Hreppsnefndarfundur haldinn föstudaginn 20. mars 2009 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 12.00
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Björn Halldórsson, Þórdís Þorbergsdóttir og Kristín H. Reynisdóttir.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 26. feb. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 26. feb. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt.
2. mál Fundargerð atvinnumálanefndar frá 13. mars. sl.
Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 13. mars sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl fundargerðarinnar, „ Staða fiskvinnslu. Hvað er til ráða?“. Gerði hann grein fyrir umfjöllun atvinnumálanefndar um stöðu fiskvinnslu í sveitarfélaginu og svofelldri tillögu sem atvinnumálanefndin samþykkti á fundi sínum: „Atvinnumálanefnd telur brýnt að leitað verði allra leiða til þess að styrkja stoðir fiskvinnslu á Vopnafirði. Í þessum efnum telur nefndin brýnt að leitað verði leiða um styrkingu fiskvinnslu á Vopnafirði. Hvetur nefndin til þess að kallað verði eftir formlegum fundi með forsvarsmönnum HB Granda, þar sem leitað verði leiða til þess að tryggja sem best öryggi fiskvinnslu fólks.
Jafnframt verði kannað hvort aðrir möguleikar séu í stöðunni varðandi fiskvinnslu.“
Ennfremur kvaddi hann sér hljóðs undir 7. tl. fundargerðarinnar „ Sumarvinna á vegum sveitarfélagsins“ greindi hann frá vangaveltum atvinnumálanefndar í þessu sambandi.
Fram fór mikil umræða um atvinnumál á Vopnafirði, þar sem nefndarmenn lýstu skoðunum sínum og töldu brýnt að huga vel að þessum málum. Hefja þyrfti undirbúningsvinnu í þessum efnum fyrir komandi sumar en einkum var rætt um sumarvinnu ungmenna og skipulag hennar.
Tekur hreppsnefnd þannig undir hugmyndir atvinnumálanefndar um það að kannaðir verði möguleikar í samvinnu við Vinnumálastofnun um sérstök verkefni t. d. í skógrækt, göngustígagerð eða öðrum slíkum verkefnum.
Fundargerðin borin upp og samþykkt samhljóða.
3. mál Samkomulag um sameiginlega almannavarnarnefnd, kosning fulltrúa.
Lagt fram samkomulag um sameiginlega almannavarnarnefnd í umdæmi sýlumannsins á Seyðisfirði, sem undirritað er af sveitarstjórum allra sveitarfélaganna og dómsmálaráðherra.
Samþykkt samhljóða að sveitarstjóri verði fulltrúi Vopnafjarðarhepps í sameiginlegri almannavarnarnefnd.
4. mál Alþingiskosningar 25. apríl – Kosning kjörnefndar -
Lagt fram erindi yfirkjörstjórnar frá 27. feb. sl. varðandi Alþingiskosningar sem fram eiga að fara 25. apríl nk.
Lögð fram tillaga að aðal -og varamönnum í kjörnefnd Vopnafjarðarhepps:
Aðalmenn :
Baldur Kjartansson
Hrafnhildur Helgadóttir
Svanborg Víglundsdóttir
Varamenn:
Birna Einarsdóttir
Reynir Árnason
Fyrirliggjandi tillaga um aðal -og varamenn í kjörnefnd samþykkt samhljóða.
5. mál. Bréf Skipulagsstofnunar dags. 9. mars sl., varðandi stækkun fiskimjölsverksmiðju.
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar frá 9. mars sl. varðandi byggingu fiskimjölsverksmiðju á Vopnafirði. Í niðurstöðu Stofnunarinnar kemur fram að framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 106/2000.
Skipulagsstofnun vekur athygli á að framkvæmdirnar eru háðar byggingarleyfi Vopnafjarðarhepps og starfsleyfi Umhverfisstofnunar.
Samkvæmt 14. gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. má kæra ákörðun Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 7. apríl 2009.
Erindinu vísað til bygginga- og skipulagsnefndar.
6. mál. Bréf Ágústu Þorkelsdóttur dags. 12. mars. sl., varðandi kaffihús o.fl.
Lagt fram bréf Ágústu Þorkelsdóttur frá 12. mars sl. varðandi kaffi hús o. fl. í Kaupvangi.
Erindinu fagnað en mikil umræða fór fram um framkvæmdina og aðkomu sveitarfélagsins. Horfa nefndarmenn með velþóknun á það að fá aukið líf í húsið.
Samþykkt var síðan að vísa erindinu til úrvinnslu í nefnd hreppsnefndar um starfsemi í Kaupvangi.
7. mál. Torfastaðaskóli, bréf Sigurðar St. Pálssonar
Lagt fram bréf Sigurðar Pálssonar, dags. 26. feb. sl., þar sem hann óskar eftir því að losna undan eignarhaldi á Torfastaðaskóla.
Sveitarstjóri gerði nánar grein fyrir málinu. Gerði oddviti að tillögu að sveitarfélagið yfirtaki húsið með því að fá það án kvaða. Felur hreppsnefnd sveitarstjóra að fara yfir málið og ljúka því.
Málið síðan borið upp og samþykkt að ganga frá málinu.
Oddviti óskaði síðan eftir að tekið yrði fyrir mál er varðar aðalskipulag sveitarfélagsins, sem 8. liður í dagskrá, og yrði afgreitt. Gerði sveitarstjóri nánari grein fyrir málinu.
8. mál. Aðalskipulag, breyting.
Kynntar breytingar á aðalskipulaginu og jafnframt umnhverfisskýrsla.
Lögð fram svofelld bókun:
„Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 ásamt umhverfisskýrslu, dags 19.02.2009, og felur sveitarstjóra að leita samþykkis Skipulagsstofnunar til að auglýsa tillöguna samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m .s .br.“
Tillagan samþykkt samhljóða.
9. mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Fundargerð skólaskrifstofu Austurlands frá 5. mars sl.
b) Fundargerð landsþings Sambands ísl. sveitarfélaga frá 13. mars sl.
c) Minnisblað frá sambandi ísl sveitarfélaga frá samráðsfundi með ráðherrum 5. mars. sl.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 13:15