Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 5. nóv. 2009 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Kristín H. Reynisdóttir.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 22. okt. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 22. okt. sl. Spurt var um framvindu mála varðandi 5. tl.fundargerðarinnar „Vegagerðin samningar o.fl.“ Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála Fundarmenn hvöttu til þess að reynt yrði að flýta þeim viðræðum þ.a. ljóst yrði á hvaða grunni yrði mögulegt að semja.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál Fundargerð Þjónustuhóps aldraðra frá 14. okt. sl.
Fundargerð þjónustuhóps aldraðra frá 14. okt. sl., lögð fram til kynningar.
3. mál. Fundargerð stjórnar Brunavarna á Austurlandi frá 26. okt. sl.
Lögð fram fundargerð Brunavarna á Austurlandi frá 26. okt. sl.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum varðandi 3. tl. fundargerðarinnar varðandi fjárhagsáætlunarvinnu fyrir samlagið.
Jafnframt kynnt verkfundargerð vegna smíði á nýjum slökkvibíl fyrir Vopnafjarðarhrepp og sýnd mynd af nýja bílnum, en búist er við að hann verði afhentur öðru hvoru megin við næstkomandi áramót. Fundarmenn lýstu ánægju með framvindu mála varðandi smíði bílsins. Sérstaklega þann þátt að samið hefi verið við innlendan aðila um smíðina.
4. mál. Slysavarnardeildin Sjöfn gjafabréf.
Lagt fram gjafabréf frá Slysavarnardeildin Sjöfn, þar sem deildin gefur Vopnafjarðarhreppi sturtustóla, handföng og hillur til nota í Sundlaug Vopnafjarðar. Hlutum þessum hefur verið komið fyrir í Sundlauginni.
Slysavarnardeildinni Sjöfn eru þakkaðar góðar gjafir.
5. mál. Bréf Markaðsstofu Austurlands dags. 16. okt. sl., varðandi nýjan samstarfssamning.
Lagt fram bréf Markaðsstofu Austurlands frá 16. okt. sl., þar sem óskað er eftir viðræðum um nýjan samstarfssamning.
Samþykkt að ganga til samninga við Markaðsstofuna um nýjan samning.
6. mál. Umsókn Vopnafjarðarhrepps um byggðakvóta 2009/2010.
Lagt fram bréf sveitarstjóra, þar sem sótt er um byggðakvóta 2009/2010 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006 með síðari breytingum.
Jafnframt lagðar fram tillögur atvinnumálanefndar vegna úthlutunar byggðakvóta 2009/2010, en þar segir í greinargerð:
„Það er að sjálfsögðu metnaðarmál atvinnumálanefndar að sem mest atvinna skapist á grundvelli úthlutaðs byggðakvóta á hverjum tíma. Nefndin hvetur því til þess að áfram verði reynt eins og frekast er kostur að stofnsetja bolfiskvinnslu á Vopnafirði, þar sem úthlutaður byggðakvóti verði nýttur til vinnslunnar.”
Nokkur umræða fór fram um þessi mál þar sem ræddir voru ýmsir möguleikar í þessum efnum.
Hreppsnefnd tekur fyllilega undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða að vísa málinu til atvinnumálanefndar.
7. mál. Ýmis mál og fundargerðir:
a) Fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands frá 22. okt. sl.
Fundargerð aðalfundar skólaskrifstofu Austurlands lögð fram til kynningar.
b) Samþykkt stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 30. okt. sl.
Lögð fram samþykkt stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi fyrirhugaða hækkun tryggingargjalds.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps tekur einróma undir samþykkt stjórnarinnar.
c) Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, yfirlit um skiptingu tekjujöfnunarframlaga 2009.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:50.