Fundur Fræðslunefndar, haldinn í Brekkubæ mánudaginn 6. desember 2010 kl. 16.
Mætt: Gísli Sigmarsson, Haraldur Jónsson, Þórdís Sumarliðadóttir, Signý Kristjánsdóttir, Helga Jakobsdóttir, Sandra Konráðsdóttir leikskólastjóri og Hafrún Róbertsdóttir.
Formaður setti fund.
1. Bréf varðandi opnunartíma leikskólans Brekkubæjar.
Gísli las bréf, undirritað af nokkrum starfsmönnum HB Granda sem eiga börn í leikskólanum, til Vopnafjarðarhrepps þar sem óskað er eftir að leikskólinn opni fyrr á morgnana þar sem nokkuð knappur tími er fyrir foreldrana að koma börnum í leikskólann og mæta í vinnu á réttum tíma.
Sandra sagði að ef leikskólinn verði opnaður fyrr, þ.e. kl. 7.40 verði það í boði fyrir alla foreldra ekki eingöngu starfsfólk HB Granda. Hún sagði að búið væri að reikna það út að þetta hækkaði launakostnað um ca 50 – 70.000 á mánuði. Kom fram að starfsfólk leikskólans hefði ekki möguleika á að breyta vinnutíma til að þetta væri hægt án aukins launakostnaðar.
Sandra segir vilja fyrir að hafa starfsdag föstudaginn 25. febrúar (þá er einnig vetrarfrí í grunnskólanum), starfsfólk verði búið að vinna af sér. Fræðslunefnd sér ekkert athugavert við það. Sandra og Hafrún véku síðan af fundi.
Mikil umræða átti sér stað um opnun leikskólans. Þar sem kostnaður af lengri opnunartíma er töluverður og ekki möguleiki á sveigjanlegri vinnutíma starfsfólks leikskólans teljum við erfitt að verða við óskum starfsfólks HB Granda öðruvísi en með auknum tilkostnaði sveitarfélagsins og auðséð að hækka þarf þá gjöld foreldra sem nýta sér þennan aukatíma.
Fleira ekki , fundi slitið kl. 17.35