Hafnarnefnd 13. 12.10

17.12 2010 - Föstudagur

Fundur hafnarnefndar Vopnafjarðarhrepps

13. des. 2010, haldinn í Miklagarði kl. 12.00

 

Mættir til fundar: Hafþór Róbertsson, Agnar Karl Árnason, Þorsteinn Halldórsson, Hjörtur Davíðsson og Jörgen Sverrisson.

Jafnframt mættur hafnarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

 

 

  1. mál: Fundargerð hafnarnefndar frá 21. okt. sl. lögð fram.

Fundargerðin rædd og samþykkt.

 

2.      mál: Fjárhagsáætlun 2011. Lögð fram drög að fjárhagsáætlun hafnarsjóðs fyrir árið 2011. Hafnarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum. Í gögnunum er staða ársins 2010 borin saman við fjárhagsáætlun 2010 og síðan nýja áætlun fyrir árið 2011. Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn og svaraði hafnarstjóri framkomnum fyrirspurnum. Undir þessum lið var og sérstaklega rætt um gjaldskrármál og var ákveðið að gjaldskrá hafnarinnar yrði yfirfarin í upphafi næsta árs.  Hún var síðast endurskoðuð árið 2010. Hafnarnefnd vísar fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2011 til samþykktar í hreppsnefnd við síðari umræðu.

 

  1. mál: Önnur mál.

Kynntar voru fjárveitingar samkvæmt samgönguáætlun til hafnarframkvæmda á Vopnafirði árin 2011 og 2012. Í áætluninni kemur fram að áætlað er fyrir kostnaði við lagfæringu á trébryggju við Ásgarð 2011. Heildarkostnaður áætlaður um 45 m.kr. og einnig er gert ráð fyrir fjárveitingu til flotbryggju árið 2012. Hafnarnefnd telur eðlilegt að reynt verði að vinna að lagfæringu trébryggju á árinu 2011.

Undir þessum lið var einnig rætt mikilvægi þess að hafa sem snyrtilegast við höfnina.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13.30





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir