Fundargerð menningarmálanefndar 25.ágúst 2010

30.11 2010 - Þriðjudagur

Menningarmálanefnd                                                                       25. 8. 2010

Mættir: Einar, Sirrý, Hreiðar, Jósep, Arnar, Þórunn Egilsdóttir og Signý Ormarsdóttir (gestir)

 

1.       Signý kynnir Menningarráð Austurlands, stefnu þess og starfsemi. Samningur um menningarmál á Austurlandi rennur út í ár en verið er að semja við ríkið um nýjan samning. Menningarmiðstöðvar eru á fjórum stöðum á Austurlandi. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur þegar sótt um að fá hlutverk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, bókmenntir og handverk. Menningarmiðstöðvar eru ætlaðar til ráðlegginga en ekki til að sjá um starfið sjálft. Og þó, því Skaftfell, sem dæmi, er miðstöð myndlista og stendur að sýningum reglubundið og Hérað, sem miðstöð sviðslista, er ætlað að standa að leiksýningum – og gerir það leyfi húsrúm. Miðstöð tónlistar er Eskifjörður (Kirkju- og menningarmiðstöðin) og stendur hún að tónleikum nokkuð reglubundið.

 

Fjármagn kemur víða að, m.a. erlendis frá. Þetta er hægt að nýta hér eins og annars staðar ef menn eru vakandi fyrir því. Menningarráð er í alþjóðlegu samstarfi við Vesterålen í Noregi og Donegan á Írlandi.

 

2.       Signý fer yfir sitt starf og í hverju það er fólgið.

 

3.       Rætt var um hversu mörg tækifæri eru hér á Vopnafirði og að margt sé farið í gang sem þarf að vinna betur með. Menningarmálanefnd þarf að skoða sína aðkomu að þessu. Menningarmálanefnd þarf að setja sér stefnu.

 

Fleira ekki, fundi slitið
Arnar Ingólfsson, ritari





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir