Menningarmálanefnd 17. 11. 2010
Mættir: Arnar, Jósep, Einar, Sirrý, Hreiðar, Magnús
1. Magnús fer yfir og útskýrir sitt starf fyrir nefndinni, menningarmálafulltrúi og menningarmálanefnd vinna saman, fulltrúinn situr fundi sem talin er þörf á að hann geri. Fer yfir styrki sem fengist hafa; samtals á árinu 1.525 þús. þegar allt er talið – samningur við HB Granda að upphæð 500 þús. þ. á. m. – en framlag Menningarráðs var upp á 400.000 krónur, sem er helmingur þess sem fékkst í fyrra og munar um minna. Framalag sveitarfélagsins er síðan ótalið en hefur verið í tilfellum fleiri hundruð þúsund á ári.
2. Umræðan opin. Ákveðið er að setja Vesturfarasafn í forgang og hefja vinnu í kringum það. Þá er áhugi á að skoða möguleika á bíósýningum, fá leiksýningu og leikstjóra með leiklistarnámskeið. Viljum skoða stofnun leikfélags.
Fleira ekki, fundi slitið
Arnar Ingólfsson, ritari