Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 12. febrúar 2009 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00
Mætt: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Anna Pála Víglundsdóttir, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 29. janúar sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 29. janúar sl. lögð fram.
Fundargerðin síðan samþykkt.
2. mál Fundargerð fræðslunefndar frá 22. janúar sl.
Fundargerð fræðslunefndar lögð fram til kynningar.
3. mál Fundargerð bygginganefndar frá 5. febrúar sl.
Fundargerð bygginganefndar frá 5. feb. sl. lögð fram.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
4. mál Bréf Umhverfisstofnunar dags. 30. janúar varðandi endurskoðun starfsleyfis.
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar frá 30. jan. sl., varðandi auknar kröfur sem gerðar eru til starfandi urðunarstaða samanber reglugerð nr. 738/2003 um urðun úrgangs. Í bréfinu óskar stofnunin eftir upplýsingum um hvort fyrirhugað er að reka urðunarstað eftir 16. júlí 2009 á Vopnafirði eða hvort stefnt er að lokun.
Gildandi starfsleyfi sorphauga á Vopnafirði er til ársins 2012. Að svo stöddu stendur ekki til að loka urðunarstaðnum fyrir þann tíma. Flest sveitarfélögin á Austurlandi vinna að skoðun á sameiginlegum lausnum á förgun sorps á svæðinu. Í tengslum við þá vinnu verður væntanlega tekin ákvörðun um það hvað heppilagast er að gera til lengri tíma litið í sorpurðunarmálum á Vopnafirði. Þar til slík ákvörðun liggur fyrir er ráðgert að nýta núverandi urðunarstað á Vopnafirði.
Fram fór umræða um málefnið og síðan samþykkt að fela sveitarstjóra að rita Umverfisstofnun bréf er skýrir sjónarmið sveitarfélagsins. Jafnframt verði leitað leiða í samráði við starfsleyfisveitendur hvernig best verður staðið að málum.
5. mál Drekasvæðið, bréf iðnaðarráðherra dags. 26. janúar 2009.
Lagt fram bréf iðnaðarráðherra frá 26. janúar sl., varðandi þjónustumiðstöð við NA-land og kynningu á skýrslu sem unnin var í samvinnu ráðuneytisins og sveitarfélagana Vopnafjarðarhepps og Langanesbyggðar og kynnt var formlega 14. janúar sl.
Í bréfinu kemur fram mikill vilji til þess að styðja við verkefnið og uppbyggingu þjónustu á NA-austursvæðinu í tengslum við olíuleit og vinnslu.
Hreppsnefnd þakkar fyrir hlý orð og veittan stuðning við verkefnið og kallar eftir góðri samvinnu um þessi mál hér eftir sem hingað til.
6. mál. Atvinnumál- Ýmislegt-
a) Bústofnsleigusjóður-Hugmyndir að kosningu stjórnar-
Farið yfir stofnsamþykktir sjóðsins, sem samþykktar voru 1. apríl 1901. Þar kemur fram að Vopnafjarðarheppur er ábyrgðaraðli og eigandi sjóðsins. Stjórn sjóðsins er þriggja manna og skulu allir kosnir af hreppsnefnd. Sjóðurinn hefur ekki verið nýttur um nokkurt skeið og þörf orðin á því að endurskoða samþykktir sem um sjóðinn gilda.
Fram kom svofelld tillaga: „Hreppsnefnd samþykkir að skipuð verði ný stjórn Bústofnsleigusjóð. Ný stjórn móti reglur um veitingu lána og styrkja úr sjóðnum, sem hreppsnefnd samþykkir.“
Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt.
Fram kom tillaga um að kosning stjórnar yrði með þeim hætti að einn fulltrúi yrði tilnefndur af Búnaðarfélagi Vopnafjarðar og tveir af hreppsnefnd.
Hreppsnefnd samþykkti þetta fyrirkomulag á kosningu fulltrúa í stjórn Bústofnsleigusjóðs.
Kosning í stjórn Bústofnsleigusjóðs: Tveir aðalmenn kosnir af hreppsnefnd.
Tillaga kom fram um að þeir yrðu Sigríður Bragadóttir og Gunnar Pálsson.
Engar aðrar tillögur komu fram.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt. samhljóða.
Samþykkt að óska eftir tilnefningu á fulltrúa Búnaðarfélagsins.
b) Mennta- menningar og þekkingarsetur, Kaupavangi-Ráðning starfsmanns.
Gerð var grein fyrir málinu og að fengist hefði 2.000 þús. kr. styrkur á fjárlögum 2009 og einnig hefði fengist á aukafjárlögum 2008 framlag í gegnum starf Norðausturnefndarinnar til þess að vinna að uppsetningu mennta-, menningar- og nýsköpunarseturs á Vopnafirði.
Á grundvelli þessara fjárveitinga og ekki síður mikilvægi þess að vinna kröftuglega að menningar- og ferðamálum er samþykkt að ráða í hálft stg. starfsmanns sem sinni verkefnum á þessu sviði. Stór liður í verkefni viðkomandi verði að þróa áfram þá vinnu og safn sem lítur að Múlastofu, er þar sérstaklega tiltekið undirbúningur á menningarhátíðinni „Einu sinni á ágúst kvöldi“, sem ákveðið hefur verið að verði árlegur viðburður á Vopnafirði.
Lögð fram svofelld tillaga: „Samþykkt að ráða Magnús Má Þorvaldsson í hálft starf til þess að sinna menningar- og ferðamálum.“
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
Undir þessum lið fór fram mikil umræða um atvinnumál, var gerð m. a. grein fyrir stöðu loðnuverkefnis o. fl. Fyrir liggur að setja verður aukinn kraft í loðnuverkefnið og þar er þáttur heimamanna afgerandi. Samþykkt samhljóða að fulltrúar hreppsnefndar Ólafur Ármannsson og Björn og Björn Halldórsson ásamt sveitarstjóra Þorsteini Steinssyni, komi saman og þoki málinu áfram.
7. mál. Þriggjaáraáætlun Vopnafjarðarhepps 2009-2012 - Frumdrög-Fyrri umræða.
Lögð fram drög að þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhepps fyrir árin 2009-2012. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi drögum að þriggjaáraáætlun sveitarfélagsins og lagði til að henni yrði vísað til síðari umræðu á næsta fundi hreppsnefndar.
Tillaga sveitarstjóra samþykkt.
8. mál Norðausturvegur, Bunguflói-Vopnafjörður- Útboð.
Gerð grein fyrir því að Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í gerð Norðausturvegar frá Bunguflóa að þéttbýli Vopnafjarðar og hluta Hofsárdalsvegar. Norðaustuvegur verður um 30,4 km langur og liggur frá Bunguflóa, um Vesturárdal að þéttbýlinu. Hofsárdalsvegur liggur frá nýja Norðausturveginum í Vesturárdal yfir að Árhvammi í Hofsárdal og verður 6,8 km. langur.
Tilboðum skal skila til Vegagerðarinnar kl. 14.00 þriðjudaginn 24. mars 2009.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps fagnar því að búið er að bjóða út framkvæmdirnar og að nú hyllir í það að Vopnafjörður verði tengdur með nútímalegum hætti við þjóðveg 1.
9. mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Atvinnuleysisskráning á Austurlandi 9. febrúar 2009.
Lagt fram yfirlit um atvinnuleysisskráningu á Austurlandi frá 9. feb. sl. Þar kemur fram að alls eru skráðir atvinnulausir á Austurlandi 379 manns og þar af eru 22 á Vopnafirði.
b) Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga bréf dags. 3. feb. sl.
Lagt fram bréf Sambands ísl. sveitarfélaga frá 3. feb. sl. þar sem boðað er til 23. landsþings sambandsins, sem halda á 13. mars nk.
c) Vegagerðin bréf dags. 7. janúar varðandi veghald þjóðvega.
Lagt fram bréf vegagerðarinnar dags. 7. janúar sl. varðandi breytta flokkun á vegaskrá. Ennfremur er óskað eftir því að Vopnafjarðarheppur sinni veghaldi samkvæmt fyrri samningi til 1. júní 2009. Vopnafjarðarheppur samþykkir það fyrir sitt leyti.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17:15