Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 08. okt. 2009 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.
Auk heldur mættir Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Í upphafi fundar bauð oddviti nefndarmenn velkomna til fundar eftir langt sumarfrí og þá einkum sveitarstjóra, sem ekki hefur átt heimangengt sl. vikur
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 6. júlí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 6. júlí sl.
Fundargerðin síðan samhljóða samþykkt.
2. mál Fundargerðir menningarmála frá 8. og 28. júlí sl.
Fundargerðir menningarmálanefndar frá 8. og 28. júlí lagðar fram til kynningar. Fram fór nokkur umræða undir 2. lið í fundargerð dags. 28. júlí og varðar mögulega skipan nýrrar nefndar. Er einkum horft til undirbúnings viðburða sumarsins næsta. Eins fór fram umræða undir 4. lið í fundargerð dags. 08. júlí er varðar Múlastofu. Samþykkt að bæði mál verði tekin fyrir að nýju. Jafnframt var óskað eftir því að tekin yrði saman greinargerð um starfsemi sumarsins í Kaupvangi.
Vill sveitarstjórn koma á framfæri þakklæti til fráfarandi menningarmálanefndar fyrir vel unnin störf í þágu samfélagsins.
3. mál Fundargerð atvinnumálanefndar frá 15. júlí sl.
Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 15. júlí sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóð undir 2. tl. fundargerðarinnar „Byggðakvóti 2008/2009.“ Gerði hann grein fyrir fundi atvinnumálanefndar frá því í gær, 07. okt. sl., þar sem fjallað var um mótun reglna vegna úthlutunar byggðakvóta á skip. En á þeim fundi lagði atvinnumálanefndin til að svofelldar reglur giltu um úthlutun byggðakvóta 2008/2009: „Atvinnumálanefnd leggur til að byggðakvóta sem úthlutað hefur verið til Vopnafjarðarhrepps fyrir kvótaárið 2008/2009, alls 133 þorskígildistonnum, verði úthlutað til samræmis við reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á kvótaárinu 2008/2009, með eftirfarandi viðauka/breytingum:
a) Ákvæði 4.gr. um 15 þorskígildistonna hámark fellur niður
b) Skipta skal ½ úthlutaðs byggðakvóta, 66,5 þorskígildistonnum, jafnt milli þeirra báta/skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og sækja um. Eftirstöðvunum, 66,5 þorskígildistonnum, skal skipt í hlutfalli við landaðan afla í sveitarfélaginu, í þorskígildum talið á tímabilinu 1. júlí 2008 til 30. júní 2009.
c) Ekkert skip yfir 1.000 brúttótonn fær úthlutun.
d) 1. mgr. 6. gr. breytist þannig: Fiskiskipum er skylt að landa innan hlutaðeigandi byggðarlags afla sem nemur …o.s.frv.(Orðin „til vinnslu“ falla út).
Sveitarstjóri gerði einnig grein fyrir fundi sem haldinn var með fulltrúum sveitarstjórnar, formanni atvinnumálanefndar og sveitarstjóra, þar sem gerð var grein fyrir þessari niðurstöðu atvinnumálanefndar.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi tillögu atvinnumálanefndar.
Tillagan síðan samhljóða samþykkt.
4. mál Fundargerð bygginganefndar frá 27. ágúst sl.
Lögð fram fundargerð bygginganefndar frá 27. ágúst sl.
Fundargerðin samþykkt.
5. mál Fundargerð fræðslunefndar frá 2. sept. sl.
Fundargerð fræðslunefndar frá 2. sept. sl. lögð fram til kynningar. Fram fór mikil umræða undir 4. lið fundargerðar þar sem fram kemur samvinna framhaldskólans á Laugum og Þórshafnarskóla um fjarkennslu. Lýstu nefndarmenn yfir áhuga á að kannað verði með að svipuð leið verði farin á Vopnafirði.
6. mál. Bráðabirgðauppgjör Vopnafjarðahrepps A-og B-hluta fyrir fyrstu átta mánuði ársins 2009.
Sveitarstjóri lagði fram árshlutauppgjör Vopnafjarðarhrepps fyrir 8 fyrstu mánuði ársins 2009. Gerði hann grein fyrir uppgjörinu. Í máli hans kom fram að útgjöld sveitarfélagsins eru í stórum dráttum til samræmis við það sem ráðgert var í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir yfirstandandi ár. Skatttekjur útsvör og fasteignagjöld eru einnig að skila sér nokkurn veginn til samræmis við áætlun, tekjur Jöfnunarsjóðs og aðrar tekjur skila sér ekki til samræmis við það sem áætlun gerir ráð fyrir. Helstu skýringar þessa eru þær að ekkert hefur skilað sér af sérstöku aukaframlagi Jöfnunarsjóðsins og ekki heldur af tekjujöfnunarframlagi. Auk þess hafa undir liðnum aðrar tekjur ekki enn skilað sér gatnagerðargjöld og önnur framlög sem ráðgert er að skili sér á árinu. Tekjur hafnarsjóðs hafa skánað verulega frá síðasta uppgjöri. Einnig koma ekki inn með línulegum hætt ýmis framlög sem ráðgert er að komi inn á árinu. Gatnagerðargjöld, sem áætlað er að fá inn, hafa ekki enn verið lögð á. Ennfremur er rétt að geta þess að söluhagnaður vegna hlutabréfasölu er ekki orðinn staðreynd þar sem engin hlutabréf hafa verið seld.
Á næstunni er ráðgert að birtar verði reglur um útreikning á auka- og tekjujöfnunarframlögum Jöfnunarsjóðs. En þessi framlög námu samtals 50 milljónum á síðasta ári.
Laun og rekstrargjöld eru rétt undir því sem áætlað var samkvæmt fjárhagsáætlun. Í heild má því segja að rekstur sveitarfélagsins gangi í samræmi við það sem áætlað var. Tekjur skila sér hægar en ráðgert var en vonir standa til þess að það lagist eitthvað er líður á árið. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld er 15,4 m. kr. en þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnsgjalda er tap á rekstrinum að fjárhæð 60,2 m.kr. Hreint veltufé frá rekstri er jákvætt um 11,5 m.kr.
Fram fór mikil umræða þar sem hreppsnefndarmenn lýstu sjónarmiðum sínum og svaraði sveitarstjóri fyrirspurnum undir þessum lið.
7. mál. Bréf dags. 12. ágúst sl. varðandi opinbera rannsókn á Samvinnutryggingum GT/Gift, ásamt fylgigögnum.
Lagt fram bréf dags. 12. ágúst sl. frá Vopnafjarðarhreppi og Djúpavogshreppi til lögfræðideildar Sambands ísl. sveitarfélaga, varðandi opinbera rannsókn á Samvinnutryggingum Gt/Gift. Jafnframt lögð fram ýmis frekari gögn sem fylgdu bréfinu.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og hvernig staða þessara mála væri.
Sveitarstjórn fagnar því að óskað hafi verið eftir því opinber rannsókn verði sett af stað varðandi málefni Giftar, þannig að ljóst megi verða hvort misferli hafi átt sér stað þegar almannafé, sem hér um ræðir, var notað til glæfralegra fjárfestinga án samráðs við eigendur fjárins.
Jafnframt felur hreppsnefnd sveitarstjóra að ýta frekar á framgang málsins.
8. mál Tilboð í jarðvegsskipti við Hamrahlíð 15.-Jónsver-
Lögð fram tilboð í jarðvegsskipti fyrir utan aðstöðu Jónsvers að Hamrahlíð 15. Jafnframt lögð fram teikning af fyrirhuguðum hugmyndum að bílastæði.
Þrjú tilboð bárust þ.e. frá :
a) Hraunkletti ehf. að fjárhæð 1.196.030 kr.
b) Steiney ehf. að fjárhæð 1.066.500 kr.
c) Ljósalandi ehf. að fjárhæð 748.500 kr.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi tilboðum og hugmyndum um gerð bílastæðis sem unnar voru af teiknistofunni Teikn á lofti.
Jafnframt kom fram í máli hans að fengist hefði framlag á fjárlögum til verksins. Fram fór umræða um framkvæmdina og að önnur leið yrði mögulega skoðuð.
Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga til samninga mið lægst bjóðanda Ljósaland ehf.
9. mál. Námsvistargjöld v/ náms í tónlistarskólum utan lögheimilissveitarfélags.
Lagðar fram upplýsingar um námsvitstargjöld nemenda frá Vopnafirði í tónskólum annars vegar á Akureyri og hins vegar í Reykjavík. Í gögnum málsins kemur fram að Vopnafjarðarhreppur er krafinn um liðlega 500 þús. kr., vegna hvors nemanda fyrir sig. Mikil umræða fór fram um málið, þar sem nefndarmenn viðruðu sjónarmið sín.
Hreppsnefnd getur ekki orðið við ósk um greiðslu slíkra námsvistargjalda, en felur sveitarstjóra að óska eftir því við menntamálaráðuneytið að það beiti sér fyrir því að koma skikki á mál af þessum toga þ.a. einstaklingar minni sveitarfélaga geti átt jafnan rétt til framhaldsnáms í tónlist burt séð frá því hvar lögheimili viðkomandi er.
10. mál. Bréf Rauða kross Íslands dags. 9. sept. sl., varðandi Þjóðahátíð Austfirðinga sem haldin verður á Vopnafirði 17. okt. nk.
Lagt fram bréf Rauða kross Íslands dags. 9. sept. sl. varðandi Þjóðahátíð Austfirðinga 2009, sem haldin verður á Vopnafirði 24. okt. n. k. Í bréfinu er óskað eftir liðsinni og styrk frá sveitarfélaginu. Oddviti gerði grein fyrir málinu.
Hátíðin verður haldin í Vopnafjarðarskóla og munu nemendur og starfsmenn skólans taka virkan þátt í undirbúningi og hátíðinni sjálfri, ásamt Vopnfirðingum af erlendum uppruna.
Hreppsnefnd fagnar því að þjóðahátíðin skuli haldin á Vopnafirði og samþykkir að liðka sem kostur er fyrir góðum framgangi hátíðarinnar með vinnuframlagi, niðurfellingu húsaleigukostnaðar og jafnframt með 50.000 kr.styrk.
11. mál. Bréf dags. 21. sept. sl. varðandi gjaldfrjáls útlán bókasafna.
Lagt fram bréf dags. 21. sept. frá fulltrúum samtaka bókasafna á Austurlandi, þar sem óskað er eftir því að ekki verði innheimt gjald vegna útlána bókasafna.
Hreppsnefnd telur að gjald vegna útlána sé mjög lágt á Vopnafirði eða 1.200 kr. á ári. Hefur það ekki verið hækkað í langan tíma.
Á þessum grunni mun Vopnfjarðarhreppur halda því gjaldi sem nú er innheimt óbreyttu.
12. Ýmis mál og erindi:
a) Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands, sem haldinn verður 22. okt. nk. á Reyðarfirði.
Hreppsnefnd samþykkir að Einar Björn Kristbergsson verði fulltrúi Vopnafjarðarhrepps á fundinum og einnig í nýrri stjórn skrifstofunnar. Jafnframt mælist hreppsnefnd til þess að við endanlega gerð fjárhagsáætlunar 2010 verði miðað við það að útgjöld verði ekki hærri en fyrirhugaðar tekjur Skólaskrifstofnunnar.
b) Bréf Samgönguráðuneytisins varðandi uppgjör á fasteignagjöldum.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.25