Menningarmálanefnd 19. 7. 2010
Mættir: Arnar, Einar, Hreiðar, Sirrý, Magnús
1. Magnús fer yfir þá hluti sem menningarmálanefnd hefur haldið utan um og önnur verkefni sem menningarmálafulltrúi hefur komið að.
2. Farið yfir þá styrki sem hafa fengist auk þeirra sem ekki eru komnir enn.
3. Einu sinni á ágústkvöldi, menningarhátíð tileinkuð Jóni Múla og Jónasi Árnasonum, rædd en hana hefur menningarmálafulltrúi undirbúið. Valgeir Skagfjörð mun sjá um smiðjur fyrir unglinga á grunnskólaaldri. Á föstudeginum verður bæjargrill þar sem reynt verður að fá trúbadora til að vera með lifandi tónlist. Að öðru leyti sér þar til gerð grillnefnd um dagskrána.
Á laugardag verður hljómsveitin Park Project með tónleika eftir skemmtun smiðjukrakkanna. Tónleikarnir fyrir 18 ára og eldri. Ákveðið að skoða hvað hægt er að gera eftir tónleikana. Á sunnudag er léttmessa með KK og hefst hún klukkan 14. Kostnaður við messuna er 100 þ. kr. fyrir utan ferðir og uppihald. Áhersla á að menningarhátíðin sé lítil og þægileg, ekki of mikið útblásin.
Fleira ekki, fundi slitið
Arnar Ingólfsson, ritari