Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 28. febrúar 2008 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16:00
Mætt til fundar: Anna Pála Víglundsdóttir, Aðalbjörn Björnsson, Eyjólfur Sigurðsson, Vigfús Davíðsson, Guðrún Anna Guðnadóttir, Einar Víglundsson og Skúli Þórðarson.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 14. feb. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 14. feb. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt.
2. mál Fundargerð atvinnumálanefndar frá 25. feb. 2008
Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 25. feb. sl.
Lögð fram til kynningar.
3. mál Fundargerð fræðslunefndar frá 8. feb. sl.
Fundargerð fræðslunefndar lögð fram til kynningar.
4. mál. Fundargerð menningarmálanefndar frá 19. feb. sl.
Fundargerð menningarmálanefndar lögð fram til kynningar
5. mál. Fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar frá 25. feb. sl.
Fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar frá 25. feb. sl. lögð fram.
6. mál. Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps 2009-2011– síðari umræða -
Lögð fram þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps A-og B-hluta fyrir árin 2009-2011, en hún hafði áður verið lögð fram á fundi hreppsnefndar þann 14. febrúar sl. Jafnframt lögð fram á sama grunni áætlun yfirstandandi árs til samanburðar. Í gögnunum er samandreginn rekstrarreikningur, efnahagsreikningur og sjóðsstreymi áranna 2008-2011. Sveitarstjóri lagði jafnframt fram greinargerð sína með fyrirliggjandi áætlunum. Gerði hann síðan grein fyrir áætluninni og greinargerðinni. Lagði hann að svo búnu til að áætlunin yrði samþykkt hér í dag við síðari umræðu.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum.
Fyrirliggjandi áætlun síðan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
7. mál. Norð-Austurnefndin -Tillögur Vopnafjarðarhrepps -
Lagðar fram tillögur Vopnafjarðarhrepps til Norð-Austurnefndar, ásamt greinargerð sveitarstjóra. Í greinargerðinni kemur meðal annars fram að: Atvinnumálanefnd- og hreppnefnd Vopnafjarðarhrepps hafa unnið að tillögugerðinni, ásamt embættismönnum.
Grunnhugsunin í innsendum tillögum er sú að stofnaður verði öflugur „Atvinnueflingarsjóður Vopnfirðinga“ í samvinnu Vopnafjarðarhrepps og Ríkisvaldsins. Sjóður þessi verði síðan nýttur til að styðja við viðskiptahugmyndir sem berast sjóðnum og stjórn hans telur hæfar og uppfylli þau skilyrði sem sjóðurinn setur. Vopnafjarðarhreppur mun greiða inn stofnfé í sjóðinn til helminga á við Ríkissjóð.
Ákvörðun hreppsnefndar um að leggja verulega fjármuni í sjóðinn á móti framlögum frá ríkissjóði sínir kjark og einbeittan vilja Vopnfirðinga til þess að takast á við uppbyggingu atvinnulífs og samfélags á Vopnafirði með liðstyrk frá Ríkissjóði.
Fram fór lífleg umræða þar sem fundarmenn allir lýstu yfir ánægju með fyrirliggjandi tillögur og töldu mikilvægt að unnið yrði áfram að framgangi þeirra.
8. mál. Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um bann við loðnuveiðum.
Lögð fram reglugerð nr. 4/2008 dags. 21. febrúar sl., þar sem loðnuveiðar eru stöðvaðar. Gerð var grein fyrir fundi sem fulltrúar sveitarfélagsins áttu með sjávarútvegsráðherra á Reyðarfirði mánudagskvöldið 25. febrúar, þar sem ráðherra skýrði ákvörðun sína og hvað framundan væri varðandi mælingar á loðnu.
Ennfremur lögð fram reglugerð nr.5/2008, dags. 27.02.08, þar sem loðnuveiðar eru heimilaðar á ný.
Að svo búnu var lögð fram svofelld tillaga:
„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar ákvörðun Sjávarútvegsráherra um að heimila loðnuveiðar á ný. Ákvörðun þessi er tekin á grundvelli ráðgjafar Hafrannsóknarstofnunar, sem tekur mið af mælingum sem unnar hafa verið í samvinnu stofnunarinnar og skipstjórnarmanna úr fiskiskipaflotanum.
Hreppsnefnd ítrekar óskir sínar til ríkisvaldsins um að rannsóknir á vistfræði loðnunnar og annarra nytjastofna verði auknar til muna þ.a. unnt verði að úthluta veiðiheimildum tímanlega af meira öryggi en raunin hefur verið á síðustu árin. Ljóst má vera að hagsmunir allra felast í því að mögulegt sé að taka slíkar ákvarðanir tímanlega á grundvelli vandaðra rannsókna og mælinga á þessu sviði. Slík vinnubrögð hámarka nettóafrakstur þjóðarinnar, til langs tíma, af nýtingu sjávarfangs við Íslandsstrendur“
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
9. mál. Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga frá 30. jan. sl., varðandi endurgreiðslu á vsk. á slökkvibifreiðar og búnað.
Lagt fram bréf Sambands sveitarfélaga frá 30. jan sl. Í bréfinu greinir frá því að fjárveitingar á fjárlögum duga engann veginn til þess að endurgreiða virðisaukaskatt vegna kaupa á slökkvibifreiðum og búnaði, þrátt fyrir að ákveðið hafi verið af Ríkisvaldinu að heimila slíkar endurgreiðslur.
Lögð fram svofelld tillaga:
„Af gefnu tilefni hvetur hreppsnefnd Vopnafjaðrarhrepps ríkisvaldið til þess að auka nú þegar fjárframlag til þessarar niðurgreiðslu. Sveitarfélögin í landinu hafa greitt þennan kostnað. Hér er því einungis um það að ræða að ríkissjóður skili til baka þeim greiðslum sem sveitarfélögin eru búin að greiða. Ekki er um að ræða aukaútgjöld fyrir ríkissjóð, þar sem fjármunirnir koma inn á tekjuhlið ríkisreiknings og út á gjaldahlið.“
Samþykkt samhljóða
10. mál Bréf Skipulagsstofnunar frá 19. feb. sl., varðandi breytingar á veglínum Norðausturvegar til Vopnafjarðar.
Gerð grein fyrir fyrirliggjandi gögnum.
Samþykkt að vísa málinu til afgreiðslu í skipulags og bygginganefnd.
11. mál Ýmis bréf og mál:
a) Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga dags. 6. feb. sl. varðandi 22. landsþing sambandsins.
Lagt fram til kynningar
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:20.