Hreppsnefnd 02.10.08

02.10 2008 - Fimmtudagur

Hreppsnefnd 02.10.08
Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 2. okt.. 2008 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00. Á fundinn voru mætt Aðalbjörn Björnsson, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Kristín H. Reynisdóttir. Einnig voru mættir sveitarstjóri Þorsteinn Steinsson og Magnús Már Þorvaldsson, sem ritaði fundargerð.

Í upphafi fundar óskaði oddviti eftir því að fundargerðir hafnarnefndar og bygginganefndar frá 2. okt. 2008 yrðu teknar fyrir á fundinum næst á eftir fundargerð hreppsnefndar og var það samþykkt.


Dagskrá:

1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 18. sept. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 18. sept. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál. Fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 2. okt. 2008.
Lögð fram fundargerð byggingar-og skipulagsnefndar frá 2. okt. Sérstök grein var gerð fyrir 2. tl. fundargerðarinnar, varðandi deiliskipulag á hafnarsvæði. Afgreiðslu þess liðar var vísað til sérstaks dagskrárliðar síðar á dagskrá hreppsenfndar. Undir 4. tl. fundargerðarinnar „Vegur Borgir-Gnýstaðir“ voru kynnt gögn og myndir er sýndu vel framkvæmdir á vettvangi.
Fundargerðin var síðan samþykkt samhljóða að öðru leyti en því að 2. tl. „Deiliskipulag hafnarsvæðis“ var vísað til afgreiðslu á sérstökum dagskrárlið fundarins.

3. mál.Fundargerð hafnarnefndar frá 2. okt. sl.
Lögð fram fundargerð hafnarnefndar frá 2. okt. sl. Lagt var til að afgreiðslu 2. tl.“ Framkvæmdir HB-Granda, breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis“ yrði vísað til afgreiðslu undir sérstökum dagskrárlið á fundinum. Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

4. mál Tilboð í brunaviðvörunarkerfi í Miklagarð.
Lögð fram tilboð í brunaviðvörunarkefi fyrir Miklagarð, sem RTS-verkfræðistofan;Guðjón Már Jónsson hefur kallað eftir fyrir hönd Vopnafjarðarhepps. Þrjú tilboð bárust:
1. Nortek 343.496 kr.
2. Securitas 356.856 kr.
3. Öryggismiðstöðin 469.263 kr.
Borist hefur leiðrétting á tilboði Nortek og hækkar það skv. því í 484.803 kr.
Jafnframt voru lögð fram álit rafhönnuðar Guðjóns Más og Brunavarna á Austurlandi.
Samþykkt að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda Securitas.

5. mál Bréf dóms og kirkjumálaráðuneytisins frá 9. sept. sl., varðandi almannavarnir.
Lagt fram bréf dómsmálaráðherra frá 9. sept. sl.varðandi almannavarnir og skipan almannavarnarnefnda.
Í gangi hafa verið viðræður um það að mynduð verði ein almannavarnarnefnd á starfssvæði sýslumannsins í N-Múlasýslu.
Lögð fram svofelld tillaga:
„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps telur best að mynduð verði ein almannavarnarnefnd fyrir starfssvæði sýslumannsins í N-Múlasýslu eins og heimilt er að gera skv. 9. gr. laga nr. 82/2008. Óskað verði eftir viðræðum við sýslumann og sveitarfélögin á starfssvæðinu vegna þessa.“
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

6. mál.HB-Grandi framkvæmdir, breyting á deiliskipulagi.
Lagðar fram teikningar af uppbyggingaráfomum HB-Granda á Vopnafirði. Gerð var grein fyrir fundi með forsvarsmönnum fyrirtækisins þar sem þeir lýstu áformum sínum um uppbyggingu, en samkvæmt þeim er áætlað að byrja eins fljótt og kostur er á rafskautahúsi og í framhaldi verði byggðir upp 10 mjölgeymar, mjölverksmiðja og jafnframt verði eldri verksmiðja byggð upp undir mjölgeymsluhús. Gert er ráð fyrir að öllum þessum framkvæmdum verði lokið um önnur áramót gangi áform fyrirtækisins upp.
Lagðar voru fram eldri og nýrri deiliskipulagstillaga og gerð grein fyir hverjar væru breytingar milli þeirra. Í dagskrárliðum 2 og 3 hér að framan þ.e. fundargerðir bygginganefndar, skipulags- og hafnarnefndar frá 2. okt. komu fram tillögur þessara nefnda um afgreiðslu málsins.

Á grundvelli fyrirliggjandi gagna og samþykkta byggingar- og skipulagsnefndar og hafnarnefndar frá 2. okt. samþykkir hreppnefnd samhljóða að ný deiliskipulagstillaga verði send í auglýsingaferli.

7. mál.Bréf frá Menningarráði Austurlands móttekið 21. sept. sl., varðandi tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í vinnu vegna stefnumótunarvinnu.
Tillaga kom fram um að Magnús Már Þorvaldsson og Sigríður Dóra Sverrisdórrir verði fulltrúar Vopnafjarðarhepps í þessari vinnu.
Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt samhljóða.

8. mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Bréf samgönguráðuneytisins dags. 22. sept. sl. varðandi ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Hreppsnefnd mælir með því að fulltrúi sveitarfélagsins verði á fundinum.

Fleira ekki gert og fundi slitið.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir