Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 16. des. 2010 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.
Á fundinn vori mættir Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Einar Björn Kristbergsson, Fjóla Valsdóttir, Kristján Guðjónsson og Bárður Jónasson. Jafnframt var mættur sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Í upphafi fundar óskaði oddviti eftir því að á dagskrá yrði tekið erindi vegna Lánasjóðs sveitarfélaga, varðandi lántökuheimild. Samþykkt var samhljóða að taka það fyrir í lok fundar.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 2. des. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 2. des. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál Fundargerðir fræðslunefndar frá 6. og 8. des. sl.
Lagðar fram fundargerðir fræðslunefndar frá 6. des. og 8. des. sl.
Lagt fram til kynningar.
3. mál. Fundargerðir hafnarnefndar frá 21. okt. og 13. des sl.
Lagðar fram fundargerðir hafnarnefndar frá 21. okt. og 13. des. sl.
Lagt fram til kynningar.
4. mál. Álagning fasteignagjalda árið 2011, tillaga.
Um málið var fjallað á síðasta fundi hreppsnefndar 2. des. sl. og var afgreiðslu tillögunnar frestað til þessa fundar.
Sveitarstjóri lagði fram svofellda tillögu, sem er lítillega breytt frá fundinum 2. des. sl.:
„Álagning fasteignagjalda 2011 verður ákveðin með eftirfarandi hætti.
I. Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir að fasteignagjöld fyrir árið 2011 verði lögð á sem hér segir:
a) Fasteignaskattur á :
1) Íbúðarhúsnæði og bújarðir. 0,55 % af heildarfasteignamati
2) Atvinnuhúsnæði og annað húsnæði. 1,65 % af heildarfasteignamati
3) Sjúkrastofnanir, skólar, heimavistir,
leikskólar, íþróttahús og bókasöfn 1,32 % af heildarfasteignamati
b) Vatnsgjald og holræsagjald:
1. Vatnsgjald nemi 0,3 % af fasteignamati húss.
· Aukavatnsgjald skv. mæli verði kr. 33 fyrir hvern rúmmetra vatns.
2. Holræsagjald nemi 0,2 % af heildarfasteignamati.
c) Lóðarleiga
Lóðarleiga verði 2,0 % af fasteignamati allra lóða á Vopnafirði.
Gjalddagar fasteignagjalda 2011 verða 8 og verða þeir 15. febrúar 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst og 15. september. Eindagi verði 30 dögum síðar.
Athugið! Ef fjárhæðir til innheimtu eru lágar er þeim ekki dreift á átta gjaldaga, heldur færri.
Hreppsnefnd heimilar með stoð í 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga að fella niður fasteignaskatt elli- og örorkulífeyrisþega af eigin íbúð á eftirfarandi hátt. Niðurfelling fasteignaskatts skal vera tekjutengd. Tekjuviðmiðun eru árstekjur 2010 skv. skattframtali 2011:
a) Einstaklingar
Brúttótekjur 2010 allt að kr. 2.026.895 100% niðurfelling
Brúttótekjur 2010 allt að kr. 2.808.234 50 % niðurfelling
b) Hjón:
Brúttótekjur 2010 allt að kr. 3.003.906 100 % niðurfelling
Brúttótekjur 2010l allt að kr. 3.346.672 50 % niðurfelling
Við fráfall maka eða sambýlings skal fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði, sem fjölskylda hins látna ( hinnar látnu) á og býr í felldur niður að fullu fyrsta árið en að hálfu annað árið eftir fráfall.
Búi fullvinnandi einstaklingur (eða hjón) inni á heimili ellilífeyrisþega, fellur fasteignaskattur ekki niður.
Hafi veruleg tekjulækkun orðið hjá ellilífeyrisþega milli áranna 2010 og 2011 hefur hreppsnefnd heimild til að taka tillit til þess við niðurfellingu fasteignaskatts, berist umsókn um slíkt.
Sömu reglur skulu gilda um niðurfellingu fasteignaskatts hjá öryrkjum með fulla örorku.
Falli aðstæður ekki undir þær reglur sem að framan greinir skal hreppsnefnd ákveða um lækkun eða niðurfellingu.
II. Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir á grundvelli laga nr. 81./ 1988 IV. kafla 22. gr., að leggja á sérstakt sorphirðu og sorpeyðingargjald á hverja íbúð á Vopnafirði á árinu 2011. Hvort gjald um sig skal vera kr. 10.500 á íbúð eða samtals 21.000 Sorphirðu og sorpeyðingargjöld fyrirtækja hækki um sama hundraðshluta. Innheimta skal gjaldið með fasteignagjöldum og eru gjalddagar þeir sömu.
Í upphafi næsta árs verður unnið að því að gera nýja samþykkt um sorphirðugjöld og verður á grundvelli hennar unnin ný gjaldskrá fyrir fyrirtæki.“
Gerð var grein fyrir tillögunni og sérstaklega þeim breytingum sem gerðar höfðu verið á henni.
Tillagan síðan borin upp til atkvæða og samþykkt samhljóða.
5. mál Ýmsar gjaldskrár
Lagðar fram og kynntar tillögur að gjaldskrárbreytingum í:
1) Leikskóla: Samþykkt samhljóða að gjaldskrá í leikskóla hækki skv. framlagðri tillögu frá 1. jan. nk.
2) Íþróttahúsi: Samþykkt samhljóða að gjaldskrá íþróttahúss hækki samkvæmt framlagðri tillögu frá 1. jan. nk.
3) Skólamötuneyti: Samþykkt samhljóða að gjaldskrá í skólamötuneyti hækki skv. framlagðri tillögu frá 1. janúar nk.
4) Tjaldstæði og sundlaug: Samþykkt samhljóða að þessar gjaldskrár hækki ekki.
5) Tónlistarskóla: Samþykkt samhljóða að gjaldskrá Tónlistarskóla hækki frá 1. janúar nk. miðað við framlagða tillögu.
6) Bókasafni: Samþykkt samhljóða að gjaldskrá bókasafnsins hækki miðað við framlagða tillögu frá og með 1. janúar nk.
6. mál. Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B hluta fyrir árið 2011.- Síðari umræða. –
Fyrri umræða fjárhagsáætlunar var tekin fyrir á fundi hreppsnefndar 2. des. sl. Við síðari umræðu fjárhagsáætlunar hér í dag er lögð fram greinargerð sveitarstjóra við fjárhagsáætlun A- og B-hluta Vopnafjaðarhrepps dags. í dag, 16. des. 2010. Jafnframt lagðar fram breytingartillögur við fyrirliggjandi frumvarp að fjárhagsáætlun, sem unnar hafa verið af sveitarstjóra í samvinnu við forstöðumenn deilda og stofnana og sveitarstjórn. Ennfremur lagður fram rekstrarreikningur, rekstraryfirlit, sjóðstreymi ásamt efnahagsreikningi að teknu tilliti til framlagðra breytingartillagna.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og fór yfir helstu stærðir í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun og breytingartillögum. í greinargerð með fjárhagsáætluninni segir m.a.:
„Í rekstraryfirliti sveitarsjóðs í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun kemur fram, að heildartekjur aðalsjóðs eru 470,3 m.kr. samanborið við 433,4 m.kr. í fjárhagsáætlun 2010 og heildargjöld 422,9 m. kr. samanborið við 401,1 m.kr. 2010. Megin skýring þess að tekjur og gjöld hækka svona milli ára er að hér er áætlað bæði tekju og gjalda megin fyrir yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Sú fjárhæð er 18,4 m.kr. tekna og gjalda megin. Þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnstekna aðalsjóðs að fjárhæð 21,6 m.kr. kemur í ljós að rekstrarniðurstaða aðalsjóðs er jákvæð um 69,1 m.kr. Hér er í raun verið að áætla fyrir rekstrarkostnaði og rekstrartekjum af reglulegri starfsemi og nokkrum söluhagnaði vegna seldra eigna. Laun eru alls áætluð 222,2 m. kr. samanborið við 216,0 m.kr. 2010 og almenn rekstrargjöld 200,8 m. kr. samanborið við 176,3 m.kr. 2010. Sérstaklega er hér áætlað fyrir 18,4 m. kr. vegna yfirfærslu málefna fatlaðra og sama tala tekna megin eins og fram hefur komið. Rekstrargjöld hækka því í raun í 182,3 samanborið við 176,3 m. kr.
Inni í þessum tölum eru svokölluð innri viðskipti meðtalin.
Í Eignasjóði er reiknað með húsaleigutekjum fyrir útleigu á húsnæði eins og skóla, leikskóla, íþróttahúss, ráðhúss og annarra eigna sem síðan eru leigðar undir hinar mismunandi þjónustueiningar sveitarfélagsins. Þessi sjóður er rekinn með 22,2 m.kr. tapi, þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta upp á 22,8 m.kr. og 27,4 m.kr. fjármagnskostnaðar. Hér er einnig áætlað fyrir öllum föstum kostnaði við húseignirnar og því viðhaldi sem ráðast skal í á árinu.
Í Þjónustumiðstöð er reiknað með útgjöldum til reksturs hennar þ. e. launum, almennum rekstrargjöldum, ásamt afskriftum. Hér er jafnframt áætlað fyrir tekjum þjónustumiðstöðvar en leitast er við að selja vinnu hennar að mestu. Ráðgert er að endurskoða taxta á útseldri vinnu og færa upp í samræmi við verðlagsþróun á sambærilegum töxtum. Í áætluninni er 6,1 m.kr. halli á miðstöðinni miðað við 5,1 m.kr. á áætlun þessa árs., þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta og fjármagnskostnaðar.
Samkvæmt þessu er hagnaður A-hluta sjóða í heild eftir afskriftir og að teknu tilliti til innri viðskipta 40,7 m. kr.
Í B-hluta sjóðunum kennir ýmissa grasa, en þeir eru Hafnarsjóður, Vatnsveita, Leiguíbúðir almennar og Félagslegar, Fráveita, Félagsheimili, Apótek, Arnarvatn og Skiphólmi.
Langstærstur þessara sjóða er Hafnarsjóður og er hann áætlaður með 19,5 m.kr. hagnaði, þegar tekið hefur verið tillit til 24,6 m.kr. fjármagnskostnaðar og 5,9 m.kr. afskrifta. Gert er ráð fyrir allmiklum umsvifum í höfninni til samræmis við áætlanir HB Granda um landaðan afla á árinu 2011, enda þótt talsverðar blikur séu á lofti varðandi veiðiheimildir og nægir þar að nefna sjúkdóm í íslenska síldarstofninum, hugsanlega minni kvóta í makríl og norskíslensku síldinni en á yfirstandandi ári. Jafnframt er ekki ráðgert að kolmunaveiði verði á árinu. Loðnan lofar þó betri hlutum en á síðasta ári. Í heild er nokkur bjartsýni um góða veiði og vinnslu.
Á liðnum árum hefur verið unnið að gríðarlega miklum framkvæmdum í höfninni og er þá helst að geta brimvarna, dýpkana og verulega auknu viðleguplássi með nútímalegu sniði. Við þessar framkvæmdir eru bundnar þær væntingar að þær leiði til verulega aukinna tekjumöguleika í framtíðinni. Tekjur hafnarinnar hafa verið að aukast á síðustu árum. Lát er nú á framkvæmdum hafnarinnar. Fáist styrkur á fjárlögum til lagfæringar á trébryggju við Ásgarð verður reynt að ráðast í viðgerð á henni. Áfram verður unnið að undirbúningi á mögulegum verkefnum vegna olíuleitar á Drekasvæðinu. Í skýrslu sem unnin hefur verið um þessi mál fyrir sveitarfélögin Vopnafjaðarhrepp og Langanesbyggð í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið, þykir Vopnafjarðarhöfn mjög álitlegur kostur í því tilliti að vera þjónustuhöfn fyrir olíuleitina.
Kannaðir verða möguleikar á styrkingu Vatnsveitu en á mörkunum er að hún geti sinnt skyldum sínum þegar illa árar hvað vatnsbúskap snertir, ennfremur hefur fundist verulega fyrir minnkun á þrýstingi í veitukerfinu þegar vinnsla uppsjávarafla er í hámarki. Að öðru leyti verður reynt að halda að sér höndum eins og frekast er kostur bæði hvað lýtur að framkvæmdum og viðhaldi í öllu bæjarkerfinu. Sérstök ákvörðun hefur verið tekin í þeim efnum á meðan efnahagsástand þjóðarinnar er með þeim hætti sem er í dag. Allt kapp verður lagt á að sinna almennri þjónustu sem sveitarfélaginu ber að sinna og andæfa á meðan holskefla verðhækkana gengur yfir þjóðarbúið. Eins og sjá má af rekstrarniðurstöðu flestra sjóða í B-hluta er erfitt að gera þá upp með hagnaði þrátt fyrir að fjármagnskostnaður sé áætlaður lækka milli ára.
Að öllu þessu töldu er ráðgert að allir sjóðir í A -og B hluta verði samtals gerðir upp með 63,5 m. kr. hagnaði á árinu 2011. Í sjóðstreymi kemur í ljós að þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta, verðbóta, söluhagnaðar og annarra reiknaðra stærða að veltufé frá rekstri verður 110,1 m. kr.
Hér er sett inn nettófjárhæð í fjárfestingar að upphæð 41,2 m.kr. Við það er þó miðað að ekki verði farið í stórfelldar fjárfestingar á árinu nema mögulegt verði að selja eignir á árinu á móti og eða fá styrki til framkvæmdanna eða mögulegt verði að finna frekari glufu í rekstrinum heldur en fram kemur hér í dag. Ráðgert er að eignir verði seldar að markaðsvirði 30,0 m. kr. Afborganir lána eru áætlaðar 96,8 m.kr. Í sjóðstreyminu kemur fram að áætlað er að fjármagna allar framkvæmdir og afborganir lána með sjálfsaflafé úr rekstri og/ eða með sölu eigna. Að öllu þessu töldu er ráðgert að handbært fé hækki um 1,9 m.kr. og verði 2,4 m.kr. í árslok, náist að gera allt það sem áætlað er að gera samkvæmt fyrirliggjandi fjárhagsáætlun A -og B- hluta sjóða fyrir árið 2011.“
Talsvert miklar umræður urðu um fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2011, þar sem farið var yfir ýmsa þætti og hugað að því hvernig best náist árangur við hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins.
Fram komu margvíslegar fyrirspurnir fundarmanna sem sveitarstjóri svaraði.
Gengið var til afgreiðslu á fyrirliggjandi breytingartillögum við frumvarp að fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps A-og B-hluta fyrir árið 2011. Breytingartillögurnar voru samþykktar með 5 atkvæðum og 2 sátu hjá og fjárhagsáætlunin þar með svo breytt.
7. mál. Bréf frá forstöðumönnum leikskólans varðandi skipulagsdag.
Lagt fram bréf frá forstöðumanni leikskólans frá 9. des. sl. varðandi viðbótar skipulagsdag.
Hreppsnefnd tekur undir samþykkt fræðslunefndar í þessum efnum. Sú málsmeðferð var samþykkt með 5 atkv., tveir sátu hjá.
8. mál. Markaðsstofa Austurlands, nýr samningur
Lagður fram nýr þjónustusamningur við Markaðsstofu Austurlands. Hreppsnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að undirrita hann.
9. mál. Nýir samningar vegna félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, vegna yfirtöku málefna fatlaðra.
Dreift samþykktum og samningum sem um þessi mál eiga að gilda. Oddviti og sveitarstjóri gerðu grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og fundi sem þau sátu um málið með fulltrúum aðildarsveitarfélaganna 15. des. sl.
Nokkrar umræður urðu síðan um fyrirliggjandi gögn.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir samningana fyrir sitt leyti, en áréttar að á fyrsta ári verði vel haldið utan um kostnað vegna þessara hluta þ.a. að vel megi greina hvort kostnaður verður meiri eða minni af þeirri þjónustu sem veitt er.
Sveitarstjóra og oddvita falið að ganga frá undirskrift samninganna.
10. mál. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 17. des. 2011
Lögð fram fundaboð vegna aðalfundar skólaskrifstofu sem halda skal á morgun föstudaginn 17. des. nk.
Jafnframt lagðir fram samningar um skólaskrifstofuna og samningur um sameiginlegt þjónustusvæði Austurlands um þjónustu við fatlaða. Nauðsynlegt er að ganga til þessara samninga vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga nú um áramótin.
Gerð var grein fyrir fyrirliggjandi gögnum.
Samþykkt að fulltrúar Vopnafjarðarhrepps mæti á fundinn.
Hreppsnefnd samþykkir einnig fyrirliggjandi samninga og felur sveitarstjóra og oddvita að ganga frá undirritun þeirra.
11. mál. Bréf sambands ísl. Sveitarfélaga frá 2. des. sl. varðandi endurgreiðslu á vsk.
Lagt fram bréf sambands ísl. sveitafélaga varðandi endurgreiðslu á virðisaukaskatti af slökkvibílum og tækjum. Vopnafjarðarhreppur á kröfu að fjárhæð rétt um 8.000 þús. kr. vegna þessa. Fjárveitingar eru ekki nægar á fjárlögum 2011 til þess að endurgreiða skattinn.
Hreppsnefnd samþykkir að mótmæla þessu fyrirkomulagi þar sem sveitarfélagið hefur lagt út fyrir skattinum. Hér er því ekki um að ræða aukaútgjöld fyrir ríkissjóð.
Sveitarstjóra falið að rita fjármálaráðuneytinu bréf varðandi þessi mál.
12. mál. Ýmis bréf og erindi
a) Hafnarsamband Íslands frá 10. nóv. sl.
Lagt fram til kynningar
c) Fundargerð stjórnar SSA frá 8. des. sl.
Lögð fram til kynningar
d) Fundargerð stjórnar Brunavarna á Austurlandi frá 3. des. sl.
Lögð fram til kynningar.
13. mál. Lánasjóður sveitarfélaga
Lagt fram bréf sveitarstjóra til Lánasjóðs sveitarfélaga frá 3. des. sl., þar sem óskað er eftir allt að 30 m. kr. láni frá sjóðnum til skuldbreytinga.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir afgreiðslu lánsjóðsins þar sem hann heimilar allt að 30 m.kr. lán til Vopnafjarðarhrepps.
Í framhaldi var lögð fram svofelld tillaga:
„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að 30.000.000 kr. til 14 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að endurfjármagna hluta af afborgunum sveitarfélagins til Lánasjóðs sveitarfélaga á árinu 2010 sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er, Þorsteini Steinssyni, kt. 1102544239, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Vopnafjarðarhrepps að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.“
Fyrirliggjandi tillaga var síðan borin upp til atkvæða og samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.50