Hreppsnefnd 02.04.09

02.04 2009 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 2. apríl 2009 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Halldóra S. Árnadóttir, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.

Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 20. mars sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 20. mars sl..
Fundargerðin síðan samþykkt.

2. mál Fundargerð fræðslunefndar 18. mars sl.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3. mál Fundargerð menningarmálnefndar frá 25. mars sl.
Fundargerð menningarmálanefndar frá 25. mars sl., lögð fram. Undir 7.og 8. tl. fundargerðarinnar fór fram mikil umræða, þar sem velt var upp hugmyndum um tímasetningu á sumarhátíð Vopnfirðinga og nafngift hennar. Rætt var um fjármál og framkvæmd hátíðar einnig töldu menn brýnt að gætt yrði aðhalds í fjámálum hátíðarhaldanna. Fulltrúi menningarmálanefndar í hreppsnefnd, Guðrún Anna, gerði grein fyrir hugmyndum menningamálanefndar og hverning ákvörðun um tímasetningu hátíðarinnar hefði átt sér stað og jafnframt efnisval viðburða. Sveitarstjóri gerði og grein fyrir því að nefndin hefði haft það að leiðarljósi að gæta þess að kostnaður við hátíðarhöldin yrði lágmarkaður. Almennt töldu hreppsnefndarmenn að bæjarhátíðin ætti að vera í ágúst frekar en júlí eins og nú er áætlað. Á þeim grunni var mælst til þess ágústmánuður yrði mánuður hátíðarinnar til framtíðar og heiti hennar verði „Einu sinni á ágústkvöldi.“

4. mál Bréf Þjóðskrár frá 20. mars 2009, varðandi kjörskrá.
Lagt fram bréf Þjóðskrár frá 20. mars sl., varðandi kjörskrá. Greindi sveitarstjóri frá því að kjörskrárstofn hefur ekki enn komið frá þjóðskrá. Samþykkt kjörskrá skal liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofu sveitarstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir kjördag eða í síðasta lagi 15. apríl n. k.
Samþykkt að fela sveitarstjóra að yfirfara kjörskrárstofn og undirrita.

5. mál Bréf SSA frá 25. mars sl., varðandi rekstur HSA og ályktun SSA í þeim efnum.
Lagt fram bréf SSA frá 25. mars sl. til heilbrigðisráðherra og framkvæmdastjóra HSA, varðandi rekstur HSA og fyrirhugaðan niðurskurð á rekstrarkostnaði. Í bréfinu er sett fram ályktun framkvæmdaráðs SSA um þessi mál, þar sem hvatt er til þess að standa vörð um góða heilbrigðisþjónustu á starfssvæði HSA.
Jafnframt var lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps til HSA frá 3. feb., þar sem óskað var eftir fundi með forsvarsmönnum HSA varðandi starfsemi stofnunarinnar á Vopnafirði. Sveitarstjóri gerði nánar grein fyrir málinu sem og Ólafur, sem situr í framkvæmdaráði SSA. Síðan fór fram mikil umræða um hugmyndir stjórnar HSA um niðurskurð, sem kunna að koma sérstaklega illa niður í fámennum sveitarfélögum.
Hreppsnefnd tekur undir ályktun SSA.

6. mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Fundargerð stjórnar Brunavarna á Austurlandi frá 16. mars sl.
Lögð fram til kynningar.
b) Verkfundargerð vegna smíði á slökkvibíl fyrir Vopnafjarðarhepps og Flugstoðir frá 24. mars sl.
Sveitarstjóri gerði nánari grein fyrir málinu.


Ekki fleira tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:20





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir