Fundur atvinnumálanefndar 15.12.2010

16.12 2010 - Fimmtudagur

Fundur atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps

15. desember 2010, haldinn í Miklagarði kl. 13.00

 

Atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps kom saman til fundar miðvikudaginn 15. desember 2010 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 13:00 ásamt framkvæmdastjóra Þróunarfélags Austurlands, Hafliða H. Hafliðasyni – sem átti frumkvæði að fundinum.

 

Mætt: Björn Halldórsson, Helgi Þorsteinsson, Guðrún Stefánsdóttir, B. Fanney Hauksdóttir og Emil Erlingsson.

 

Á fundinn mættu auk heldur: Hafliði H. Hafliðason, Þorsteinn Steinsson og Magnús Már Þorvaldsson, er tók neðangreint saman.

 

Formaður bauð Hafliða að opna fund þar eð framkvæmdastjóri Þrónunarfélagsins (ÞFA) hafði óskað eftir fundi, til hans var boðað að hans ósk. Þakkaði Hafliði fyrir tækifærið að hitta nefndina að máli en áður en til formlegs fundar kom kynntu nefndarmenn sig. Síðan hóf Hafliði að kynna starfsemi ÞFA og annarra austfirskra stoðstofnana, sem málefnið varðar.

 

Dagskrá – starfsemi Þróunarfélags Austurlands.

 

Þróunarfélag Austurlands  - Hafliði kvaðst hafa hafið störf hjá félaginu árið 2006 og sinnt verkum einkum er sneru að sveitarfélögunum og því átt mikil samskipti við t. a. m. okkur vopnfirðinga. Á sl. ári tók Hafliði við framkvæmdastjórastöðunni er Stefán Stefánsson lét af störfum sem slíkur. Félagið var stofnað 1983 og bar heitið Iðnþróunarfélag Austurlands, varð síðan Atvinnuþróunarfélag Austurlands 1988 og 1997 hóf Þróunarfélag Austurlands að reka Þróunarstofu Austurlands. Einmitt.

 

Starfssvæðið teygir sig frá Vopnafirði í norðri suður fyrr Djúpavog – var þar til á þessu ári t. o. m. Hornafjörður. Starfsstöð á Reyðarfirði þar sem Ásta Kristín er með aðstöðu en að öðru leyti er aðstaða ÞFA í Miðvangi á Egilsstöðum. Flest voru þau 7 á launaskrá en mikil hreyfing hefur verið á starfsmönnum félagsins undanfarin misseri. Hafliði, Enok og Ingigerður eru starfsmenn ÞFA ásamt Ástu Kristínu, sem hóf störf nýverið og um áramót bætist við Ólafur Áki, fyrrum sveitarstjóri á Djúpavogi og í sveitarfélaginu Ölfus.

 

Velta ÞFA er um 55 milljónir/ár og skiptast tekjur svo: 25 mkr. frá Byggðastofnun, félagsgjöld sveitarfélaga 3.5 mkr., atvinnuþróunarsjóður 5.5 mkr. og sértekjur um 40% tekna. Til VAXA fara 20 mkr./ár frá ríkinu. Stjórn ÞFA skipa fulltrúar atvinnulífs og sveitarfélaga en um 60 aðilar eru virkir félagar í ÞFA. Hlutverk ÞFA er skilgreint sem svo í einni setningu:

 

„Þróunarfélagið starfar á breiðum grunni að framþróun í atvinnulífi og jákvæðri samfélagsþróun á Austurlandi“. Kjörorð þess er AUSTUR og stendur fyrir Atvinnuþróun – Uppbygging – Skilvirkni – Tækifæri – Upplýsingagjöf – Rannsóknir.

 

Rakti Hafliði þau margvíslegu viðfangsefni sem ÞFA fæst við, má þar nefna málþing/ráðstefnur; stefnumótunarverkefni svf. og fyrirtækja; innlend og erlend samstarfsverkefni; rannsóknir fyrir fjórðunginn; ráðgjöf við stofnun og rekstur fyrirtækja o. fl. Tekin voru dæmi um verkefni, s. s. Vatnajökulsþjóðgarður; vöktunarverkefni; VAXA; The George Walker Science Center; Kyndistöð á Hallormsstað; samstarf SSA og ÞFA við ýmiskonar verkefni, þ. m. t. 20/20 sóknaráætlun ríkisstjórnar Íslands – það átti eftir að verða kveikjan af mikilli umræðu um sambærileg verkefni, í fersku minni er einnig Norðausturnefnd sömu ríkisstjórnar.

 

Í fyrstu kostar vinna ÞFA við tiltekið verkefni ekkert en á ákveðnum tímamótum þarf að greiða fyrir hana. Félagið aðstoðar við leit að fjármagni og greindi Hafliði frá að ÞFA ynni nú, í samvinnu við heimamenn, að fjármögnun fyrir fyrirtækið Al-kaplar, sem fyrirhugað er að reisa á Seyðisfirði og kosta mun um 800 mkr.

 

Að ágætri yfirferð Hafliða lokinni fór fram umræða um félagið, mögulega aðkomu þess að verkefnum tengdum Vopnafirði. Ríkisvaldið hefur rutt af stað ýmsum verkefnum sem ætlað er að styðja beinlínis við landsbyggðina, sbr. áðurnefnd 20/20 og Norðausturnefnd, en þrátt fyrir háleitar hugmyndir og fögur fyrirheit hefur innihaldið reynst rýrt. ÞFA hefur verið samstarfsaðili ríkisvaldsins og landshlutasamtakanna.

 

Umræðan, sem var afar lífleg, bar þess merki að ítrekað hafi fólk viljað trúa því að bak við hin háleitu markmið væri innistaða og vinna heima fyrir mótast af því. Sóttu fulltrúar sveitarfélagsins stóra fundinn undir formerkjum 20/20 sóknaráætlunar á Egilsstöðum í janúar sl. Var fundurinn í anda þjóðþingsfundar með starfsmönnum Expectus þar sem allt skilmerkilega skráð og meginniðurstöður kynntar í fundarlok. Frumatvinnugreinarnar, sjávarútvegur og landbúnaður, voru meðal sóknarfæra Austurlands en þau 11 atriði sem Expectus flokkaði að vinnufundum loknum var þeirra hvergi getið!

 

Fram fór umræða um stefnumótun, framkvæmda- og kostnaðaráætlun með markmiðssteningu, forgangsröðun verkefna – sum langtíma, önnur minni í umfangi. Hefur atvinnumálanefnd sett sér það markmið að flokka verkefnin þannig að 3 árum liðnum verði hægt að greina þá vinnu sem fram hefur farið. Þannig þurfi að koma á skipulögðum, öguðum vinnubrögðum, svo vitnað sé beint til orða formanns, sem sagði ennfremur að meginþungi væri á tvö verkefni í náinni framtíð – langtímaverkefni hvort um sig þó:

 

1)      Ferðamál – stofnun klasa, skilgreint hlutverk svf. í ferðamálum o. fl.

2)      Loðnan – verksmiðjuhugmyndir enn til staðar þó á brattann hafi verið að sækja.

 

Undir þetta tóku aðrir nefndarmenn en í tengslum við stefnumótunina er að því stefnt að sú vinna fari fram þegar í upphafi nýs árs og útúr henni skýrsla sem beinlínis er ætlað að vera leiðbeinandi í atvinnumálaumræðunni næstu árin.

 

Rætt um loðnuverkefnið, sem um árabil hefur verið til skoðunar og svf. lagt í tugir milljóna í viðleitni sinni að raungera það. Fram kom að ekki einungis er verið að horfa til loðnunnar heldur yrði framleiðslan miðuð við síld, makríl og lifur auk loðnu. Áfram verður unnið að vöruþróun í samvinnu við aðila á Akranesi en lykilaðili er HB Grandi og afstaða fyrirtækisins til verkefnisins. Ljóst er að mikill vilji er til staðar að gefa sig virkilega að verkefninu á næstu misserum.

 

Vikið var að stoðstofnunum Austurlands og því fjármagni sem þær hafa yfir að ráða, þ. e. framlög ríkisins til þeirra: ÞFA 25 mkr., Menningarráð 45 mkr. (ekki staðið við þann samning á þessu ári), VAXA 20 mkr., Nýsköpunarmiðstöð, áætlaðar 19 mkr., Markaðsstofa 3.5 mkr. Sýna tölurnar glögglega að stofnanirnar eru fjárhagslega veikar en miðað við stöðu Íslands eru fjárframlög ekki að hækka, þvert á móti má reikna með að þær lækki – sbr. Menningarráð. Engu að síður er metnaður allra að vinna sem best úr þeim möguleikum sem til staðar eru innan héraðs og í fjórðungnum. Þegar hefur farið fram mikil vinna sem kemur til með að nýtast, dæmi þar um er Norðausturverkefnið og vinna okkar í tengslum við það.

 

Rætt um að tengja heimsóknir starfsmanna ÞFA við fundi atvinnumálanefndar, þá er alltaf tryggt að heimsókn þeirra skili einhverju en svo hefur ekki alltaf verið með heimsóknunum. ÞFA mun kynna sér atvinnulífið á staðnum en það er hvatning fyrir báða aðila að hafa þennan hátt á, því það kallar á undirbúning beggja.

 

Að endingu þakkaði formaður Hafliða fundarsetuna, upplýsingagjöfina, og honum sem fundarmönnum öðrum fyrir virka þátttöku í umræðunni.

 

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 14:45

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir