Hreppsnefndarfundur verður haldinn fimmtudaginn 11. júní 2009 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.
Á fundinn voru mætt Aðalbjörn Björnsson, Ólafur Ármannsson, Halldóra S. Árnadóttir, Anna Pála Víglundsdóttir Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Kristín Reynisdóttir.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 27. maí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 27. maí sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál. Fundargerð menningarmálanefndar frá 26. maí sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 7. tl. fundargerðarinnar „Samskiptamál“ og gerði grein fyrir málinu. Miklar umræður urðu á fundinum þar sem fundarmenn hörmuðu almennt þá stöðu sem upp væri komin í samskipum formanns menningarmálanefndar og menningarmálafulltrúa.
Sveitarstjóra og oddvita falið að ræða við málsaðila og leita úrlausna.
3. mál Drekasvæðið. Bréf Olíudreifingar frá 4. júní sl., minnisblað Eflu verkfræðistofu, ásamt ársreikningi Drekasvæðisins ehf. 2008.
Lagt fram bréf Olíudreifingar frá 4. júní sl. Jafnframt var lagður fram ársreikningur Drekasvæðisins ehf. fyrir árið 2008.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum. Í máli hans kom fram að aðalfundur Drekasvæðisins hefði verið haldinn 10. júní sl., þar sem ársreikningur félagsins var samþykktur. Einnig gerði hann grein fyrir fundi sem haldinn var sama dag með fulltrúum sveitarstjórna Vopnafjarðarhrepps og Langanesbyggðar á Þórshöfn, varðandi hugmyndir tengdar olíuleit á Drekasvæðinu.
Sveitarstjóra falið að svara erindi Olíudreifingar og kalla eftir frekari upplýsingum.
4. mál Skýrsla Mannvits varðandi förgunarkostnað við samnýtingu, endurvinnslu og förgun úrgangs á Norður- og Austurlandi. Jafnframt bréf Umhverfisstofnunar frá 30. jan. sl. og bréf Vopnafjarðarhrepps frá 16. feb. sl.
Ofangreind gögn lögð fram. Sveitarstjóri greindi frá fundi sem hann hafði átt með fulltrúum sveitarfélaga á Austurlandi um skýrslu Mannvits. Á þessum fundi voru einnig fulltrúar Sambands ísl. Sveitarfélaga og Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Á þessum fundi var fjallað um það hvernig bregðast skyldi við skilyrðum í reglugerð 785/1999 og einnig var kynnt fyrirliggjandi skýrsla Mannvits.
Niðurstaðan var sú að fulltrúi Sambandsins verði tengiliður sveitarfélaganna við Umhverfisstofnun varðandi framvindu mála..
Hreppsnefnd felur sveitarstjóra að óska eftir skýrum svörum Umhverfisstofnunar á því hvernig tekið verður á ákvæðum reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun.
5. mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Bréf samgönguráðuneytisins frá 28. Maí sl., varðandi rafrænar kosningar.
Lagt fram til kynningar
b) Bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga, frumvarp til vegalaga.
Lagt fram til kynningar
c) Bréf samgönguráðuneytis varðandi meðferð og afgreiðslu ársreikninga sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
d) Fundargerð stjórnar Sambands ísl. Sveitarfélaga frá 22. maí sl.
Lagt fram til kynningar.
c) Minnisblað með tillögum og skýringum frá starfshópi aðila vinnumarkaðarins um efnahags- og atvinnumál.
Lagt fram til kynningar.