Hreppsnefnd 05.06.08

05.06 2008 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 5. júní 2008 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Borghildur Sverrisdóttir, Halldóra S. Árnadóttir, Vigfús Davíðsson, Björn Halldórsson, Þórdís Þorbergsdóttir og Kristín Hrönn Reynisdóttir.

Einnig mætt: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð. Ennfremur frá Teikn á lofti, Halldór Jóhannsson og Hildur Stefánsdóttir.

Dagskrá:

1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 22. maí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 22. maí sl.
Fundargerðin síðan samþykkt.

2. mál Fundargerðir stjórnar og aðalfundar Arnarvatns ehf. frá 29. maí sl.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Arnarvatns ehf og aðalfundar frá 29. maí sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 3. tl. fundargerðar stjórnarfundar og gerði grein fyrir því að auglýst hefði verið eftir nýjum rekstraraðila að Hótel Tanga, sem er í eigu Arnarvatns ehf..
Fundargerðirnar að öðru leyti lagðar fram til kynningar.

3. mál Aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps og umhverfisskýrsla.-Samþykkt til auglýsingar- Á fundinn mættu skipulagshönnuður Halldór Jóhannsson og Hildur Stefánsdóttir, Teikn á lofti. Gögn send í tölvupósti og kynnt nánar á fundinum.
Lögð fram tillaga að aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps fyrir árin 2006-2026 og umhverfismat aðalskipulags fyrir sömu ár.
Skipulagshöfundur gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og svaraði fyrirspurnum nefndarmanna.

Að umræðum loknum var lögð fram svofelld tillaga:“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að auglýsa fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi og umhverfismat með lögformlegum hætti.“

Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.

4. mál Smábátahöfn-hugmynd að dýpkun fyrir nýrri flotbryggju.
Lagðar fram hugmyndir að dýpkun í smábátahöfn. Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og fundum sem hann hefur átt með Siglingastofnun og verktaka um málið, varðandi kostnað og fjármögnun verksins.
Hreppsnefnd felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu til samræmis við framlögð gögn og vísar málinu að öðru leyti til hafnarnefndar.

5. mál. Tilboð í nýja þekju. Tilboð verða opnuð kl. 11.00 þann 4. júní 2007.
Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða dags. 4. júní sl. Tilboð bárust frá fjórum aðilum sem eru:

1) Héraðsfjörður ehf. Egilsstöðum kr. 57.614.912
2) Mælifell ehf. Vopnafirði kr. 59.653.080
Mælifell ehf. frávikstilboð kr. 62.100.000
3) Smiðir ehf. Reyðarfirði kr. 79.666.582
4) Þingvað ehf. Reykjavík kr. 63.076.582
Kostnaðaráætlun kr. 67.393.905

Lægsta tilboðið sem er frá Héraðsfirði er 85,5 % af kostnaðaráætlun. Tilboðin hafa verið send til yfirreiknings hjá Siglingastofnun.
Samþykkt að hefja viðræður við lægstbjóðanda.

6. mál Bréf Vopnafjarðarhrepps til Samgönguráðherra dags. 28. maí sl., varðandi jarðgangamál.
Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps dags. 28. maí sl. til samgönguráðherra, varðandi jarðgöng milli Vopnafjarðar og Héraðs. Jafnframt lagt fram svarbréf samgönguráðuneytisins frá 2. júní sl.
Miklar umræður urðu um þessi mál þar sem farið var yfir mikilvægi þess að samgöngur milli Vopnafjarðar og Héraðs yrðu tryggðar með jarðgöngum.

Lögð fram svofelld tillaga:
„Sveitarstjóra falið að eiga fund með samgönguráðherra þar sem fylgt verði eftir mikilvægi þess að fjármagn verði sérmerkt inni á samgönguáætlun til rannsókna og undirbúnings á jarðgöngum milli Vopnafjarðar og Héraðs.
Slík göng eru grundvöllur þess að samvinna sveitarfélaganna sitthvoru megin Smjörvatnsheiðar geti þróast með eðlilegum hætti. Auk þess sem slík framkvæmd myndi vera grundvöllur þess að ná meginmarkmiðum samgönguáætlunar um styttingu leiða, bætt öryggi í umferðinni, rjúfa vetrareinangrun og ná tímamörkum samgönguáætlunar í ferðatíma til höfuðborgarinnar.
Framkvæmd þessi styttir leiðina milli Vopnafjarðar og Egilsstaða um 51 km. miðað við Hringveginn eða 38 %, auk þess sem leiðin yrði öll á láglendi í stað erfiðra fjallvega. Með tilkomu slíks vegar myndi opnast gátt milli Norðausturhluta landsins og Austurlands er gerbreytti möguleikum til jákvæðrar byggðaþróunar.“

Fyrirliggjandi tillaga síðan samhljóða samþykkt.

7. mál. Ýmis bréf og erindi.

a) Bréf Byggðastofnunar frá 28. maí sl., varðandi styrkveitingar, ásamt lista yfir styrkþega.
Bréf Byggðastofnunar frá 28. maí sl. lagt fram til kynningar.

b) Bréf móttekið 29. maí sl. frá aðalfundi Sjálfsbjargar félags fatlaðra á Vopnafirði, þar sem skorað er á sveitarstjóra ásamt starfsmanni byggingafulltrúa að eyða einum degi í hjólastól til þess að kynna sér aðstæður sem fatlaðir þurfa að búa við.
Gerð var grein fyrir málinu.

c) Bréf Vopnafjarðarhrepps til Forsætisráðuneytisins dags. 23. maí sl., varðandi Norðausturnefndina.
Lagt fram til kynningar.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:00





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir