|
Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 18. sept. 2008 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00. Á fundinn Voru mættir Aðalbjörn Björnsson, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Halldóra Sigríður Árnadóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir, Björn Halldórsson og Þórdís þorbergsdóttir. Jafnframt var mættur sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 29. ágúst sl. Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 29. ágúst sl. Fundargerðin síðan samþykkt. 2. mál Fundargerð atvinnumálanefndar frá 3. sept. sl. Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 3. sept. sl. Jafnframt kynnt bréf trillusjómanna frá 3. sept. sl. ásamt bréfi Mávahlíðar ehf. varðandi úthlutun byggðakvóta. Gerð var grein fyrir því að atvinnumálanefndin vinnur að mótun tillagna um úthlutun byggðakvóta. Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar. 3. mál Fundargerð fræðslunefndar frá 3. sept. sl. Fundargerð fræðslunefndar frá 3. sept. lögð fram til kynningar.
4. mál.Fundargerð bygginganefndar frá 12. sept. sl. Lögð fram fundargerð bygginganefndar frá 12. sept. sl. Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 7. tl. fundargerðarinnar, „Aðalskipulagstillaga, athugasemdir“ og lagði til að tillaga nefndarinnar um að senda aðalskipulagið til hlutaðeigandi aðila til endanlegrar samþykktar og staðfestingar yrði samþykkt. Jafnframt gerði sveitarstjóri grein fyrir 9. tl. fundargerðarinnar „vegur milli Borga og Gnýstaða.“ Hreppsnefnd samþykkti síðan fundargerðina samhljóða. 5. mál.Fundargerð umhverfisnefndar frá 1. sept. sl. Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar frá 1. sept. sl. Fundargerðin lögð fram til kynningar. 6. mál Samkomulag við Orkusjóð vegna sérstaks jarðhitaátaks. Á fundinn mætti Ómar Bjarki Smárason og gerði hann grein fyrir hugmyndum um jarðhitaleit í Vopnafirði, sem eru tengdar samningi við Orkusjóð. Í máli hans kom fram að við jarðhitaleit víða á Austurlandi hefði orðið all verulegur árangur við jarðhitaleit á liðnum árum. Í því sambandi var nefndur Eskifjörður þar sem verulegum fjármunum hefði verið varið til jarðhhitaleitar. Ennfremur kom fram að á móti 8 m.kr. styrk ríkisins þyrfti sveitarfélagið að leggja 25 % og jafnaframt væri mögulegt að semja við RARIK um að koma inn í leitina ef vilji manna stæði til þess. Á fundinum komu fram mismunandi sjónarmið um ágæti þess að halda áfram jarðhitaleit í Vopnafirði. Sumir nefndarmanna töldu óvissu um árangur það mikinn að til lítils væri að setja fjármuni í slíka leit þrátt fyrir ágætan styrk ríkisins. Aðrir töldu þó að halda þyrfti áfram og nýta það fjármagn sem til boða væri í þeirri von að árangur næðist í þessum efnum. Eftir að Omar Barki hafði lokið erindi sínu svaraði hann fyrirspurnum fundarmanna um þessi mál. Honum var síðan þakkað fyrir góða yfirferð yfir þessi mál og vék hann af fundi. Sveitarsstjóri lagði síðan fram svofellda tillögu: „Hreppsnefnd samþykkir að ganga frá samkomulagi við Orkusjóð um styrk að fjárhæð 8 m.kr. gegn mótframlagi sveitarfélagsins. Hluti fjárhæðarinnar verði nýttur til þess að endurnýja hagkvæmniútreikninga á jarðhitavinnslu fyrir Vopnafjörð.“ Að lokinni umræðu um tillöguna var hún borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 7. mál Erindi til fjárlaganefndar Alþingis frá 12. sept. sl. Lögð fram erindi Vopnafjarðarhepps frá fundi sveitarstjóra og Fjárlaganefndar Alþingis 12. sept. sl. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fundinum og þeim erindum sem tekin voru fyrir. Þar var fjallað um samgöngumál, fjarskipta og símamál, Múlastofu, Jónsver, loðnuverkefni, þjónustu við Drekasvæðið og samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga. Hreppsnefnd mun áfram beita sér fyrir því að fjármagn fáist til þess að vinna frekar að þessum málefnum.
8. mál Samningur við Lyfjaver ehf. vegna faglegs eftirlits með lyfjabúð Vopnafjarðarhepps. Lögð fram drög að samningi við Lyfjaver ehf. um faglegt eftirlit með lyfjabúð Vopnafjarðarhepps ásamt viðskiptasamningi við Lyfjaver. Um nokkurt skeið hefur verið unnið að gerð þessa samnings í samvinnu við Lyfjastofnun og Heilbrigðsráðuneytið. Samningur þessi er forsenda fyrir því að heimilt sé að reka lyfjabúð áfram á Vopnafirði með því sniði sem verið hefur um langt skeið. Hreppsnefnd samþykkti fyrirliggjandi samningsdrög fyrir sitt leyti með 6 atkvæðum, einn sat hjá. 9. mál. Drekasvæðið , beiðni um vilyrði fyrir lóð dags. 10. sept. sl. Einnig verður kynnt skýrsla sem unnin hefur verið í samvinnu sveitarfélaganna Vopnafjarðarhrepps og Langanesbyggðar í samvinnu við iðnaðarráðuneytið. Línuhönnun og Almenna verkfræðistofan unnu skýrsluna. Lagt fram bréf frá Drekasvæðinu ehf. dags. 10. sept. sl., þar sem óskað er eftir vilyrði fyrir lóð/lóðum á hafnarsvæði Vopnafjarðar. Jafnframt voru kynntar helstu niðurstöður skýrslu sem unnið er að í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið um hvaða þjónustu unnt sé að veita í sveitarfélögunum Vopnafjarðarheppi og Langanesbyggð í tengslum við fyrirhugaða olíuleit á Drekasvæðinu. Hreppsnefnd samþykkir að vísa erindi um lóðamál til umfjöllunar í byggingar og skipulagsnefnd og einnig í hafnarnefnd. 10. mál. Bréf skólaskrifstofu Austurlands, varðandi aðalfund 24. okt. nk., kosning fulltrúa. Jafnframt fundargerð stjórnar skrifstofunnar frá 4. sept. sl. Hreppsnefnd samþykkir að Einar Björn Kristbergsson verði fulltrúi Vopnafjarðarhepps á fundinum. 11. mál. Ýmis bréf og erindi. a) Fundargerð samgöngunefndar SSA frá 9. sept. sl. Lögð fram til kynningar. b) Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga frá 27. ágúst sl. Lagt fram til kynningar. c) Bréf SSA dags. 2. sept. sl. með ýmsum gögnum varðandi aðalfund SSA. Lagt fram til kynningar.
|