur á fundinum. Björn Halldórsson formaður atvinnumálanefndar upplýsti fundarmenn um stöðuna.

Björn fór einnig yfir stöðu mála í loðdýraverkefninu. Oddviti lagði til að á fjárhagsáætlun verði atvinnumálanefnd ætluð ákveðin upphæð sem nota má til að vinna áfram og fylgja eftir verkefnum. Oddvita og sveitarstjóra falið að vinna í málinu í samvinnu við atvinnumálanefnd.

 

Fleira ekki rætt . Fundi slitið kl. 17:55





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir