Hreppsnefnd 18.02.10

18.02 2010 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 18. febrúar
2010 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Anna Pála Víglundsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir, Þórdís Þorbergsdóttir og Kristín H. Reynisdóttir.

Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. Mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 28. jan. sl.
Lögð fram fundargerð síðasta fundar.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. Mál. Fundargerð fræðslunefndar frá 10. febrúar sl.
Lögð fram fundargerð fræðslunefndar frá 10. febrúar sl.
Fram voru bornar nokkrar spurningar varðandi einsaka liði fundargerðarinnar er oddviti svaraði. Að öðru leyti lagt fram til kynningar.

3. Mál. Samningur við Landsbankann um rafræna birtingu skjala.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir samningsdrögum við Landsbankann, varðandi rafrænar færslur reikninga og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Hreppsnefnd samþykkti að fela sveitarstjóra að undirrita samninginn.

4. Mál. Efla h/f, drög að samningi um greiningu valkosta vegna orkumála.
Lögð fram drög að samningi við verkfræðistofuna Eflu h/f um greiningu valkosta, vegna orkumála Vopnafjarðarhrepps. Verkefnið verður kostað að stærstum hluta með fjármagni sem fengist hefur frá Orkusjóði. Gerði sveitarstjóri nánari grein fyrir málinu.
Samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra að undirrita samninginn.

5. Mál. Lánasjóður Sveitarfélaga bréf dags. 24. jan. sl., varðandi heimild sjóðsins til birtingar gagna.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og lagði hann til að erindi Lánasjóðsins varðandi birtingu skjala yrði samþykkt.
Tillaga sveitarstjóra samhljóða samþykkt.

6. Mál. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2009/2010, samanber bréf sjávarútvegsráðuneytisins frá 31. janúar sl.
Lagt fram bréf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis varðandi byggðakvóta 2009/2010. Í bréfinu kemur fram að Vopnafjörður hefur fengið úthlutað 150 þorskígildistonnum. Jafnframt lögð fram tafla sem sýnir skiptingu milli þorsks, ýsu, ufsa og steinbíts bæði miðað við slægt og óslægt. Einnig lagðar fram reglugerðir sem um byggðakvóta gilda.
Samþykkt að vísa erindinu til umfjöllunar í atvinnumálanefnd og kynningar í hafnarnefnd.

7. Mál. Aðgengismál í grunnskóla samanber bréf Svæðisskrifstofu Austurlands um málefni fatlaðra frá 26. jan. sl.
Lagt fram bréf svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Austurlandi varðandi aðgengismál í Vopnafjarðarskóla. Jafnframt lögð fram umsókn Vopnafjarðarhrepps um styrk til uppsetningar á lyftu í eldri hluta skólans.
Gerð var grein fyrir málinu og helstu hugmyndum að lagfæringum í þessu sambandi. Sveitarstjóra og starfsmanni byggingareftirlits falið að vinna áfram að málinu í samvinnu við skólastjóra og Svæðisskrifstofu fatlaðra.

8. Mál. Kaupvangur fjárveitingar. Hugmyndir um nýtingu.
Gerð var grein fyrir því að árunum 2008 og 2009 hafa fengist styrkir samtals að fjárhæð 3.500 þús. kr. vegna endurbóta á Kaupvangi. Fjárveitingar þessar fengust til þess að ljúka hönnun á frágangi 2. hæðar Kaupvangs. Gerði sveitarstjóri grein fyrir málinu en fyrir liggja hugmyndir um breytingar á hæðinni. Málið rætt og kom fram vilji til þess að hluti fjármagnsins verði nýttur til viðhalds á húsinu, ekki er talin þörf á að bæta við fleiri rýmum í eigu sveitarfélagsins.
Samþykkt að fela sveitarstjóra að vinna að framgangi málsins á grundvelli fyrirliggjandi styrkja og kanna ofangreinda möguleika.

9. Mál. Heilbrigðisstofnun Austurlands; rekstur legudeildar að Sundabúð.
Fyrir fundinum lágu gögn varðandi samskipti Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Vopnafjarðarhrepps. Gerð var grein fyrir mikilvægi þess að þessi samskipti yrðu skýrð frá því sem nú er. Fram fór mikil umræða um málið þar sem nefndarmenn lýstu sjónarmiðum sínum. Sveitarstjóra falið að kalla eftir viðræðum við fulltrúa Heilbrigðisstofnunar um heildarendurskoðun þessara mála.

10. Mál. Þorbrandsstaðir, bréf Sigurjóns Haukssonar dags. 15. feb. sl., varðandi leigu.
Lagt fram bréf Sigurjóns Haukssonar, þar sem hann óskar eftir viðræðum um möguleika á því að fá jörðina Þorbrandsstaði leigða til ábúðar og búfjárhalds.
Vék Guðrún Anna af fundi undir þessum lið.
Nánari grein var gerð fyrir erindinu og ennfremur því að samningar eru í gildi milli Héraðs –og Austurlandsskóga um skógrækt á jörðinni. Útleiga á jörðinni verður því að vera í fullu samráði við það fyrirtæki. Nefndarmenn tjáðu sig um málið og voru almennt jákvæðir til málsins.
Sveitarstjóra falið að ræða nánar við bréfritara og kanna möguleika á útleigu jarðarinnar í samvinnu við Héraðs- og Austurlandsskóga.

11. Mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Bréf Samgönguráðuneytisins frá 26. jan. sl. varðandi Varasjóð íbúðalána.
Lagt fram til kynningar.
b) Bréf Jafnréttisstofu frá 18. jan. sl.
Lagt fram til kynningar.
c) Ungmennafélag Íslands
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:10




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir