Hreppsnefndarfundur var haldinn föstudaginn 29. ágúst 2008 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Ólafur K. Ármannsson, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 3. júlí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 3. júlí sl.
Fundargerðin síðan samþykkt.
2. mál Fundargerð hafnarnefndar frá 17. júlí og 18. ágúst sl.
Lagðar fram fundargerðir hafnarnefndar frá 17. júlí og 18. ágúst sl.
Fundargerðirnar samþykktar samhljóða.
3. mál Fundargerð atvinnumálanefndar frá 8. ágúst sl.
Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 8. ágúst sl.
Samþykkt samhljóða.
4. mál.Fundargerð bygginganefndar frá 14. ágúst. sl.
Lögð fram fundargerð bygginganefndar frá 14. ágúst sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
5. mál.Fundargerð umhverfisnefndar frá 12. ágúst sl.
Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar frá 12. ágúst sl. Varðandi spurningu umhverfisnefndar um stefnu sveitarfélagsins í umhverfismálum sem fram kom í fundargerðinni var vísað til samþykktar hreppsnefndar um Staðardagskrá 21.
Ennfremur fór fram mikil umræða um sorpmál í sveitarfélaginu og kom mikill vilji fram um að hefjast handa við flokkun sorps. Stendur til að girða gámasvæðið og takmarka opnun svæðisins auk þess að hafa eftirlit með svæðinu. Þá kom fram að SSA hefur látið gera úttekt á þessum málum í fjórðungnum og verður hún kynnt á næsta aðalfundi Sambandsins. Ætlunin er að marka stefnu í þessum málum til framtíðar í samvinnu við önnur sveitarfélög á Austurlandi.
Fundargerðin síðan samþykkt.
6. mál Samningur um verkefnastyrk vegna loðnuverkefnis, sbr. bréf Byggðastofnunar dags. 24. júlí. Einnig almenn umfjöllun um verkefnið, Samstarfssamning o. fl.
Lagður fram samningur um verkefnastyrk til vöruþróunar og markaðssetningar á niðursoðinni loðnu. Gerð var nánari grein fyrir stöðu mála og því hvar verkefnið væri statt. Sérstaklega var gerð grein fyrir kostnaði við kaup á reykofni og kostnaði við framleiðslu og þróun á þeirri vöru sem nú er tilbúin til kynningar og markaðssetningar. Fram fór nokkur umræða um málefnið þar sem fram kom mikill einhugur um þetta verkefni.
Lögð fram svofelld tillaga: „Hreppsnefnd samþykkir að stofnað verði sérstakt fyrirtæki vegna þessa verkefnis, þar sem haldið verði utan um rekstur þess og yfirtaki þær eignir og skuldir sem þegar hafa orðið til vegna verkefnisins.“
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
7. mál Samkomulag við Orkusjóð vegna sérstaks jarðhitaátaks.
Lagt fram samkomulag, til samþykktar, við Orkusjóð um jarðhitaleit á Vopnafirði, sem fengist hefur á grundvelli umsókna þar um. Styrkur til jarðhitaleita hefur fengist frá Orkusjóði/Iðnaðarráðuneytinu að fjáthæð 8.000 þús. kr. gegn því að sveitarfélagið leggi á móti 4.000 þús. kr.
Mikil umræða fór fram um málið þar sem nefndarmenn voru ekki einhuga um hversu langt eigi að ganga í kostnaði við jarðhitaleit þar sem svo mikil óvissa ríkir um útkomuna. Þá liggur fyrir að mikill kostnaður er við flutning vatnsins um byggðarlagið, finnist nægjanlegt vatn, og einnig við að leggja það í húsin.
Eftir miklar umræður lagði oddviti til að málinu yrði frestað og fenginn verði jarðfræðingur jarðfræðistofunnar Stapa á fund nefndarinnar við fyrstu hentugleika þar sem gerð verður grein fyrir því hvernig hugmyndin er að standa að leitinni.
Málinu frestað.
8. mál Bréf sýslumannsins á Seyðisfirði varðandi umsögn um gistileyfi.
Lagt fram bréf sýslumannsins á Seyðisfirði frá 23. júlí sl. þar sem óskað er umsagnar Vopnafjarðarhrepps á á því að rekið sé gistiheimili í flokki I að Refstað II, Vopnafirði.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps sér ekkert því til fyrirstöðu að umbeðið leyfi verði veitt.
Samþykkt samhljóða.
9. mál. Vegagerðin –Hugsanlegir samningar um yfirtöku verkefna-
Gerð var grein fyrir fundi sem haldinn var með fulltrúum Vegagerðarinnar og Vopnafjarðarhrepps þar sem farið var yfir samningsform og möguleg samningsatriði komi til gerðar þjónustusamnings aðila í millum um tiltekin verkefni sem hafa verið á hendi þjónustumiðstöðvar Vegagerðarinnar á Vopnafirði. Í þjónustusamningnum tæki Vopnafjarðarhreppur að sér verkefni Vegagerðarinnar á Vopnafirði að hluta til eða öllu leyti.
Samþykkt samhljóða að vinna áfram að verkefninu.
10. mál. Fjármálaráðstefna Sveitarfélaga verður haldin dagana 13. og 14. nóv. n. k.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin dagana 13. og 14. nóv. í Reykjavík.
Fundarmönnum gert að hugleiða varðandi áhuga á þátttöku á ráðstefnuna.
11.mál. Múlastofa- Framhald mála.
Lagt fram minnisblað unnið af Magnúsi Má Þorvaldssyni og dags. 28. ágúst 2008, þar sem gerð er grein fyrir ýmsum hugmyndum varðandi verkefni Múlastofu og málefni tengd henni.
Brýnt er að ráðinn verði sérstakur starfskraftur til þess að halda utanum og stýra verkefnum tengdum Múlastofu og öðrum ferða- og menningarmálum á Vopnafirði.
Fram fór síðan nokkur umræða um málið og önnur því tengdu.
Lögð fram tillaga:
„Hreppsnefnd samþykkir að leitað verði allra leiða með tilstyrk hins opinbera að mögulegt verði að fjármagna slíka stöðu.“
Tillagan síðan samþykkt samhljóða.
12. mál. Þekkingarnetið, verkefnisstjóri ráðning.
Ráðinn hefur verið starfsmaður Þekkingarnets Austurlands á Vopnafirði, sem staðsettur verður í Kaupvangi á Vopnafirði. Til starfsins var ráðin Þórunn Egilsdóttir og hefur hún þegar hafið störf. Sveitarstjóri gerði grein fyrir hvernig valið var til starfans. Niðurstöðunni almennt vel tekið og Þórunni óskað góðs gengis í nýju starfi.
13. mál. Viðbótardýpkun í smábátahöfn og óskir um fjárveitingar á samgönguáætlun 2009-2012.
Lögð fram bréf til Siglingastofnunar, þar sem óskað er heimildar til framkvæmda í smábátahöfn og einnig bréf Siglingastofnunar frá 17. júlí sl., þar sem tilkynnt er að erindið fékk jákvæða umsögn í hafnarráði. Sveitarstjóri gerði nánar grein fyrir málinu.
Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að ráðist verði í viðkomandi framkvæmd.
14. mál. Drekasvæðið-Staða mála- Ráðstefna 4. sept. 2008.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir því að Drekasvæðið ehf. í samvinnu við iðnaðarráðuneytið hefði fengið verkfræðistofuna Línuhönnun og Almennu verkfræðistofuna til þess að gera greinargerð og þarfaskilgreiningu á því hvernig unnt yrði að þjónusta olíuleit á Drekasvæðinu m. v. að þjónustan yrði veitt frá sveitarfélögunum Vopnafjarðarhreppi og Langanesbyggð. Vinna þessi er langt komin. Rétt þykir að skýrsluhöfundar verði þá sérstaklega fengnir til þess að kynna málið fyrir sveitarstjórnarmönnum sveitarfélaganna sem um ræðir. Ráðsefna um Olíuleit á Drekavæðinui verður haldinn í Reykjavík 4. sept. nk.
15. mál. Aðalfundur SSA 26. og 27. sept. á Djúpavogi.-Kosning fulltrúa.-
Aðalfundur SSA árið 2008 verður haldinn á Djúpavogi dagana 26. og 27. september.
Tekin fyrir kosning fulltrúa á aðalfund SSA sem haldinn verður á Djúpavogi dagana 26.-27. september nk.
Fram kom svofelld tillaga um aðal- og varamenn:
„Aðalmenn: Aðalbjörn Björnsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Anna Pála Víglundsdóttir og varamenn: Borghildur Sverrisdóttir, Björn Halldórsson og Halldóra S. Árnadóttir.“
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
16. mál. Ýmis bréf og erindi.
a) Bréf samgönguráðuneytis varðandi uppgjör á fasteignaskatti dags. 28. júlí sl.
Lagt fram ti kynningar
b) Bréf samgönguráðuneytisins varðandi ráðstöfun 1.400 m.kr. sbr. bréf dags. 29. júlí.
Lagt fram til kynningar.
c) Bréf Ara Sigurjónssonar móttekið 21. júlí sl. varðandi athugasemdir við skipulag.
Lögð fram tillaga að svari hreppsnefndar við athugasemdum Ara.
Samþykkt að vísa málinu til skipulags og bygginganefndar.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:30