Menningarmálanefnd 8. 11. 2010
Mættir: Hreiðar, Einar, Sirrý, Jósep, Arnar
1. Stefnumótun. Rætt um hvernig dagskráin skyldi sett upp fram í tímann. Ákveðið er að skoða möguleika á bíósýningum. Einar Ólafur tekur að sér að kanna þetta. Reyna á að endurvekja leikfélag og að fá leikstjóra til að hafa leiklistarnámskeið, hugsanlega í samstarfi við grunnskólann. Rætt um að fá leikverk á staðinn ef hægt er. Hreiðar hefur kynnt sér þessi mál, meðal annars rætt við leikstjóra Borgarleikhússins.
Framtíð jólaballsins rædd. Undanfarin ár hefur mæting á jólaball í Miklagarði verið döpur og síðasta ár var sérstaklega slæmt. Vilji nefndarinnar er að skoða möguleika á samstarfi við kvenfélagið Lindina.
Möguleikar á eflingu Vesturfarasafns skoðaðir. Við sjáum fyrir okkur möguleika á efstu hæð Kaupvangs. Kaffihús á Þorláksmessu rætt. Viljum hafa skemmtiatriði dreift yfir daginn til að dreifa álaginu þar sem ekki komast mjög margir í Kaupvang í einu. Rætt verður við fulltrúa 10. bekkjar til að kanna áhuga þeirra á að sjá um kaffisöluna.
Hátíðarkvöldverður, hugsanlega tengdur sjómannadegi, er eitthvað sem nefndin hefur áhuga á að verði. Verður skoðað nánar síðar. Sumarskemmtanir voru ræddar. Vilji er fyrir því að endurvekja Vopnafjarðardaga eins og þeir voru en kannski hafa þá minni í sniðum. Stefnt yrði að því að hafa þessa hátíð í júlí og lögð yrði áhersla á að ná samstarfi við félagasamtök. Einu sinni á ágústkvöldi yrði áfram með svipuðu sniði, þ.e. ein skemmtun að kvöldi. Helst á hún að vera tengd Jóni Múla og Jónasi Árnasonum. Bæjargrill yrði áfram tengt þessari hátíð.
Fleira ekki, fundi slitið
Arnar Ingólfsson, ritari