Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 13. mars 2008 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00
Mætt til fundar: Anna Pála Víglundsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Halldóra S. Árnadóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 28. feb. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 28. feb. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál Fundargerð bygginga- og skipulagsnefndar frá 29. feb. sl.
Fundargerð byggingar-og skpulagsnefndar frá 29 feb. sl. lögð fram.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 4. tl. fundargerðarinnar Norðausturvegur til Vopnafjarðar. Gerði hann ásamt formanni skipulagsnefndar grein fyrir helstu breytingum sem tillögur Vegagerðarinnar gera ráð fyrir.
Fundargerðin var síðan samþykkt samhljóða.
3. mál Fundargerð þjónustunefndar aldraðra frá 5. mars sl.
Fundargerð þjónustnefndar aldraðra lögð fram til kynningar. Fram fór nokkur umræða um einstaka liði fundargerðarinnar.
4. mál Leikskólinn Brekkubær tilboð.
Lögð fram fundargerð dags. 28. feb. sl., frá opnun tilboða í verkið Leikskólinn Brekkubær-frágangur húss að innan-.
Eitt tilboð barst frá Mælifelli ehf. að fjárhæð 41.300.736 kr. Kostnaðaráætlun er 34.000.000 kr. Tilboðið er því 21,5 % yfir kostnaðráætlun. Yfirreikningur tilboðs hefur farið fram og ennfremur viðræður við vektakann. Í þeim viðræðum hafa náðst fram lagfæringar á tilboði þannig að það hefur verið lækkað í 36.281.873 kr. Ennfremur var kostnaðaráætlun lagfærð og er nú 33.516.000. Nýtt tilboð er þannig 8,2 % yfir kostnaðaráætlun.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir samhljóða að gengið verði frá verksamningi við Mælifell ehf. á grundvelli nýs tilboðs.
5. mál Múlastofa, samningur við Björn G Björnsson
Lögð fram drög að verksamningi við List og sögu ehf., vegna verkefnisins Múlastofa, sem taka á í notkun sumarið 2008 í húsinu Kaupvangi, Vopnafirði.
Gerð var grein fyrir málinu og hvernig áætlað væri að málið yrði unnið. Töluverð umræða fór fram um verkefnið og almenn ánægja með það.
Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá undirritun samningsins.
6. mál. Aðalfundur Menningarráðs Austurlands 7. apríl nk., tilnefning fulltrúa.
Lagt fram bréf frá Menningarráði Austurlands frá 3. mars sl., þar sem boðað er til aðalfundar ráðsins sem haldinn verður á Seyðisfirði 7. apríl n. k.
Samþykkt að Anna Pála Víglundsdóttir verði fulltrúi Vopnafjarðarhrepps á fundinum og til vara verði Sigríður Dóra Sverrisdóttir.
7. mál. Samkomulag um vátryggingar milli Vopnafjarðarhepps og Vís.
Lögð fram drög að samkomulagi milli Vís og Vopnafjarðarhrepps um tryggingar sveitarfélagsins. Sveitarstjóri lagði einnig fram yfirlit yfir tryggingar þær sem félagið hefur verið með fyrir sveitarfélagið fram að þessu. Í yfirlitinu kemur vel fram að iðgjöld lækka verulega frá því sem verið hefur, ásamt öðrum þeim atriðum sem nýtt tilboð Vís felur í sér, verði gengið til samninga við félagið um áframhaldandi samning.
Fram fór nokkur umræða um málið þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum.
Fulltrúi minnihlutans Björn Halldórsson lagði fram svofellda bókun:
“Lýsi yfir óánægju með þá málsmeðferð að ekki skyldi hafa verið leitað eftir því í hreppsnefnd hvort bjóða ætti tryggingar sveitarfélagsins út eða ekki, áður en leitað var eftir endurnýjun samninga við Vís. Af þeim sökum mun ég sitja hjá við afgreiðslu málsins.“
Sveitarstjóri svaraði því til að enn væri málið galopið en leggur til að mörkuð leið verði farin.
Síðan var gengið til atkvæða um fyrirliggjandi samningsdrög.
Samþykkt með 4 atkvæðum og 3 sátu hjá.
Sveitarstjóra falið að ganga frá undirritun samningsins.
8. mál. Ársreikningur Brunavarna á Austurlandi fyrir árið 2007
Lagður fram ársreikningur Brunavarna á Austurlandi fyrir árið 2007. Sveitarstjóri gerði grein fyrir reikningnum og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða reininginn fyrir sitt leyti.
9. mál Fundur með samgönguráðherra 10. mars sl.
Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps til samgönguráðuneytisins dags. 10. mars sl. þar sem greint er frá þeim málum sem fjallað var um á fundi sveitarstjóra með ráðherra þann dag.
Fundarmenn tjáðu sig síðan um málefnið, þ. e. verkefnishugmyndir sem sendar voru inn til N-A-nefndar og mikilvægi þess að málunum sé fylgt eftir, sbr. fund sveitarstjóra með samgönguráðherra. Fram kom óánægja með störf SSA viðvíkjandi samgöngumál á Austurlandi, sbr. jarðgöng milli Héraðs og Vopnafjarðar. Lagt var síðan til að stefnt yrði að fundi með þingmönnum og ráðherra samgangna fljótlega eftir páska.
10. mál Ýmis bréf og mál:
a) Fundargerð sambands ísl. sveitarfélaga frá 22. feb. sl.
Lagt fram til kynningar.
b) Fundargerð félagsmálanefndar frá 28. jan. og 27. feb. sl.
Lagt fram til kynningar.
c)Fundargerð Skólaskrifstofu Austurlands frá 28. feb. sl.
Lagt fram til kynningar
d)Verkfundur frá 3. mars sl. varðandi hafnarframkvæmdir.
Lagt fram til kynningar.
e) Bréf dags. 29. feb. sl. frá Ásmundi Ásmundssyni, varðandi bættar samgöngur.
Lagt fram til kynningar
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:25