Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 6. nóv. 2008 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Halldóra S. Árnadóttir, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 23. okt. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 23. okt. sl. Bent var á að nafn Björns Halldórssonar hafi fallið niður í fundargerð.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál Fundargerð fræðslunefndar frá 15. okt. sl.
Fundargerð fræðslunefndar frá 15. okt. sl. lögð fram til kynningar.
3. mál Staða Vopnafjarðarhrepps og stefna í ljósi efnahagsþrenginga þjóðarinnar. -Framhald vinnu-.
Sveitarstjóri gerði nánari grein fyrir verkefnastöðu sveitarfélagsins, einkum m. t. t. framkvæmda við leikskólann. Lagði fram gögn er sýndu framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Vopnafjarðarhrepps á síðasta ári.. Almennt var síðan farið yfir fyrirliggjandi gögn sem dreift hafði verið á síðasta fundi hreppsnefndar og hvernig staðið yrði að vinnu við yfirferð þessara gagna á næstunni. Sveitarstjóri greindi fá því að unnið væri að endurskoðun fjárhagsáætlunar 2008 og undirbúningi við gerð fjárhagsáætlunar 2009. Miðað er við að gögn varðandi þá vinnu verði lögð fram á næsta fundi hreppsnefndar. Fram að þeim tíma yrði væntanlega haldinn sérstakur vinnufundur hreppsnefndar þar sem rýnt yrði í rekstrartölur sveitarfélagsins. Bent var á að hreppsnefndarmönnum stæði til boða að senda inn fyrirspurnir til sveitarstjóra ef sérstakar spurningar vöknuðu varðandi þau gögn sem dreift hefur verið til fundarmanna.
Fundarmenn voru sammála þessu vinnufyrirkomulagi.
4. mál Starfsstöð þekkingarnets Austurlands á Vopnafirði, samningur.
Lagður fram samningur milli Þekkingarnets Austurlands og Vopnafjarðarhrepps varðandi starfsstöð Þekkingarnets Austurlands á Vopnafirði.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu en starfsstöðin var formlega opnuð 30. okt. sl. á 10 ára afmæli Þekkingarnets Austurlands, sem fagnað var á Vopnafirði. Meginmarkmiðið með opnun starfsstöðvarinnar er að:
• vinna að uppbyggingu þekkingarsetursins á Vopnafiðri í samstarfi við stjórn þess
• styðja við rannsókna- og þróunarstarf í sveitarfélaginu
• skapa aðstöðu til dreifnáms á Vopnafirði
• styðja sérstaklega við uppbyggingu menningarstarfs og ferðaþjónustu
• auka námskeiðahald og símenntun
• skapa aðstöðu fyrir framhalds- og háskólanema
• vinna að auknu innlendu og alþjóðlegu samstarfi
• auka þjónustu námsráðgjafa við einstaklinga og fyrirtæki
Samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá undirritun samningsins.
5. mál. Skipulagsmál, bréf Umhverfisráðuneytisins, dags. 23. okt. sl., bréf Skipulagsstofnunar dags. 9. okt. sl. og 28. okt. sl., annars vegar vegna aðalskipulags og hins vegar vegna hafnar- og miðsvæðis.
Lögð fram bréf Umhverfisráðuneytisins frá 23. okt. og Skipulagsstofnunar frá 9. okt. sl varðandi aðalskipulag. Jafnframt lagt fram bréf Skipulagsstofnunar frá 28. okt. sl., varðandi deiliskipulag hafnar- og miðsvæðis, þar sem gerðar eru nokkrar athugasemdir við auglýsta deiliskipulagstillögu.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir bréfi Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulagið og lagði fram drög að svörum til stofnunarinnar og endurbætt deiliskipulag dags. 6. nóv. 2008. Ennfremur lögð fram endurbætt greinargerð með skipulaginu.
Lögð fram svofelld tillaga:
„Hreppsnefnd samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga frá nýrri auglýsingu á deiliskipulagi hafnar -og miðsvæðis, dags 6. nóv. sl., sem unnið hefur verið á grundvelli nýrra og betri gagna frá HB Granda og ábendinga frá Skipulagsstofnun. Auglýsing þessi kallar á að tími til gerðar athugasemda verður lengdur.“
Öll þessi gögn hafa verið kynnt á fundum hafnarnefndar og skipulags- og bygginganefndar í dag og á þeim fundum samþykktu þessar nefndir málsmeðferð þá sem hér liggur fyrir hreppsnefnd.
Hreppsnefnd samþykkti síðan fyrirliggjandi tillögu samhljóða.
6. mál. Bústofnsleigusjóður; kosning í stjórn og/eða framtíðarskipulag.
Lagðar fram upplýsingar um Bústofnsleigusjóð, stofnskrá, úthlutunarreglur o. fl.
Oddviti gerði grein fyrir málinu. Í máli hans kom fram að ekki hafi verið kosið í stjórn sjóðsins undanfarin ár. Um ýmsar leiðir væri að ræða varðandi framtíð sjóðsins þ.e. að kjósa nýja stjórn, þar sem einn fulltrúa vantaði í stjórnina; hafa fyrirkomulagið óbreytt auk þess að ákveða útlánavexti. Eins kæmi til greina að færa sjóðinn undir atvinnumálanefnd sem sæi um úthlutun með óbreyttu fyrirkomulagi þar sem miðað við núverandi fjármálalega stöðu væri ekki möguleiki að efla sjóðinn og útvíkka hlutverk hans.
Í umræðu um málið kom fram það sjónarmið að kjósa ætti í stjórn sjóðsins og hafa hann óbreyttan og einnig að endurskoða hlutverk hans og útlánareglur. Ákveðið að taka málið aftur upp á næsta fundi til afgreiðslu.
7. mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Dagur íslenskrar tungu 16. nóv. n. k.
Lagt fram til kynningar.
b) Fundargerð aðalfundar skólaskrifstofu Austurlands frá 24. okt. sl.
Lögð fram til kynningar.
c) Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 13. og 14. nóv. n. k., dagskrá.
Rætt var um að tveir fulltrúar úr hreppsnefnd, fari á ráðstefnuna, ásamt sveitarstjóra.
Ekki fleira tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:45.