Fundur hreppsnefndar var haldinn fimmtudaginn 2. des. 2010 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.
Mættir voru á fundinn Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.
Jafnframt var mættur á fundinn sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 18. nóv. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 18. nóv. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt.
2. mál Fundargerðir menningarmálanefndar frá 19. júlí, 10. ágúst, 25. ágúst, 8. nóv. og 17. nóv. sl.
Lagðar fram fundargerðir menningarmálanefndar frá 19. júlí, 10 ágúst, 25. ágúst, 8. nóv. og 17. nóv. sl.
Lagt fram til kynningar.
3. mál. Álagning útsvars árið 2011, tillaga
Oddviti og sveitarstjóri gerðu grein fyrir hugmyndum um álagningu útsvars á Vopnafirði á árinu 2011, en á árinu 2010 var álagningarprósenta útsvars á Vopnafirði 13,28 %. Jafnframt voru kynnt lagaákvæði tekjustofnalaga varðandi útsvarsálagningu og sérstaklega farið yfir fyrirhugaða breytingu á tekjustofnalögunum í tengslum við yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga, en þar er miðað við að hámarksútsvar hækki um 1,2 prósentustig og að almennt tekjuskattshlutfall lækki jafnmikið á móti.
Síðan var lögð fram svofelld tillaga:
„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði 13,28 % eins og var á árinu 2010. Nái nauðsynlegar lagabreytingar fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hækkun útsvarshlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið 14,48% á árinu 2011.“
Nokkur umræða varð um fyrirliggjandi tillögu.
Tillagan síðan borin upp og samþykkt samhljóða.
4. mál. Álagning fasteignagjalda árið 2011, tillaga
Sveitarstjóri lagði fram og skýrði svofellda tillögu að álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2011. Í máli hans kom fram að fasteignamat á Vopnafirði hefur lækkað lítillega fasteignagjöld munu því lækka sem því nemur nema til komi hækkun á álagningu gjaldanna:
„Álagning fasteignagjalda 2011 verður ákveðin með eftirfarandi hætti.
I. Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir að fasteignagjöld fyrir árið 2011 verði lögð á sem hér segir:
a) Fasteignaskattur á :
1) Íbúðarhúsnæði og bújarðir. 0,5 % af heildarfasteignamati
2) Atvinnuhúsnæði og annað húsnæði. 1,65 % af heildarfasteignamati
3) Sjúkrastofnanir, skólar, heimavistir,
leikskólar, íþróttahús og bókasöfn 1,32 % af heildarfasteignamati
b) Vatnsgjald og holræsagjald:
1. Vatnsgjald nemi 0,3 % af fasteignamati húss.
· Aukavatnsgjald skv. mæli verði kr. 33 fyrir hvern rúmmetra vatns.
2. Holræsagjald nemi 0,2 % af heildarfasteignamati.
c) Lóðarleiga
Lóðarleiga verði 2,0 % af fasteignamati allra lóða á Vopnafirði.
Gjalddagar fasteignagjalda 2011 verða 8 og verða þeir 15. febrúar 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst og 15. september. Eindagi verði 30 dögum síðar.
Athugið! Ef fjárhæðir til innheimtu eru lágar er þeim ekki dreift á átta gjaldaga, heldur færri.
Hreppsnefnd heimilar með stoð í 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga að fella niður fasteignaskatt elli- og örorkulífeyrisþega af eigin íbúð á eftirfarandi hátt. Niðurfelling fasteignaskatts skal vera tekjutengd. Tekjuviðmiðun eru árstekjur 2010 skv. skattframtali 2011:
a) Einstaklingar
Brúttótekjur 2010 allt að kr. 2.026.895 100% niðurfelling
Brúttótekjur 2010 allt að kr. 2.808.234 50 % niðurfelling
b) Hjón:
Brúttótekjur 2010 allt að kr. 3.003.906 100 % niðurfelling
Brúttótekjur 2010 allt að kr. 3.346.672 50 % niðurfelling
Við fráfall maka eða sambýlings skal fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði, sem fjölskylda hins látna ( hinnar látnu) á og býr í felldur niður að fullu fyrsta árið en að hálfu annað árið eftir fráfall.
Búi fullvinnandi einstaklingur (eða hjón) inni á heimili ellilífeyrisþega, fellur fasteignaskattur ekki niður.
Hafi veruleg tekjulækkun orðið hjá ellilífeyrisþega milli áranna 2010 og 2011 hefur hreppsnefnd heimild til að taka tillit til þess við niðurfellingu fasteignaskatts, berist umsókn um slíkt.
Sömu reglur skulu gilda um niðurfellingu fasteignaskatts hjá öryrkjum með fulla örorku.
Falli aðstæður ekki undir þær reglur sem að framan greinir skal hreppsnefnd ákveða um lækkun eða niðurfellingu.
II. Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir á grundvelli laga nr. 81./ 1988 IV. kafla 22. gr., að leggja á sérstakt sorphirðu og sorpeyðingargjald á hverja íbúð á Vopnafirði á árinu 2011. Hvort gjald um sig skal vera kr. 11.000 á íbúð eða samtals 22.000 Sorphirðu og sorpeyðingargjöld fyrirtækja hækki um sama hundraðshluta. Innheimta skal gjaldið með fasteignagjöldum og eru gjalddagar þeir sömu.“
Allmiklar umræður urðu um fyrirliggjandi tillögu um álagningu fasteignagjalda þar sem meðal annars voru skoðaðir möguleikar til þess að breyta álagningu þannig að gjöldin lækkuðu ekki frá því sem er á yfirstandandi ári.
Samþykkt var að fresta afgreiðslu tillögunnar til næsta fundar hreppsnefndar.
5. mál. Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B hluta fyrir árið 2011.- Fyrri umræða. -Gögnum verður dreift á fundinum.
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps A-og B hluta fyrir árið 2011.
Með áætluninni fylgir rekstraryfirlit málaflokka, rekstrarreikningur, sjóðstreymi samsteypunnar, efnahagsreikningur og sundurliðanir sjóðstreymis niður á deildir.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir framlögðum gögnum og lagði jafnframt fram greinagerð sína með fjárhagsáætluninni, þar sem greint er frá helstu forsendum fyrirliggjandi áætlunar bæði á tekju og gjaldahlið. Gerði hann síðan grein fyrir fyrirliggjandi gögnum. Í sjóðstreymi áætlunarinnar kemur fram:
Að allir sjóðir í A -og B hluta verða samtals gerðir upp með 30,8 m. kr. hagnaði á árinu 2011. Í sjóðstreymi kemur í ljós að þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta, verðbóta, söluhagnaðar og annarra reiknaðra stærða að veltufé frá rekstri verður 91,0 m. kr.
Áætlunin gerir ráð fyrir nettófjárhæð í fjárfestingar að upphæð 41,2 m.kr. Við það er þó miðað að ekki verði farið í stórfelldar fjárfestinga á árinu nem mögulegt verði að selja eignir á árinu á móti og eða fá styrki til framkvæmdanna eða mögulegt verði að finna frekari glufu í rekstrinum heldur en fram kemur hér í dag. Afborganir lána eru áætlaðar 96,6 m.kr. Til þess að brúa allar afborganir og fjárfestingar eins og þær eru settar hér fram í dag þarf að taka lán að fjárhæð 47,5 m.kr. Í raun þyrfti verkefni sveitarstjórnar og forstöðumanna deilda að felast í því að finna fjárhæð sem dygði til þess að ekki væri þörf fyrir nýjar lántökur. Eins og fyrr segir er leiðin í þeim efnum að finna smugur í rekstri sveitarfélagsins tekju -og gjalda megin, selja eignir eða fá styrki af einhverjum toga til framkvæmdanna. Að öllu þessu töldu er ráðgert að handbært fé hækki um 0,6 m.kr. og verði 1,0 m.kr. í árslok, náist að gera allt það sem áætlað er að gera samkvæmt fyrirliggjandi fjárhagsáætlun A -og B- hluta sjóða fyrir árið 2011.
Að máli sínu loknu lagði sveitarstjóri síðan til að fyrirliggjandi áætlun yrði vísað til síðari umræðu í hreppsnefnd eftir tvær vikur.
Oddviti lagði síðan til að skynsamlegt væri að hafa vinnufund um fjárhagsáætlun milli umræðna, helst í næstu viku.
Talsverðar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn og svaraði sveitarstjóri fram komnum fyrirspurnum.
Samþykkt var samhljóða að vísa fyrirliggjandi áætlun til síðari umræðu.
Jafnframt var samþykkt að hafa vinnufund um áætlunina á kl. 16.00 á fimmtudag í næstu viku.
6. mál. Bréf sambands ísl. sveitarfélaga varðandi uppgjör kosninga vegna stjórnlagaþings.
Lagt var fram bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga frá 24. nóv. sl., varðandi uppgjör á kostnaði vegna kosninga til stjórnlagaþings. Samkvæmt bréfinu mun ríkið greiða um 600 þús. kr. vegna þessa kostnaðar, samkvæmt þeim reglum sem um þetta gilda. Framlag þetta mun duga til að dekka þann kostnað sem af kosningunum hlaust.
7. mál. Breytt fyrirkomulag sorphirðumála. – Staða mála.
Gerð var grein fyrir því að búið er að prenta kynningabækling vegna breytts fyrirkomulags í sorphirðu. Bæklingnum verður dreift á öll heimili í sveitarfélaginu öðru hvoru megin við helgi. Sérstakur kynningarfundur verður um málið 7. Des. næstkomandi, kl. 20.00 í félagsheimilinu Miklagarði, þar sem íbúum sveitarfélagsins verður kynnt hvernig best er að standa að þessu nýja fyrirkomulagi.
Kallað er eftir góðri samvinnu við íbúa og fyrirtæki sveitarfélagsins í þessum efnum.
Aðgerð þessi er nauðsynleg til þess að minnka til muna það sorp sem til urðunar fer.
8. mál. Málefni Sundabúðar, legudeildar.
Oddviti og sveitarstjóri gerðu grein fyrir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja um málið. Augljóst er að þrátt fyrir það að legudeildin verði ekki að fullu lögð niður eru settar fram kröfur um niðurskurð og óskað hefur verið eftir því að sveitarfélagið taki að sér reksturinn.
Hreppsnefnd samþykkir að óska eftir því að rekstur Sundabúðar verði með óbreyttu sniði fyrst um sinn þ.e. meðan leitað verði leiða til þess að sveitarfélagið yfirtaki reksturinn.
Samþykkt að af hálfu sveitarfélagsins yrði tilnefndur sérstakur viðræðu hópur, sem taki að sér að undirbúa yfirtöku sveitarfélagsins á rekstrinum, sé það mögulegt. Skilyrði slíkrar yfirtöku er að nægjanlegir fjármunir fylgi með til rekstursins.
Fulltrúar í hreppsnefnd voru allir sammála því að skipa viðræðuhóp við ríkið.
Fram kom tillaga um að hópurinn yrði skipaður eftirtöldum aðilum:
„Þórunni Egilsdóttur, oddvita,
Ólafi Ármannssyni
Og Þorsteini Steinssyni, sveitarstjóra“
Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt samhlóða.
9. mál. Þjónustuhópur aldraðra.- Skipa þarf að nýju í hópinn.
Endurskipa þarf í sérstakan þjónustuhóp aldraðra sem hefur verið starfandi á vegum sveitarfélagsins. Tillaga kom fram um eftirtalda aðila í hópinn:
„Heiðbjört Antonsdóttir, Ásta Ólafsdóttir og Baldur Hallgrímsson.“
Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt samhljóða.
10. mál. Byggðakvóti, áður fjallað um málið á fundi hreppsnefndar 18. nóv. sl.
Greint var frá því að frá síðasta fundi hafa fulltrúar fyrirtækisins Toppfiskur komið á fund oddvita og sveitarstjóra og gert grein fyrir áhuga fyrirtækisins um vinnslu á þeim byggðakvóta sem veittur verður á báta á Vopnafirði.
Jafnfram kynnt hugmynd af bréfi til Sjávarútvegsráðuneytisins ásamt greinargerð.
Gerð var grein fyrir reglugerðum sem um þessi mál hafa gilt og heimildarákvæðum fyrirráðherra til þess að veita undanþágu frá tilteknum skilyrðum.
Jafnframt var gerð grein fyrir þeim reglum sem gilt hafa um þessi mál á síðustu árum.
Hreppsnefnd telur að nýta eigi byggðakvóta til atvinnuuppbyggingar eins og frekast er kostur í sveitarfélaginu.
Erindinu vísað til Atvinnumálanefndar varðandi tillögugerð í þeim efnum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.20