Hreppsnefnd 28.01.10

28.01 2010 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 28. janúar 2010 kl. 16.30 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mætt Aðalbjörn Björnsson, Ólafur Ármannsson, Halldóra Sigríður Árnadóttir, Anna Pála Víglundsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir, Kristín Reynisdóttir og Þórdís Þorbergsdóttir. Jafnframt var mættur Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Dagskrá:
1. Mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 14. jan. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 14. jan. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. Mál. Fundargerð bygginganefndar frá 21. jan. sl.
Lögð fram fundargerð bygginganefndar frá 21. jan. sl.
Spurst var fyrir um 2. tl. fundargerðarinnar og svaraði sveitarstjóri framkominni fyrirspurn.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

3. Mál. Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta 2011-2013. -Síðari umræða-
Fyrir fundinum lá þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta ásamt greinargerð sveitarstjóra með áætluninni. Áætlunin var tekin til fyrri umræðu á fundi hreppsnefndar 14. jan. sl. og var þá vísað til síðari umræðu í hreppsnefnd.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og í máli hans kom m.a. fram að:
„Miklir óvissutímar eru framundan í peninga -og atvinnumálum eins og raunar hefur verið raunin á frá því seinni hluta árs 2008. Erfitt er því að spá með mikilli vissu um það hvað framundan er. Í áætlun þessari er stigið varlega til jarðar. Ekki er gert ráð fyrir því að ráðist verði í stórfenglegar fjárfestingar á áætlunartímabilinu. Ákvörðun þessi er tekin af tvennum ástæðum, má þar fyrst nefna að framkvæmdir sveitarfélagsins hafa verið mjög miklar á umliðnum árum miðað við heildarfjárhag þess. Lokið hefur verið við stóra áfanga í skóla- og leikskólamálum og einnig hefur verið lokið við gríðarlega áfanga í uppbyggingu hafnarinnar. Auk þessa hefur verið unnið að margvíslegum öðrum verkefnum er lúta að því að bæta þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og styðja undir aukið öryggi í atvinnumálum til framtíðar.
Í öðru lagi býður sú snarpa kreppa sem við erum að upplifa þessa dagana ekki upp á væntingar um möguleika sveitarfélaga almennt til þess að afla fjár til framkvæmda. Hér er því valin sú leið að lágmarka fjárfestingar og einbeita sér frekar að því að greiða niður lán með veltufé frá rekstri og einnig með sölu eigna. Ennfremur mun sveitarfélagið leggjast af krafti á árar við það að efla atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu í samvinnu við einstaklinga og fyrirtæki sem vinna að uppbyggingu atvinnulífs.
HB Grandi hefur unnið að verulegri uppbyggingu í fiskiðjuveri sínu á staðnum. Lokið verður við nýja fiskimjölsverksmiðju, mjölgeymslur og rafskautahús á árinu 2010. Ennfremur er unnið að lagfæringum á vinnsluferlum þ.a. unnt verði að vinna makríl til manneldis, til viðbótar við þá vinnslugetu sem þegar er til staðar á staðnum, en á árinu 2009 veiddist verulegt magn þessa fiskjar og er vonast til að svo verði einnig næstu árin. Eftir miklu er að slægjast í þessu sambandi, þar sem makríllinn er ákaflega verðmikill fiskur. Hvernig gengur í þessum geira er að sjálfsögðu háð því hvernig veiðist á hverjum tíma. Helstu fiskistofnar sem koma inn til vinnslu á Vopnafirði eru síld bæði íslenski stofninn og norskíslenski stofninn, loðna, kolmuni og gulldepla. Hagvöxtur á Vopnafirði ræðst því af því hvernig veiðist úr þessum stofnum.
Ennfremur eru framkvæmdir í gangi við lagningu nýs vegar frá þjóðvegi eitt og niður til Vopnafjarðar. Ráðgert er að þessar framkvæmdir vari fram á árið 2013. Gangi þessi áform eftir má því segja að verklegar framkvæmdir verði talsvert miklar í sveitarfélaginu þrátt fyrir að framkvæmdir sem kostaðar eru af sveitarfélaginu verði lágmarkaðar. Í raun má því segja að það sé einmitt lag við þessar aðstæður til þess að draga úr framkvæmdum sveitarfélagsins og einbeita sér að því að lækka skuldir, eins og frekast er kostur. Eigi vel að takast til í þeim efnum er brýnt að stjórnvöldum takist að koma efnahagslífi þjóðarinnar í betra horf en verið hefur á umliðnum misserum. Ástandi í peningamálum þjóðarinnar má líkja við fársjúkan einstakling með háan hita og óráði. Vari slíkt ástand til lengdar getur það því miður leitt til þess mörg hin efnilegustu fyrirtæki landsmanna munu riða til falls.
Með því að draga úr fjárfestingum eins og að framan er lýst er ráðgert að unnt verði að lækka skuldir talsvert á tímabilinu. Ennfremur er þess vænst að atvinnutækifæri muni aukast á tímabilinu og verða fjölbreytilegri. Slík þróun er þó ávallt háð því að auðlindirnar gefi og að unnt verði að nýta þær með eðlilegum hætti bæði til lands og sjávar.

Í áætluninni sem hér liggur fyrir er ráðgert að verja 30 m. kr. nettó á ári hverju til fjárfestinga. Á sama tíma er ráðgert að selja eignir að markaðsvirði 30 m.kr. á ári. Framkvæmdir verða því ekki unnar á árunum 2011-2013 nema því aðeins að seldar verði eignir að sömu upphæð á móti. Eignir þær sem hér um ræðir eru fyrst og fremst hlutabréf sem Vopnafjarðarhreppur á í HB Granda og einnig er rétt að geta þess að í eigu sveitarfélagsins eru tvö lögbýli Þorbrandsstaðir I og II, sem eiga veiðihlunnindi í Hofsá. Þá má geta þess að sveitarfélagið á einnig hótel og íbúðir sem unnt er að selja. Í áætluninni er gert ráð fyrir að allt hreint veltufé frá rekstri gangi til niðurgreiðslu lána. Hreint veltufé frá rekstri er áætlað liðlega 100 m.kr. að meðaltali hvert ár áætlunarinnar þ.e. 2011-2013 eins og sjá má í sjóðstreymi. Ekki er áætlað að taka nein ný lán. Af þessu sést að á áætlunartímabilinu er ráðgert að greiða niður heildarlán um liðlega 300 m. kr. Reiknaðar afborganir lána miðað við lánamassa sveitarfélagsins er um 80 m. kr. að meðaltali á hverju ári tímabilsins. Hér er því gerð tillaga um að greiða niður lán hraðar en greiðsluáætlun lánamassa sveitarfélagsins gerir ráð fyrir. Gangi þessi áætlun eftir munu heildarskuldir sveitarfélagsins lækka verulega á tímabili áætlunarinnar og þar með fjármagnskostnaður. Lætur nærri að niðurgreiðslur lána séu um 20 m.kr. á ári umfram það sem reiknaðar afborganir eru miðað við heildarlán sveitarfélagsins eins og þau eru. Mögulegt er að ganga enn hraðar fram í sölu eigna og nýta söluandvirðið til niðurgreiðslu skulda til viðbótar því sem hér er lagt til. Með þessum hætti eru skuldir sveitarfélagsins lækkaðar í heild sinni um liðlega 300 m. kr., eins og fram hefur komið. Þetta mun leiða til þess að sveitarfélagið verður í framtíðinni mun betur í stakk búið til að sinna skyldum sínum við íbúana. Að sjálfsögðu er það alltaf álitamál hversu hratt á að ganga fram í því að selja eignir og greiða niður skuldir. Um slíkt verða að sjálfsögðu teknar nákvæmari ákvarðanir við gerð fjárhagsáætlunar hvers árs. Meginmarkmið eru þó sett fram í þessari áætlun um að selja eignir sem tengjast ekki beint skyldurekstri sveitarfélaga og lækka þannig verulega skuldir og rekstrakostnað til framtíðar.“
Að lokinni yfirferð sinni lagði sveitarstjóri til að fyrirliggjandi þriggja ára áætlun sveitarfélagsins yrði samþykkt eins og hún liggur fyrir á fundinum hér í dag við síðari umræðu.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi áætlun og gögn og svaraði sveitarstjóri framkomnum fyrirspurnum.
Fyrirliggjandi áætlun ásamt greinargerð var síðan samþykkt samhljóða.

4. Mál. Sorphirðumál. Hugmyndir um breytta söfnun og meðhöndlun úrgangs.
Lagt fram minnisblað unnið af Sagaplast varðandi breytt fyrirkomulag á söfnun og meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu. Jafnframt lagt fram uppkast að samningi við fyrirtækið um þessi mál.
Gerð var grein fyrir fundi sem haldinn var með fulltrúa Sagaplast ehf., þar sem gerð var grein fyrir mögulegri aðferðafræði við að flokka sorp á Vopnafirði með tilliti til þess að minnka það sem til urðunar fer. Á fundinn voru mættir fulltrúar meiri og minnihluta hreppsnefndar ásamt sveitarstjóra og forstöðumanni áhaldahúss. Á fundinum kom fram að mögulegt er með góðu móti að minka það magn sem til urðunar fer um allt að 65 % miðað við þær hugmyndir sem Sagaplast kynnti. Nauðsynlegt er í því sambandi að fá íbúa sveitarfélagsins ásamt fyrirtækjum til þess að vinna með sveitarfélaginu á grundvelli þeirra hugmynda sem fyrirtækið kynnti.
Talsverðar umræður urðu um þessi mál þar sem fundarmenn lýstu yfir áhuga sínum á því að vinna áfram að þessu verki.
Lögð fram svofelld tillaga: „Hreppsnefnd samþykkir að vinna að gerð samnings á grundvelli framlagðra gagna og hugmynda, sem fram komu á fundi fulltrúa sveitarfélagsins um breytt fyrirkomulag á sorphirðu.
Miða skal við að flýta vinnu þessari sem kostur er. Endanlegur samningur verði síðan lagður fyrir hreppsnefnd til samþykktar.
Í samþykkt þessari felst einnig að fyrirtækið sem samið verður við skal standa að borgarafundi með sveitarfélaginu, þar sem hin nýju vinnubrögð verða kynnt fyrir íbúum sveitarfélagsins og fyrirtækjum. Jafnframt skal fyrirtækið vinna kynningarefni sem dreift verður á hvert heimili í sveitarfélaginu.
Í þessu sambandi skal leita eftir verðhugmyndum frá fleiri en einum aðila.“

Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.

5. Mál. Sóknaráætlun fyrir Ísland. Bréf SSA og verkefnisstjóra móttekið 25. janúar sl.
Lagt fram bréf móttekið 25. jan. sl., varðandi svokallaða Sóknaráætlun fyrir Ísland. Hér er um að ræða fundi sem haldnir verða um landið með svipuðu sniði og þjóðfundurinn sem haldinn var í Reykjavík í lok síðasta árs. Slíkur fundur verður haldinn 30 janúar nk. og munu fulltrúar Vopnfirðinga mæta á fundinn.

6. Mál. Styrkir til Vopnafjarðar á fjárlögum 2010. Sjá meðfylgjandi gögn.
Lögð fram gögn sem greina frá styrkjum sem veittir eru til mismunandi verkefna á Vopnafirði á fjárlögum 2010. Má þar nefna nýsköpun og markaðsmál, heiðarbýlaverkefni, Múlastofu, minjasafnið Bustarfelli og mennta-, menningar- og nýsköpunarsetur í Kaupvangi. Samtals nema styrkir þessir 15,8 m. kr. Þarna er um að ræða samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélags. Framlög þessi skipta verulegu máli varðandi framgang hinna ólíku verkefna.

7. Mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Barnamenningarsjóður bréf dags. 21. janúar sl., varðandi styrk.
Gerð grein fyrir því að á grundvelli umsóknar hefði fengist 200.000 kr. styrkur til leiklistarstarfsemi í tengslum við Múlastofu.
b) Útvegsmannafélag Austfjarða, umræðufundur um fyrningarleiðina.
Gerð grein fyrirfyrirhuguðum fundum á vegum Útvegsmanna Austfjarða um kvótakerfið.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 18.10





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir